Showing 128 results

Archival descriptions
Kristbjörg Bjarnadóttir: Skjalasafn Item
Advanced search options
Print preview Hierarchy View:

Afmælisljóð S.S.K. eftir Emmu Hansen

Afmælisljóð Sambands skagfirskra kvenna eftir Emmu Hansen. Hið fyrra er við lagið „Ó, fögur er vor fósturjörð“ og byrjar svona: „Þú frjálsa víða fagra sveit“. Á bakhliðinni er afmælisljóð sem hefst svona: „Tengjum hönd við hönd...“.
Úr umslagi merkt: Kvenfélagið Hvöt, Fellshreppi, Guðrún Þórðardóttir, Höfða, Hofshreppi, árið 1981.

Ársskýrsla Kvenfélagsins Hvatar

Ársskýrsla Kvenfélagsins Hvatar 1988, formaður Guðrún Þórðardóttir, Höfða.
Með eru yfirlitsblöð yfir störf S.S.K. Einnig bréf er varðar S.N.K., dagsett á Akureyri , 2. október 1988. Listi yfir formenn kvenfélaga í S.S.K. 1988-1989 og heimsóknir kvenfélaga til Sjúkrahúss Skagfirðinga.

Ársskýrsla Kvenfélagsins Hvatar

Ársskýrsla Kvenfélagsins Hvatar 1986. Skýrslan er undirrituð á Hrauni, 25. apríl 1987, af Elínborgu Hilmarsdóttur, ritara.
Með er dagskrá formannafundar S.S.K. í Safnaðarheimilinu á Sauðárkróki, 18. október 1986. Einnig námskeið á vegum S.S.K. veturinn 1986-1987 og nefndir á vegum S.S.K., 1986.

Bréf til Sóknarnefndar Fellssóknar

Bréf kvenfélagskvenna í Hvöt til Sóknarnefndar Fellssóknar, dagsett í Felli 26.04.1981. Efni bréfs: Gjöf er Kvenfélagið Hvöt gefur Fellskirkju á aldarafmæli kirkjunnar.
Úr umslagi merkt: Kvenfélagið Hvöt, Fellshreppi, c/o Guðrún Þórðardóttir, Höfði, Hofshreppur, árið 1982.

Formannafundur

Formannafundur S.S.K. í Framsóknarhúsinu, 9. október 1981. Árdís Björnsdóttir, ritari skrifar undir fundinn. Með er listi yfir formenn kvenfélaga í Skagafirði 1981 og heimsóknir kvenfélaga til Sjúkrahúss Skagfirðinga.

Formenn kvenfélaga og heimsóknir kvenfélaga

Formenn kvenfélaga í Skagafirði 1983 og heimsóknir kvenfélaga til Sjúkrahúss Skagfirðinga. 2 eintök, annað þeirra virðist vera drög og er smá handskrifað í það.
Úr umslagi merkt: Kvenfélagið Hvöt, Fellshreppi, c/o Guðrún Þórðardóttir, Höfði, Hofshreppur, árið 1983.

Formenn kvenfélaga og heimsóknir kvenfélaga

Formenn kvenfélaga í Sambandi skagfirskra kvenna veturinn 1986-1987 og heimsóknir kvenfélaga til Sjúkrahúss Skagfirðinga.
Getið er um stjórn S.S.K.:
Solveig Arnórsdóttir, Útvík.
Ingibjörg Jóhannesdóttir, Miðgrund.
Lovísa Símonardóttir, Sauðárkróki.
Sigurbjörg Bjarnadóttir, Bjarnagili.
Með eru upplýsingar um nokkur kvenfélög í Skagafirði (líklega blaðsíða úr ársskýrslu).
Úr umslagi merkt: Kvenfélagið Hvöt, Fellshreppi, Guðrún Þórðardóttir, Höfða, Hofshreppi, árið 1986.

Jólakort

Jólakort, dagsett á Hofsósi 20.12.1957. Jobba Kristrún Guðmundsdóttir er sendandi. Kortið er til Kvenfélagsins í Fellshreppi, Felli.
Framan á umslagi stendur: Til Kvenfélagsins í Fellshreppi, c/o Frú Sigurbjörg Tómasdóttir, Felli. Jólin 1957.

Kvennaathvarfið

Ýmislegt um Kvennaathvarfið. Nafn Kvenfélagsins Hvatar handskrifað á forsíðu. Fremst er bréf, dagsett í Reykjavík 7. október 1989. Handskrifuð undirskrift: Nanna Christiansen, fræðslu- og kynningarfulltrúi.
Með er bæklingurinn Samhjálp gegn sifjaspellum.

Kvittun fyrir peningagjöf

Blindrafélag Íslands, kvittun fyrir móttöku á peningagjöf frá Kvenfélaginu Hvöt. Dagsett í Reykjavík 1958. Handskrifuð undirskrift: Guðlaug Einarsdóttir.
Úr umslagi merkt: Kvenfélagið Hvöt, Fellshreppi, c/o Guðrún Þórðardóttir, Höfði, Hofshreppur, árið 1982.

Lög um fóstureyðingar

Ljósrit af lögum um fóstureyðingar. Með er blaðagrein.
Í umslagi merkt: Kvenfélagið Hvöt, Fellshreppi, Guðrún Þórðardóttir, Höfða, Hofshreppi, árið 1985.
Umslagið er meðfylgjandi.

Mælifell

Efni bréfs: Fundarboð og dagskrá aðalfundar S.S.K., 30. apríl 1983. Með er umslag, stílað á formann Kvenfélagsins Hvatar, Guðrúnu Þórðardóttur, Höfða, Fellshreppi.

Mataræði móður og barns

Mataræði móður og barns til 7 ára aldurs. Valgerður Hildibrandsdóttir og Inga Þórsdóttir tóku saman.
Gefið út af Kvenfélagasambandi Íslands árið 1990, í tilefni af 60 ára afmæli þess.

Námskeið

Námskeið sem félögin eiga kost á.
Úr umslagi merkt: Kvenfélagið Hvöt, Fellshreppi, Guðrún Þórðardóttir, Höfði, Hofshreppur, árið 1984.

Reglugerð um heimilishjálp í sveitum

Reglugerð um heimilishjálp í sveitum með hliðsjón af því, að tveir hreppar hafi hana saman.
Reglugerð samin skv. lögum nr. 10 - frá 25. janúar 1952 um heimilishjálp í viðlögum.
Úr umslagi merkt: Kvenfélagið Hvöt, Fellshreppi, c/o Guðrún Þórðardóttir, Höfði, Hofshreppur, árið 1982.

Reikningsyfirlit

Reikningsyfirlit varðandi:
Gjafir frá kvenfélögunum í Skagafirði.
Minningarsjóður Sigurlaugar Gunnarsdóttur.
Styrktarsjóður G.Þ. Sveinsdóttur.
Tækjasjóður Sjúkrahúss Skagfirðinga.
Safnananir.
Úr umslagi merkt: Frú Guðrún Þórðardóttir, formaður Kvenfélagsins Hvatar, Höfða, 565 Hofsósi, árið 1983.

Reykjavík

Efni bréfs: Sjötugsafmæli Sigríðar Thorlacius fyrrverandi formanns Kvenfélagasambands Íslands, Norræna húsmæðrasambandsins og ristjóra Húsfreyjunnar. Handskrifuð undirskrift Maríu Pétursdóttur.

Samband norðlenskra kvenna, 38. aðalfundur

Fundargerð aðalfundar Sambands norðlenskra kvenna haldinn í Húsmæðraskólanum á Akureyri 5. júlí 1951.
Undir rita: Halldóra Bjarnadóttir og Sigríður Guðnadóttir, fundarstjórar og Svava Skaftadóttir og Jóhanna Jóhannsdóttir, fundarritarar.
Umslag með.

Samband norðlenskra kvenna, 43. aðalfundur

  1. aðalfundur Sambands norðlenskra kvenna haldinn í Kvennaskólanum á Blönduósi 1. júní 1956.
    Undir rita: Sólveig Benediktsdóttir, fundarritari og Þuríður Sæmundsen, fundarstjóri.
    Handskrifað á forsíðu: Kær kveðja, H.
    Á baksíðu seinasta blaðs er handskrifað: Frú Sigurbjörg Tómasdóttir, Felli, Fellshreppi, Skagafirði. Frímerki og stimpill.

Samband norðlenskra kvenna, 46. aðalfundur

Fundargerð 46. aðalfundar Sambands norðlenskra kvenna haldinn að Laugalandi í Eyjafirði 21.-23. júní 1959.
Undir rita: Sólveig Benediktsdóttir, ritari og Sigríður Einarsdóttir, fundarstjóri.
Á forsíðu er handskrifað: Kær kveðja, Halldóra.
Á baksíðu síðasta blaðs er handskrifuð orðsending, líklega frá Halldóru.
Með er umslag merkt: Kvenfélagið „Hvöt“ Fellshreppi, Frú Sigurbjörg Tómasdóttir, Felli.

Samband norðlenskra kvenna, 58. aðalfundur

  1. aðalfundur Sambands norðlenskra kvenna haldinn að Húnavöllum 9.-11. júní 1971.
    Undir rita: Dómhildur Jónsdóttir, formaður, Sigríður Guðvarðsdóttir, Emma Hansen, ritari og Elín Aradóttir, vararitari.
    Á forsíðu er handskrifað: Kær kveðja, E.H.
    Með er bréf frá Náttúrulækningafélagi Akureyrar, dagsett 1. september 1971. Handskrifuð undirskrift: Laufey Tryggvadóttir.

Samband norðlenskra kvenna, 59. aðalfundur

Fundargerð 59. aðalfundar Sambands norðlenskra kvenna haldinn í veiðihúsinu við Laxamýri, S-Þing. 6.-7.júní 1972.
Undir rita: Emma Hansen, formaður, Sigríður Guðvarðsdóttir, gjaldkeri, María Jónsdóttir, ritari og Valgerður Ágústsdóttir, vararitari.

Samband norðlenskra kvenna, aðalfundur

Fundargerð aðalfundar Sambands norðlenskra kvenna haldinn í Barnaskólahúsinu á Dalvík 3. júlí 1953.
Undir rita: Svava Skaftadóttir, Akureyri, ritari og Halldóra Bjarnadóttir, Akureyri, fundarstjóri.
Með eru lög sambandsins, útgefin 1950.

Results 1 to 85 of 128