Lárus Stefánsson Thorarensen sýslumaður og bóndi að Enni á Höfðaströnd. Faðir: Stefán Þórarinsson konfersráð, amtmaður. Móðir: Ragnheiður Vigfúsdóttir Scheving.
Lárus fæddist að Möðruvallaklaustri 1799. Hann ólst upp hjá Vigfúsi sýslumanni Scheving, afa sínum, á Víðivöllum og síðar í Viðey. Lárus fór utan og nam lög við háskólann (líklega Kaupmannaháskóla). Hann lauk embættisprófi 1821. Var svo í rentukammerinu (sem "volonteur") þar til honum var veitt Skagafjarðarsýsla 13. maí 1826. Kom til landsins það sama sumar og settist til að byrja með að á Hofsósi. Ári síðar (1827) giftist hann Elínu [Elín Christine Jakobsdóttir Havsteen (um 1800-24.08.1873)] en hún var dóttir Jakobs Havsteen, kaupmanns á Hofsósi. Lárus reisti svo bú á Enni á Höfðaströnd.
Published
Partial
Final
SUP
IS-HSk
Bréf Lárusar Thorarensen sýslumanns til hreppstjóranna í Akrahreppi varðandi bólusóttina.
HSk