Sýnir 6397 niðurstöður

Nafnspjöld

Ingibjörg Guðmundsdóttir (1876-1936)

  • S00889
  • Person
  • 18.08.1876-13.09.1936

Fædd í Vatnahverfi í Refasveit. Kvæntist Þorleifi Þorbergssyni frá Selá á Skaga, þau bjuggu á Sauðárkróki. Eftir að Þorleifur lést úr holdsveiki 1906 flutti Ingibjörg til Gísla bróður síns sem þá rak Hótel Tindastól. Ingibjörg og Þorleifur eignuðust eina dóttur.

Sigríður Kristjánsdóttir (1903-1990)

  • S02025
  • Person
  • 4. júní 1903 - 24. des. 1990

Dóttir Kristjáns Gíslasonar kaupmanns á Sauðárkróki og k.h. Bjargar Sigríðar Önnu Eiríksdóttur. Bjó í Reykjavík.

Hansína Kristín Sigurðardóttir (1919-1992)

  • S00912
  • Person
  • 29.05.1919-29.02.1992

Dóttir Sigurðar Sigurðssonar skólastjóra á Hólum og búnaðarmálastjóra í Reykjavík (1871-1940). Var á Sauðárkróki 1930. Starfaði við blómaskreytingar. Síðast bús. í Reykjavík.

Guðrún Sveinsdóttir (1922-1981)

  • S00916
  • Person
  • 30. mars 1922 - 24. júlí 1981

Húsfreyja og afgreiðslukona á Sauðárkróki. Var í Kálfholti, Oddasókn, Rang. 1930. Síðast bús. á Sauðárkróki.

Hlíf Ragnheiður Árnadóttir (1921-2013)

  • S00918
  • Person
  • 19.12.1921-16.04.2013

For­eldr­ar henn­ar voru Heiðbjört Björns­dótt­ir og Árni Daní­els­son á Sjáv­ar­borg. Hlíf kvæntist Kristmundi Bjarnasyni, þau bjuggu á Sjávarborg og eignuðust þrjár dætur.

Jóhann Jósef Jakobson (1920-1994)

  • S00919
  • Person
  • 09.05.1920-06.07.1994

Var á Efra-Spákonufelli, Hofssókn, A-Hún. 1930. Verkfræðingur og framkvæmdastjóri í Reykjavík. Síðast bús. í Hafnarfirði.

Hrólfur Sigurðsson (1922-2002)

  • S00923
  • Person
  • 10.12.1922-17.09.2002

Hrólfur Sigurðsson fæddist í Reykjavík 10. desember árið 1922. Faðir: Sigurður Sigurðsson (1887-1963), sýslumaður Skagfirðinga. Móðir: Guðríður Stefanía Arnórsdóttir (1889-1948), húsfreyja. Systkini Hrólfs voru átta. ,,Hrólfur fluttist barnungur frá höfuðborginni til Sauðárkróks og bjó þar fram undir tvítugt. Hann stundaði nám við Menntaskólann á Akureyri en fluttist síðan til Reykjavíkur og sótti námskeið í Handíða- og myndlistarskólanum. Árið 1946 fluttist hann til Kaupmannahafnar þar sem hann nam fyrst við teikniskóla Eriks Clemmensens og síðan við Konunglegu listaakademíuna þaðan sem hann lauk námi árið 1950. Á þessum árum sínum ytra sótti hann einnig námskeið í Hollandi, Frakklandi, Ítalíu og á Grikklandi. Hann kom heim til Íslands að námi loknu og hóf strax vinnu við list sína en kenndi jafnframt í nokkur ár við Handíða- og myndlistarskólann í Reykjavík og Iðnskólann í Hafnarfirði og í Reykjavík. Þá vann hann einnig, samhliða listsköpun, við garðahönnun eða landslagsarkitektúr fram til ársins 1980. Eftir það sneri hann sér heilshugar að málverkinu. Hrólfur var einn þeirra listamanna sem héldu tryggð við landslagsmálverkið á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar þegar flestir sneru sér að abstraktmálverkinu. Hrólfur var í sýningarnefnd Félags íslenskra myndlistarmanna í nokkur ár og í safnráði Listasafns Íslands 1973– 1980. Hrólfur hélt þrjár einkasýningar á verkum sínum. Þá fyrstu í Bogasal Þjóðminjasafnsins árið 1962, aðra á Kjarvalsstöðum 1992 í boði Menningarmálanefndar Reykjavíkur og þá síðustu í Gerðarsafni í Kópavogi 1996 í boði Listasafns Kópavogs. Þá tók hann þátt í fjölda samsýninga hér á landi og erlendis." Árið 1948 kvæntist Hrólfur Margréti Árnadóttur, deildarstjóra og myndlistarmanni, en hún er fædd 12.12. 1926. Hrólfur og Margrét eignuðust tvær dætur.

Indriði Karel Sigurðsson (1921-1986)

  • S00938
  • Person
  • 7. maí 1921 - 6. nóvember 1986

Fæddur 7. maí 1921 á Hofdölum í Viðvikursveit, sonur Sigurðar Stefánssonar og Önnu Einarsdóttur, kennd við Rein í Hegranesi. Indriði starfaði sem stýrimaður. Kvæntist Erlu Árnadóttur Hafstað frá Vík, þau eignuðust fimm börn. Síðast bús. á Seltjarnarnesi.

Jón Björnsson (1891-1983)

  • S00956
  • Person
  • 17. júlí 1891 - 27. júlí 1983

Sonur Björns Sveinssonar og Guðbjargar Jónsdóttur. Ólst upp með foreldrum sínum í Húnaþingi til 11 ára aldurs. Árið 1915 keypti Jón jörðina Þverárdal í Laxárdal fremri ásamt föður sínum. Sumarið 1919 kvæntist hann Finneyju Reginbaldsdóttur frá Látrum í Aðalvík. Árið 1921 keyptu ungu hjónin og faðir hans jörðina Sjávarborg í Borgarsveit og bjuggu þar til 1926 er Jón keypti Heiði í Gönguskörðum þar sem þau bjuggu í tíu ár. Árið 1936 fluttu þau til Sauðárkróks og keyptu fljótlega Hótel Tindastól þar sem þau ráku veitinga- og gistiþjónustu fram á árið 1941 er breska setuliðið krafðist afnota af húsinu. Í Skarðshreppi gegndi Jón ýmsum trúnaðarstörfum, sat í hreppsnefnd og sýslunefnd, var formaður búnaðarfélags og virðingarmaður fasteigna. Á Sauðárkróki starfaði Jón sem sláturhússtjóri hjá Sláturfélagi Skagfirðinga í 11 ár, sá um gæðamat og vigtun á ull og gærum hjá K.S., var stöðvarstjóri hjá Vörubílastöð Skagafjarðar í 18 ár, umboðsmaður fyrir Ölgerð Egils Skallagrímssonar í 34 ár og Líftryggingafélagið Andvöku í allmörg ár. Jón var einn af stofnendum Byggingarsamvinnufélags Sauðárkróks og Stangveiðifélags Sauðárkróks og formaður beggja félaga um tíma.
Jón og Finney eignuðust tvær dætur.

Guðmundur Sigurðsson (1902-1995)

  • S00957
  • Person
  • 10. júlí 1902 - 26. mars 1995

Sonur Sigurðar Ellerts Gunnlaugssonar smiðs á Sauðárkróki og Önnu Guðmundsdóttur. Húsasmiður og slökkviliðsstjóri á Sauðárkróki, kvæntist Guðbjörgu Hjálmarsdóttur frá Grímsstöðum í Svartárdal.

Arnljótur Jón Kristjánsson

  • S00990
  • Person
  • 10.02.1887-14.03.1928

Arnljótur var annar í aldurröð sex barna sem til þroska komust. Hann ólst upp hjá móður sinni en faðir hans dó þegar hann var átta ára. Arnljóur stóð síðan fyrir búi móður sinnar, þar til hann hóf sjálfstðan búskap í Efra-Lýtingsstaðakoti í Tungusveit ásamt Sigurbjörgu konu sinni. Er þau brugu búi á Hafgrímsstöðum 1921, fluttust þau til Sauðárkróks, þar sem Arnljótur stundaði daglauna vinnu í fyrstu, Hann gekk ekki heill til skógar, og mun Jónas Kristjánsson læknir hafa komið því til leiðar að Arnljótur fékk gæslu eða umsjónarstarf á við Sjúkrahúsið og starfaði hann síðan sem sjúkrahússráðsmaður til dánardags en hann lést 41 árs gamall.

Árni Árnason (1888-1971)

  • S00991
  • Person
  • 05.09.1888-05.08.1971

Foreldrar: Árni Jónsson b. og snikkari í Borgarey og k.h. Guðrún Þorvaldsdóttir. Faðir Árna lést sama ár og hann fæddist, móðir hann kvæntist tveimur árum síðar Pétri Gunnarssyni b. á Stóra-Vatnsskarði. Árni fluttist með móður sinni og stjúpa að Stóra Vatnsskarði 1899 og átti þar heim upp frá því, fyrst sem fyrirvinna hjá stjúpa sínum síðan sem lausamaður. Þá vann hann nokkur vor við jarðabótavinnu. Árið 1924 hóf hann búskap á hálflendunni á Vatnsskarði á móti Benedikt bróður sínum og bjó þar þangað til Þorvaldur sonur hans tók við búsforráðum. Árið 1931 kvæntist hann Sólveigu Einarsdóttur frá Varmalandi í Sæmundarhlíð, þau bjuggu á Vatnsskarði alla sína búskapartíð, þau eignuðust tvö börn.

Kristján Þórður Sölvason (1911-1994)

  • S00970
  • Person
  • 5. sept. 1911 - 29. nóv. 1994

Sonur Sölva Jónssonar járnsmiðs og vélgæslumanns á Sauðárkróki og k.h. Stefaníu Marínar Ferdinandsdóttur. Kristján ólst upp með foreldrum sínum á Sauðárkróki og naut þeirrar skólagöngu sem í boði var á Sauðárkróki, lauk barnaskóla og var einn vetur í unglingaskóla. Hann tók minna mótorvélstjórapróf á vegum Fiskifélags Íslands á Akureyri 1937 og sótti eftir það nokkur námskeið í Reykjavík. Hann var vélstjóri á mótorbátnum Baldri 1933-1937, vélstjóri við hafnargerðina á Sauðárkróki 1937-1940 og á mótorbátnum Úlfi Uggasyni til 1942. Hann var verkstjóri við hafnargerð á Hvammstanga ásamt sveini bróður sínum 1945, en frá 1942 var hann vélgæslumaður í frystihúsi Kaupfélags Skagfirðinga og Fiskiðjunnar hf. þar sem hann starfaði til 1990. Einnig var Kristján oft kallaður til lögreglustarfa. Hann hafði mikið yndi af skepnum og átti nokkrar ær sem hann hafði í fjárhúsi uppi á Nöfum. Kristján var lipur fimleikamaður á yngri árum og var oft í sýningarflokkum heima í héraði á hátíðisdögum, góður söngmaður og annálaður dansari.
Kristján var ókvæntur og barnlaus.

Pétur Eriksen (1870-1941)

  • S00976
  • Person
  • 20. mars 1870 - 8. okt. 1941

Sonur Láru Sigfúsdóttur frá Gilsárvallahjáleigu í Borgarfirði eystri og dansks skipstjóra, unnusta Láru, sem fórst með skipi sínu. Pétur ólst upp hjá Einari Erlendssyni og Sigríði Þorsteinsdóttur í Grjótárgerði í S-Þing., til 19 ára aldurs er hann flutti til Sauðárkróks. Á Sauðárkróki nam hann skósmíði hjá Guðmundi Vigfússyni og lauk sveinsprófi í iðninni eftir tilskilinn námstíma. Þessa iðn sína stundaði Pétur svo að mestu til æviloka. Pétur tók mikinn þátt í félags- og menningarmálum; var í stúkunni "Gleym mér ei" í yfir 40 ár og tók mikinn þátt í leik- og söngstarfi. Kvæntist Ingibjörgu Ólafsdóttur frá Harrastöðum á Skagaströnd, þau eignuðust 14 börn, aðeins fimm þeirra komust til fullorðinsaldurs. Pétur átti einnig dóttur með Halldóru Árnadóttur.

Guðný Ólöf Benediktsdóttir (1891-1927)

  • S00981
  • Person
  • 27. maí 1891 - 7. sept. 1927

Foreldrar: Benedikt Stefánsson og Ingibjörg Pétursdóttir í Neðra-Haganesi. Guðný ólst upp hjá foreldrum sínum á Neðra-Haganesi til 1899 er faðir hennar drukknaði. Árið 1900 fór hún að Þrasastöðum í fóstur til hjónanna Guðmundar Bergssonar og Guðnýjar Jóhannsdóttur og var þar léttastúlka og síðar vinnukona 1900-1913, er hún gekk að eiga Berg Jónsson og hófu þau búskap í Nefsstaðakoti. Bergur lést úr berklum 1917, aðeins 27 ára gamall og heimilið leystist upp. Árin 1917-1922 var Guðný í húsmennsku hér og þar í Fljótum. 1922 hóf hún sambúð með Jóni Jóakimssyni á jörðinni Hólum í Austur-Fljótum, sú sambúð varði aðeins í tvö ár. Á þessum tíma var Guðný orðin veik af berklum og var flutt á Kristneshæli þar sem hún lést 1927. Guðný eignaðist tvo syni með Bergi og einn son með Jóni.

Sigurður Ólafsson (1892-1976)

  • S00987
  • Person
  • 29.10.1892-27.12.1976

Sigurður Ólafsson, f. 29.10.1892 í Hróarsdal í Hegranesi. Foreldrar: Ólafur Ágúst Guðmundsson, f. 1865 og Sigurbjörg Anna Jónasdóttir f. 1869. Foreldrar Sigurðar voru í húsmennsku í Hróarsdal 1892-1894, bóndi á hluta af Ríp 1894-1897 og á hálfri Ytri-Vík í Staðarhreppi 1897-1898 en fékk Kárastaði til ábúðar 1898. Eftir andlát föður síns 1921 bjuggu Sigurður og bræður hans ásamt móður sinni á Kárastöðum. Sigurður lést ógiftur og barnlaus. Hann var mikill hagyrðingur og fræðimaður.

Gunnar Jónasson (1869-1959)

  • S00979
  • Person
  • 05.05.1869-27.12.1959

Var í fóstri í Hólakoti á Reykjaströnd, fiskmatsmaður í Bolungarvík og sjómaður á Sauðárkróki og í Hnífsdal. Síðast búsettur á Siglufirði.

Unnur Magnúsdóttir (1894-1985)

  • S00990
  • Person
  • 29.06.1894-17.11.1985

Foreldrar: Magnús Benediktsson formaður á Sauðárkróki og k.h. Guðný Jónasdóttir. Þegar hún var 13 ára gömul missti hún föður sinn og ömmu úr taugaveiki. Unnur var næstelst systkina sinna og þurfti fljótlega eftir þetta að fara að vinna fyrir sér. Árið 1918 réðst hún vinnukona hjá Kristínu og Kristni Briem. Þar kynntist hún Jóni Björnssyni og kvæntust þau árið 1919. Árið 1920 keyptu þau sér eigið hús á Sauðárkróki og bjuggu þar næstu 60 árin, þau eignuðust fimm börn.

Sverrir Sigurðsson Svavarsson (1934-2011)

  • S01015
  • Person
  • 24. nóvember 1934 - 27. september 2011

Sverrir Sigurðsson Svavarsson fæddist 24. nóvember 1934 á Sauðárkróki. Foreldrar hans voru hjónin Svavar Sigpétur Guðmundsson og Sigurbjörg Ögmundsdóttir. ,,Sverrir ólst upp á Sauðárkróki og sem unglingur vann hann nokkur sumur í Varmahlíð, hjá Lindemann, sem rak þar hótel og bensínsölu. 18 ára að aldri fór hann að vinna á Keflavíkurflugvelli og síðan hjá Ísbirninum í Reykjavík og fleiri fyrirtækjum þar. Árið 1956 flutti hann aftur til Sauðárkróks og starfaði hjá Kaupfélagi Skagfirðinga, m.a. í gömlu Gránu, Mjólkursamlagi KS og fleiri deildum Kaupfélagsins um árabil. Hann starfaði sem póstafgreiðslumaður hjá Pósti og síma allmörg ár áður en hann gerðist kirkjuvörður og útfararstjóri við Sauðárkrókskirkju. Eftir að hann hætti störfum vegna aldurs hafði hann ásamt Sigrúnu eiginkonu sinni umsjón með föndri eldri borgara í Safnaðarheimili Sauðárkrókskirkju. Hann var einn af stofnfélögum Kiwanisklúbbsins Drangeyjar á Sauðárkróki og var virkur félagi til dauðadags. Hann var góður söngmaður og starfaði með Karlakór Sauðárkróks í mörg ár og einnig Kirkjukór Glaumbæjarsóknar. Hann var til margra ára félagi í Leikfélagi Sauðárkróks og Hestamannafélaginu Léttfeta á Sauðárkróki."
Sverrir var tvíkvæntur. Hinn 5. júní 1955 kvæntist hann Sigurlín Ester Magnúsdóttur, þau skildu, eignuðust þau þrjá syni. Hinn 17. júní 1967 kvæntist Sverrir Sigrúnu Gíslu Halldórsdóttur frá Halldórsstöðum í Skagafirði, þau eignuðust þau tvö börn.

Jón Ástvaldur Magnússon (1897-1993)

  • S01022
  • Person
  • 18.01.1897-27.08.1993

Foreldrar: Magnús Oddsson og k.h. Sigríður Jónasdóttir. Jón ólst upp hjá foreldrum sínum, fyrst á Féeggsstöðum í Barkárdal og síðan á ýmsum jörðum í Hörgárdal. Árið 1917 gerðist Jón vinnumaður á Hólum í Hjaltadal og svo á Skíðastöðum í Lýtingsstaðahreppi þar sem hann kynntist konu sinni, Jóhönnu Jóhannsdóttur, þau kvæntust árið 1920. Fyrstu ár sín í hjónabandi bjuggu þau að Gilkoti í Neðribyggð og á hluta Skíðastaða, þau hættu búskap 1933. Árin eftir það voru þau í vinnumennsku á ýmsum bæjum en fluttu til Sauðárkróks árið 1936. Á Sauðárkróki hóf Jón störf hjá Kaupfélagi Skagfirðinga og vann þar allan sinn starfsaldur. Jón og Jóhanna eignuðust þrjár dætur.

Valur Ingólfsson (1941-2016)

  • S01023
  • Person
  • 9. sept. 1941 - 6. okt. 2016

Foreldrar: Unnur Hallgrímsdóttir húsmóðir (1918-1976) og Ingólfur Nikódemusson (1907-1991) húsasmíðameistari.
Valur ólst upp á Sauðárkróki og lauk hefðbundinni skólagöngu þar. Hann stundaði nám við Iðnskólann á Sauðárkróki og lauk þaðan meistaraprófi í húsgagna- og húsasmíði. Hann vann um tíma hjá Vegagerð ríkisins og sem lögreglumaður en lengstan hluta starfsævinnar starfaði hann við smíðar og rak eigið trésmíðaverkstæði. Árið 2000 hóf hann störf sem kennari við tréiðnadeild FNV og náði sér í kennsluréttindi frá HA. Hann kenndi til ársins 2008. Rak einnig köfunarþjónustu um skeið. Valur var virkur í félagsmálum. Var einn af stofnfélögum Iðnsveinafélags Skagafjarðar og sat í stjórn Byggðasafns Skagfirðinga. Var virkur í starfi frímúrara á Sauðárkróki. Hann stundaði tómstundabúskap með bróður sínum á Kjartansstöðum um nokkurra ára skeið. Maki: Anna Pála Þorsteinsdóttir, f. 1947, frá Hofsósi. Þau eignuðust fjögur börn.

Hörður Ingimarsson (1943-)

  • S01026
  • Person
  • 01.09.1943-

Símvirki á Sauðárkróki. Rak húsgagnaverslunina Hátún á Sauðárkróki. Vann að bæjarmálum

Sesselja Magnúsína Theodórsdóttir (1900-1931)

  • S01035
  • Person
  • 09.11.1900-10.05.1931

Dóttir Theódórs Friðrikssonar, rithöfundar og sjómanns og Sigurlaugar Jónasdóttur. Sjúklingur á Vífilsstöðum, Hafnarfjarðarsókn, Gull. 1930. Lést ókvænt og barnlaus.

Guðný Tómasdóttir (1912-2008)

  • S01039
  • Person
  • 19.03.1912-06.08.2008

Dóttir Tómasar Gíslasonar kaupmanns og bókhaldara á Sauðárkróki og k.h. Elínborgar Jónsdóttur. Var á Sauðárkróki 1930. Talsímakona á Ísafirði og Reykjavík, síðar gjaldkeri í Reykjavík.
,,Guðný var við nám í Kvennaskólanum í Reykjavík 1929-1930. Hún hóf störf sem talsímakona á Ísafirði 1931 og var skipuð talsímakona þar 1.10. 1931-1935. Hún fluttist til Borðeyrar 1.1. 1941-1.6. 1942, síðan á Langlínuna í Reykjavík 8.10. 1942. Hún lét af störfum vegna veikinda 1.10. 1946. Guðný var gjaldkeri hjá Agli Vilhjálmssyni frá 1953-1982."

Tómas Gíslason (1876-1950)

  • S01037
  • Person
  • 21. október 1876 - 12. október 1950

Bókhaldari og kaupmaður á Sauðárkróki.

Pétur Sighvats Þórðarson (1940-1945)

  • S01041
  • Person
  • 21.05.1940-06.10.1945

Foreldrar: Þórður Pétursson Sighvats rafvirkjameistari og símstjóri á Sauðárkróki og María Njálsdóttir. Lést aðeins fimm ára gamall.

Halldór Þorleifsson (1860-1944)

  • S01052
  • Person
  • 20.09.1860-19.08.1944

Foreldrar: Þorleifur Þorleifsson b. á Botnastöðum og k.h. Ingibjörg Magnúsdóttir. Halldór ólst upp hjá foreldrum sínum til 10 ára aldurs, er hann missti þau bæði. Fluttist hann þá til Ingibjargar systur sinnar og ólst upp hjá henni og manni hennar í Axlarhaga í Blönduhlíð. Halldór bjó á eftirfarandi jörðum; Ystu Grund 1888-1892, Löngumýri í Vallhólmi 1892-1893 og Þverá í Blönduhlíð 1893-1897. Til Sauðárkróks fluttist hann 1898 og þar átti hann heima til æviloka. Þar vann hann aðalega við járnsmíði og hafði eigin smiðju. Stuttu eftir að hann flutti til Sauðárkróks, gekk hann í stúkuna "Gleym mér ei". Gerðist fljótt áhugasamur um bindindismál og starfaði mikið fyrir stúkuna og að bindindismálum. Við leiksamstarfi fékkst hann nokkuð. Um skeið var hann gæslumaður barnastúkunar " Eilífðarblómið. Halldór kvæntist Sigríði Magnúsdóttur (1868-1902) frá Utanverðunesi, þau eignuðust þrjú börn.

Hólmfríður Árnadóttir (1873-1955)

  • S01053
  • Person
  • 1. febrúar 1873 - 25. nóvember 1955

Dóttir Árna Ásgrímssonar b. og hreppstjóra á Kálfsstöðum í Hjaltadal og k.h. Margrétar Þorfinnsdóttur. Kennslukona í Reykjavík. Ógift og barnlaus.

Jón Heiðberg Jónsson (1889-1973)

  • S01064
  • Person
  • 25. okt. 1889 - 12. júlí 1973

Foreldrar: Jón Jónsson smáskammtalæknir og Jósefína Heiðberg Ólafsdóttir lengst af búandi á Heiði í Gönguskörðum. Kaupmaður og heildsali í Reykjavík. Um tíma bóndi í Kaldárhöfða í Grímsnesi. Síðast búsettur í Reykjavík. Kvæntist Þóreyju Eyþórsdóttur.

Kara Sigurðardóttir Briem (1900-1982)

  • S01077
  • Person
  • 1. apríl 1900 - 18. okt. 1982

Dóttir Sigurðar Eggertssonar Briem og Guðrúnar Ísleifsdóttur. Var í Reykjavík 1910. Húsfreyja á Akureyri og síðar í Reykjavík.

Ása Sigurðardóttir Briem (1902-1947)

  • S01075
  • Person
  • 14. júní 1902 - 2. nóv. 1947

Dóttir Sigurðar Eggertssonar Briem frá Reynistað og Guðrúnar Ísleifsdóttur. Húsfreyja og talsímakona í Reykjavík.

Guðbjörg Stefánsdóttir (1855-1943)

  • S01083
  • Person
  • 19.07.1855-24.02.1943

Frá Fjöllum í Kelduhverfi, alin upp á Siglufirði. Kvæntist Erlendi Pálssyni, þau bjuggu á Siglufirði, Sauðárkróki, Grafarósi og síðast á Hofsósi. Guðbjörg og Erlendur eignuðust sex börn sem upp komust.

Björn Blöndal Lárusson (1870-1906)

  • S01101
  • Person
  • 3. júlí 1870 - 27. des. 1906

Foreldrar: Lárus Þórarinn Blöndal sýslumaður á Kornsá í Vatnsdal og k.h. Kristín Ásgeirsdóttir. Stúdent í Reykjavík 1891, cand. theol. frá Prestaskólanum 1893. Var við barnakennslu og skrifstofustörf 1893-1896. Veitt Hof á Skagaströnd 1896, sýslunefndarmaður í Vindhælishreppi 1900-1901. Veittur Hvammur í Laxárdal 1900. Bóndi í Hvammi 1901-1906, átti sæti í hreppsnefnd Skefilsstaðahrepps og var oddviti hennar 1902-1906. Kvæntist Bergljótu Tómasdóttur frá Brekku í Aðaldal, þau eignuðust einn son.

Bergljót Tómasdóttir Blöndal (1873-1948)

  • S01102
  • Person
  • 19. sept. 1873 - 11. ágúst 1948

Frá Brekku í Aðaldal. Kvæntist sr. Birni Blöndal. Þau bjuggu að Hofi á Skagaströnd og í Hvammi í Laxárdal. Eftir andlát Björns flutti Bergljót til Sauðárkróks þar sem hún starfaði í mörg ár við verslunarstörf. Bergljót og Björn eignuðust einn son.

Birgitta Theódóra Tómasdóttir (1851-1913)

  • S01100
  • Person
  • 12. júlí 1851 - 13. júlí 1913

Var í Grindum, Hofsókn, Skag. 1860. Var í Brúarlandi, Hofssókn, Skag. 1870. Skáldkona og húsfreyja í Frakkanesi á Skarðsströnd. „Gáfukona og skáldmælt“, segir í Dalamönnum. Kvæntist Skúla Kristjánssyni (kammerráðs) bónda í Frakkanesi í Dölum.

Tómas Skagfjörð Magnússen Skúlason (1877-1906)

  • S01103
  • Person
  • 23. nóv. 1877 - 29. júní 1906

Sonur Skúla Kristjánssonar (kammerráðs) bónda í Frakkanesi í Dölum k.h. og Birgittu Tómasdóttur. Lögfræðingur, starfaði sem málaflutningsmaður í Árósum. Kvæntur Mimi Henrichsen.

Sigurlína Ágústína Gísladóttir (1880-1967)

  • S01112
  • Person
  • 1. ágúst 1880 - 19. júlí 1967

Foreldrar: Gísli Sigurðsson b. í Neðra-Ási og k.h. Kristín Björnsdóttir. Kvæntist Kristni Erlendssyni b. og kennara á Ingveldarstöðum á Reykjaströnd. Sigurlína tók mikinn þátt í öllu félagslífi með manni sínum, starfaði mikið að leikstarfsemi á yngri árum og að kvenfélagsmálum. Sigurlína og Kristinn eignuðust tíu börn, Kristinn eignaðist einnig dóttur utan hjónabands með Sigurlaugu Jósafatsdóttur frá Krossanesi.

Gísli Ástvaldur Kristinsson (1904-1995)

  • S01113
  • Person
  • 04.09.1904-24.02.1995

Sonur Kristins Erlendssonar kennara og k.h. Sigurlínu Gísladóttur, þau bjuggu lengst af á Hofsósi. Trésmiður í Hækingsdal, Saurbæjarsókn, Kjós. 1930. Trésmiður í Reykjavík 1945. Síðast bús. í Skeiðahreppi.

Birna Ingimarsdóttir Wæhle (1910-2012)

  • S01118
  • Person
  • 13. mars 1910 - 1. mars 2012

Birna fæddist að Litla-Hóli í Eyjafirði 13. mars 1910. Faðir Birnu var Ingimar Hallgrímsson, einn af stofnendum KEA og bóndi að Litla-Hóli í Eyjafirði. Móðir Birnu var Sigurbjörg Helga Jónsdóttir, fædd á Kotungsstöðum í Hálshreppi. Birna giftist Jóhannesi Wæhle Jóhannssyni, iðnverkamanni og síðar verkstjóra hjá Sambandsverksmiðjunum á Akureyri, þau bjuggu alla tíð á Akureyri og eignuðust fjögur börn.

Jóna Margrét Ingimarsdóttir

  • S01122
  • Person
  • 31. október 1885 - 12. apríl 1962

Ólst að mestu upp á Litlahóli í Hrafnagilshreppi, Eyj. með foreldrum og síðar föður. Húsfreyja á Litlahóli um 1916-18 og 1933-58, í Reykhúsum í Hrafnagilshreppi um 1918-1923, á Akureyri um 1923-32. Flutti til Akureyrar 1958. Síðast bús. þar.

Hrefna Ingimarsdóttir (1889-1979)

  • S01121
  • Person
  • 09.01.1889-14.04.1979

Húsfreyja í Reykjavík. Var í Reykjavík 1910. Skrifstofustúlka á Kirkjutorgi 1, Reykjavík 1930.

Karólína Benediktsdóttir (1903-1977)

  • S01127
  • Person
  • 12. janúar 1903 - 1. október 1977

Dóttir Benedikts Jóhannssonar verslunarmanns á Sauðárkróki og k.h. Bjargar Helgadóttur frá Holtastöðum í Langadal. Húsfreyja í Reykjavík 1945. Síðast bús. í Reykjavík. Kvæntist Óskari Jónssyni.

Lára Michelína Sigurðardóttir (1899-1967)

  • S01138
  • Person
  • 11. júní 1899 - 30. nóv. 1967

Foreldrar: Sigurður Pálsson héraðslæknir á Sauðárkróki og k.h. Þóra Gísladóttir. Húsfreyja í Reykjavík. Kvæntist Friðriki Ólafssyni skólastjóra Stýrimannaskólans.

Þóra Gísladóttir (1873-1951)

  • S01139
  • Person
  • 18.06.1873-09.03.1951

Fædd og uppalin í Reykjavík. Kvæntist Sigurði Pálssyni héraðslækni á Sauðárkróki. Fluttist til Reykjavíkur eftir andlát hans 1910 og bjó þar síðan. Þóra og Sigurður eignuðust tvö börn.

Sigurbjörg Guðmundsdóttir (1920-2006)

  • S01141
  • Person
  • 06.04.1920-05.01.2006

Sigurbjörg Guðmundsdóttir, f. 06.04.1920, d. 05.01.2006 á Sauðárkróki. Foreldrar: Dýrleif Árnadóttir, f. 1899 og Guðmundur Sveinsson, f. 1893. Sigurbjörg gekk í barnaskóla Sauðárkróks og tók gagnfræðapróf frá Menntaskólanum á Akureyri vorið 1937. Hún starfaði í Sauðárkróksapóteki til ársins 1944 er hún giftist Björgvini Bjarnasyni og hófu þau búskap á Siglufirði. Árið 1947 fluttu þau til Sauðárkróks er Björgvin varð þar bæjarstjóri og bjuggu þar til ársins 1958 er hann varð sýslumaður Strandamanna með aðsetur á Hólmavík. Árið 1968 fluttust þau til Ísafjarðar en Björgvin tók þar við embætti sýslumanns í Ísafjarðarsýslum, en árið 1973 tók hann við embætti bæjarfógeta á Akranesi. Þar bjó Sigurbjörg til ársins 1997 er hún flutti aftur til Sauðárkróks. Sigurbjörg var alla tíð heimavinnandi húsmóðir. Sigurbjörg og Björgvin eignuðust þrjú börn.

Kristján Möller (1887-1946)

  • S01148
  • Person
  • 5. apríl 1887 - 11. ágúst 1946

Verslunarmaður á Sauðárkróki, síðar lögreglumaður á Siglufirði. Kvæntist Jónu Sigurbjörgu Rögnvaldsdóttur frá Miðhúsum í Óslandshlíð.

Brynjólfur Benedikt Bjarnason (1865-1928)

  • S01168
  • Person
  • 8. sept. 1865 - 5. des. 1928

Var í foreldrahúsum í Noisomhed, Vestmannaeyjasókn 1870. Bóndi á Refsstöðum, en lengst af bóndi í Þverárdal, Bólstaðarhlíðarhr., A-Hún. Síðar gerðist hann umboðssali.

Kristín Bjarnadóttir (1909-1984)

  • S01179
  • Person
  • 17. jan. 1909 - 8. nóv. 1984

Bankaritari á Akureyri 1930. Húsfreyja á Akureyri. Síðast bús. á Akureyri.

Unnur Bjarnadóttir (1910-1997)

  • S01178
  • Person
  • 19. feb. 1910 - 4. sept. 1997

Skrifstofustúlka á Akureyri 1930. Skrifstofustarfsmaður í Reykjavík 1945.

Guðrún Þuríður Hannesdóttir (1881-1963)

  • S01181
  • Person
  • 11. maí 1881 - 11. nóv. 1963

Fædd og uppalin í Deildartungu í Borgarfirði. Fyrir aldamótin átti hún hlut í stofnun bindindisfélags og nokkru seinna var hún ein af stofnendum ungmennafélagsins Íslendings og í stjórn þess. Guðrún kvæntist árið 1912 Páli Zóphaníassyni sem síðar varð skólastjóri á Hólum. Þau bjuggu fyrst að Hvanneyri og að Kletti í Reykholtsdal, fluttu svo í Hóla árið 1920 þar sem þau bjuggu í átta ár. Fluttu til Reykjavíkur það sama ár og bjuggu þar til æviloka. Guðrún og Páll eignuðust sex börn.

Zóphónías Pálsson (1915-2011)

  • S01184
  • Person
  • 17. apríl 1915 - 15. maí 2011

Zóphónías Pálsson fæddist á Hvanneyri í Borgarfirði 17. apríl 1915. ,,Hann var næstelstur sex barna hjónanna Guðrúnar Hannesdóttur frá Deildartungu í Borgarfirði og Páls Zóphóníassonar, alþingismanns og búnaðarmálastjóra. Zóphónías ólst upp á Hólum í Hjaltadal frá fjögurra ára aldri, þar sem faðir hans var skólastjóri Bændaskólans, en 1928 fluttist hann með foreldrum sínum til Reykjavíkur. Að loknu stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík stundaði Zóphónías nám í mælingaverkfræði við Landbúnaðarháskólann í Kaupmannahöfn og lauk þaðan prófi árið 1939. Starfaði hann síðan í Danmörku, aðallega hjá Geodætisk Institut, bæði í Óðinsvéum og í Kaupmannahöfn, fram til ársins 1945 er hann fluttist með fjölskyldu sinni heim til Íslands og hóf starf sem verkfræðingur hjá Skipulagi bæja og kauptúna. Var hann síðan yfirverkfræðingur þar árin 1950 til 1954 en þá var hann skipaður skipulagsstjóri ríkisins og gegndi hann því embætti til ársins 1985 er hann lét af störfum vegna aldurs. Zóphónías vann þar áfram um skeið að tilteknum skipulagsmálum og var einnig nokkur ár starfandi hjá varnarmáladeild utanríkisráðuneytisins. Árin 1945 til 1954 kenndi hann við Iðnskólann í Reykjavík og var prófdómari þar til 1985. Zóphónías var einnig prófdómari við verkfræðideild HÍ frá 1948 til 1985. Hann var félagi í Rótarýklúbbnum Reykjavík Austurbær frá stofnun hans árið 1963."
Hinn 20. desember 1940 kvæntist Zóphónías Lis Nellemann, þau eignuðust fjögur börn.

Gunnar Ólafsson (1858-1949)

  • S01197
  • Person
  • 13. apríl 1858 - 2. feb. 1949

Foreldrar: Ólafur Jónsson og k.h. Valgerður Gunnarsdóttir á Ögmundarstöðum í Staðarhreppi. Gunnar ólst upp með foreldrum sínum fram að fermingu, fór þá að Eyhildarholti og fermdist þaðan. Hann var svo í vinnumennsku næstu ár, þar til hann kvæntist árið 1885 Sigurlaugu Magnúsdóttur frá Utanverðunesi. Fyrstu þrjú hjúskaparár sín bjuggu þau að Vík í Staðarhreppi en fluttu að Keflavík í Hegranesi 1888 þar sem þau bjuggu til æviloka. Meðfram búskapnum stundaði Gunnar veiðskap. Gunnar og Sigurlaug eignuðust 14 börn saman, 13 þeirra komust á legg. Fyrir hjónaband hafði Gunnar eignast einn son með Arnbjörgu Hannesdóttur.

Hannes Guðvin Benediktsson (1896-1977)

  • S01207
  • Person
  • 19. janúar 1896 - 27. september 1977

Sonur Benedikts Þorsteinssonar b. í Birkihlíð, Kimbastöðum og Gili og s.k.h. Sigurborgar Jóhannesdóttur. Árið 1918 kvæntist Hannes Sigríði Björnsdóttur frá Skefilsstöðum og bjuggu þau þar fyrstu hjúskaparár sín. Árið 1921 fluttust þau að Hvammkoti og þaðan 1937 að Hvammi í Laxárdal þar sem þau bjuggu til 1943 er þau fluttu til Sauðárkróks. Stuttu eftir flutningana til Sauðárkróks slitu þau samvistum og upp frá því settist Hannes að á Akureyri. Hann var póstur á Skaga frá árinu 1937 og sinnti því starfi þar til hann fluttist til Sauðárkróks. Einnig höfðu þau hjón umsjón með símstöðinni í Hvammi meðan þau bjuggu þar. Eftir að hann fluttist til Akureyar starfaði hann í klæðaverksmiðjunni Gefjunni og varð þar fyrir því slysi að missa annan framhandlegg við olnboga. Hannes og Sigríður eignuðust sjö börn.

Þórunn Ólafsdóttir (1884-1972)

  • S01212
  • Person
  • 14.04.1884-28.11.1972

Fædd og uppalin í Reykjavík. Hún lærði herrafatasaum og þar syðra mun hún hafa kynnst Pétri Zophoníassyni frá Viðvík. Kom hún norður í Viðvík vorið 1904 sem unnusta hans og taldi sig sitja þar í festum. En málin þróuðust á annan veg því Pétur búsettist syðra og kvæntist annarri stúlku árið 1906. Þórunn var áfram í Viðvík með dóttur þeirra. Árið 1908 leystist heimilið í Viðvík upp, Þórunn réðst þá út að Hraunum í Fljótum með dóttur sína þar sem hún stundaði mest saumaskap og fataviðgerðir. Árið 1912 kvæntist hún Þórði Guðna Jóhannessyni frá Sævarlandi. Þau bjuggu í Hrúthúsum í Fljótum 1914-1915, á Siglufirði 1915-1931 en það sama ár skildu þau, þau eignuðust sex börn saman. Þórunn vann alla tíð við saumaskap, auk þess sem hún gekk til verka utan heimilis, svo sem síldarsöltun á sumrin, eins og flestallar húsmæður á Siglufirði á þeim tíma.

Sæmundur Sigurjón Sigfússon (1879-1960)

  • S01215
  • Person
  • 1. júlí 1879 - 15. júlí 1960

Lærisveinn á Hólum, Hólasókn, Skag. 1901. Kennari, búfræðingur og hótelstjóri á Sauðárkróki. Síðast bús. í Reykjavík.

Jón Björnsson (1879-1961)

  • S01216
  • Person
  • 02.02.1879-10.03.1961

Foreldrar: Björn Jónsson b. í Gröf og k.h. Hólmfríður Jónatansdóttir ljósmóðir. Jón Björnsson ólst upp í Gröf til 17 ára aldurs. Jón lærði smíðar hjá Þorsteini Sigurðssyni trésmíðameistara á Sauðárkróki og síðar hjá Steingrími Guðmundssyni í Reykjavík, 1896 tók Jón sveinspróf í trésmíði og settist eftir það að í Skagafirði og kom að byggingu íbúðarhúsa, kirkna og brúa svo eitthvað sé nefnt. Árið 1913 gekk Jón að eiga Pálínu Pálsdóttur frá Ljótsstöðum og byrjaði búskap á þeirri jörð 1914. Þó Jón stundaði búskap með góðum árangri, var hann víða við smíðar. Jón gegndi trúnaðarstörfum í Hofshreppi, sat í hreppsnefnd um skeið, sóknarnefnd og skólanefnd en vildi þó gjarnan losna við opinber störf. Árið 1935 hættu hjónin búskap og fluttust til Siglufjarðar þar sem hann kom sér upp eigin trésmíðaverkstæði. Jón og Pálína eignuðust sex börn.

Pétur Marinó Runólfsson (1906-1962)

  • S01221
  • Person
  • 13.01.1906 - 02.02.1962

Pétur Marinó Runólfsson fæddist 13. janúar 1906 í Böðvarsdal í Vopnafirði. Hann var bóndi í Efra-Ási í Hjaltadal 1933-1962. Eftir uppvaxtarárin í Böðvarsdal hóf Pétur nám í Bændaskólanum á Hólum árið 1928 og útskrifaðist sem búfræðingur vorið 1930. Hann var búsettur í Hólahreppi eftir það. Þremur árum seinna hóf hann búskap á hálfri jörðinni Efra-Ási. Þar bjó hann öll sín búskaparár, lengst af í fjórbýli. Pétur sat í hreppsnefnd Hólahrepps 1942-1954 og í skólanefnd 1942-1946. Hann var í stjórn og formaður Búnaðarfélags Hólahrepps 1949-1962. Hann var einnig í stjórn nautgriparæktarfélagsins Auðhumlu í Hólahreppi og Sauðfjárræktarfélagi Hólahrepps um tíma. Pétur hafði yndi af tónlist og söng í Kirkjukór Hólakirkju. Kona hans var Helga Ástríður Ásgrímsdóttir (1909-1991), þau eignuðust þrjú börn saman og tóku einn fósturson.

Rögnvaldur Jónsson (1856-1926)

  • S01220
  • Person
  • 17. sept. 1856 - 2. júlí 1926

Foreldrar: Jón Jónsson b. á Arnarstöðum í Sléttuhlíð og víðar og k.h. Gunnhildur Hallgrímsdóttir. Bóndi á Þrastarstöðum 1884-1886, á Geirmundarhóli í Hrollleifsdal 1886-1889, í Miðhúsum í Óslandshlíð 1889-1914, í húsmennsku 1914-1917, byggði ásamt konu sinni upp nýbýlið Hlíðarenda úr landi Miklabæjar í Óslandshlíð árið 1917 og bjó þar til dauðadags. Kvæntist Steinunni Helgu Jónsdóttur frá Þrastarstöðum, þau eignuðust fimm börn, fjögur þeirra komust á legg. Rögnvaldur var smiður bæði á járn og tré og eftirsóttur við veggjahleðslu og hvers konar byggingarvinnu. Hann var einn af stofnendum bindindisfélagsins ,,Tilreyndin" í Óslandshlíð 1898 er síðar varð Ungmennafélagið Geisli, nú Neisti.

Jón Gunnar Rögnvaldsson (1895-1921)

  • S01217
  • Person
  • 7. feb. 1895 - 11. sept. 1921

Sonur Rögnvaldar Jónssonar og Steinunnar Helgu Jónsdóttur sem lengst bjuggu að Miðhúsum í Óslandshlíð. Fór til Vesturheims 1913 frá Miðhúsum, Hofshreppi, Skag. Hermaður í kanadíska hernum í fyrri heimsstyrjöld.

Samband norðlenskra kvenna (1914-)

  • S01223
  • Félag/samtök
  • 17.06.1914

Samband norðlenskra kvenna var stofnað á Akureyri 17. júní 1914. Sambandið var stofnað fyrir forgöngu Halldóru Bjarnadóttur og fór stofnfundurinn fram í Gagnfræðaskólanum.

Fyrsta stjórnin var skipuð Halldóru Bjarnadóttur, Akureyri, Hólmfríði Pétursdóttur, Arnarvatni og Rannveigu H. Líndal frá Lækjarmóti.
Samkvæmt 3. grein hinna fyrstu laga sambandsins er tilgangur sambandins „að efla samúð og samvinnu meðal kvenna og styðja hverskonar menningar- og mannúðarstarfsemi á félagssvæðinu og vera tengiliður kvenfélagasambandanna í Norðlendingafjórðungi“.

Árni Gíslason (1930-)

  • S01224
  • Person
  • 21.01.1930

Árni Gíslason fæddist í Eyhildarholti í Rípurhreppi í Skagafirði þann 21. janúar 1930. Hann er búfræðingur að mennt, nam á Hólum og var bóndi í Eyhildarholti í áratugi. Þá var Árni hreppstjóri hreppsnefndar Rípurhrepps 1974-1998 og hreppsnefndaroddviti 1986-1994.
Kona hans var Ingibjörg Sveinsdóttir (1936-2018).

Sigrún Hróbjartsdóttir (1927-2015)

  • S01225
  • Person
  • 23.05.1927 - 16.10.2015

Sigrún Hróbjartsdóttir fæddist 23. maí 1927 og var dóttir hjónanna Hróbjartar Jónassonar frá Hróarsdal og Vilhelmínu Helgadóttur. Sigrún lauk námi við Húsmæðraskólann á Löngumýri árið 1950 og var síðar húsfreyja og bústýra á Hamri í Rípurhreppi í Skagafirði. Maður hennar var Einar Kristinsson frá Vopnafirði og eignuðust þau fjögur börn. Sigrún sinnti ýmsum félagsstörfum samhliða bústörfunum og var m.a. formaður Kvenfélags Rípurhrepps og ritari Sóknarnefndar Rípurkirkju. Sigrún lést 16. október 2015.

Sigrún Aadnegard (1944-)

  • S01229
  • Person
  • 26.06.1944

Sigrún Aadnegard fæddist 26. júní 1944.
Hún er húsfreyja á Bergsstöðum í Skagafirði.
Hún var um tíma formaður Sambands skagfirskra kvenna og forstöðumaður Félagsheimilisins Ljósheima.
Sigrún stóð að stofnun Kvenfélagsins Framfarar í Skarðhreppi og var hún fyrsti formaður þess.
Maður hennar er: Andrés Viðar Ágústsson (1942-).

Pétur Hannesson (1893-1960)

  • S00028
  • Person
  • 17.06.1893-13.08.1960

Pétur Hannesson var fæddur á Skíðastöðum, Neðribyggð, Skagafirði árið 1893. Faðir hans var Hannes Pétursson (1857-1900) bóndi á Skíðastöðum, móðir hans var Ingibjörg Jónsdóttir (1857-1945) húsfreyja á Skíðastöðum. Pétur var við nám í Unglingaskólanum í Vík í Skagafirði 1908-1909. Útskrifaðist sem búfræðingur frá Bændaskólanum á Hólum 1911. Lærði ljósmyndun hjá Hallgrími Einarssyni á Akureyri árið 1914 til 1915 og framhaldsnám í sömu iðn hjá Carli Ólafssyni í Reykjavík 1917-1918. Pétur var verslunarmaður á Sauðárkróki 1912-1914. Keypti ljósmyndastofu Jóns Pálma árið 1914 og rak þar ljósmyndastofu frá 1915 til 1928. Starfaði sem gjaldkeri í Sparisjóði Sauðárkróks 1923-1932 og sem sparisjóðsstjóri þar frá 1932-1946 og aftur 1951 til 1954. Var starfsmaður endurskoðunardeild Landsbankans í Reykjavík 1946-1947. Skrifstofustjóri Skömmtunarskrifstofu ríkisins 1947-1948. Póstafgreiðslumaður á Sauðárkróki 1948-1958 og símstjóri frá 1954 til 1958. Póstafgreiðslumaður í Kópavogi 1958 til 1960. Starfaði einnig sem fréttaritari Ríkisútvarpsins árið 1949-1958.

Niðurstöður 5101 to 5185 of 6397