- Á Sturlungaslóð í Skagafirði / höfundar efnis Árni Daníel Júlíusson og Sigríður Sigurðardóttir ; höfundur mynda Jóhannes Geir Jónsson ; umsjón með útgáfu Unnar Ingvarsson. Héraðsskjalasafn Skagfirðinga, Byggðasafn Skagfirðinga, Hólaskóli, Sauðárkróki, 2003. (http://leitir.is/ICE:ICE:ICE01_PRIMO000593623 )
Jóhannes Geir Jónsson fæddist á Sauðárkróki 24. júní 1927. Faðir: Jón Þ. Björnsson frá Veðramóti, kennari og síðar skólastjóri á Sauðárkróki (1882-1964). Móðir: Geirlaug Jóhannesdóttir húsfreyja (1892-1932). ,,Jóhannes Geir ólst upp á Sauðárkróki, gekk í barnaskólann og unglingaskólann þar og var tvo vetur í Menntaskólanum á Akureyri 1941-43. Hann nam við Handíða- og myndlistarskólann 1946-48, þar sem aðalkennarar hans voru Kurt Zier og Kjartan Guðjónsson. Árið 1948-49 var hann í Konunglegu listaakademíunni í Kaupmannahöfn, þar sem hann naut handleiðslu Axels Jörgensen. Jóhannes Geir hélt um tylft einkasýninga og tók þátt í á þriðja tug samsýninga, heima og erlendis. Verk eftir hann er að finna í öllum helstu listasöfnum landsins og að auki í einkasöfnum austanhafs og vestan." Jóhannes eignaðist son með Ástu Sigurðardóttur rithöfundi.
,,Jóhannes Geir er af mörgum talinn meðal helstu fulltrúa hins tjáningarríka raunsæis, þ.e. expressjónismans, í íslenskri myndlist. Meðal þekktustu myndverka hans eru "endurminningarmyndirnar" svonefndu, olíumálverk, teikningar og pastelmyndir frá árunum 1964-70, þar sem listamaðurinn gengur á hólm við ýmsar sársaukafullar tilfinningar og minningar frá æskuárum. Á seinni árum beindi Jóhannes Geir sjónum sínum aðallega að íslensku landslagi, einkum og sér í lagi staðháttum í heimabyggð sinni, og gæddi myndefni sitt sjaldgæfum ljóðrænum þokka og sögulegu innsæi."
Published
Hluti af myndaseríu: Sturlungaöld. 11 myndir.
"Hólabardagi 1209. Að tilstuðlan Haukdælingsins Þorvaldar Gissurarsonar í Hruna slóust sunnlenskir og borgfirskir bændur í lið með Arnóri Tumasyni að hefna Kolbeins Tumasonar og tóku upp erindi hans frá Víðinesi. Með þeim voru þeir bræður Sighvatur og Snorri Sturlusynir. Slí í brýnu á Hólum, en biskup var liðfár og gerði Arnór honum þá kosti að létta af þeim bannfæringunni og bauð á móti grip fyrir sakamenn þá sem biskup hélt hlífiskildi yfir. Neitaði biskup þar til Snorri bauð honum með sér í Reykholt og reið með hann brott af Hólastað, en sakamenn þeir sem Kolbeinn hafði sektað voru dregnir úr kirkju og höggnir." (Á Sturlungaslóð í Skagafirði, Sauðárkróki, 2003. Bls. 18).
Gjöf listamannsins til Listasafns Skagfirðinga.
Óheimilt að nota ljósmyndirnar án leyfis Listasafns Skagfirðinga.