Showing 35 results

Archival descriptions
Adolf Björnsson: Ljósmyndir
Print preview Hierarchy View:

33 results with digital objects Show results with digital objects

Adb myndir 01

Konan sem er að heilsa manninum á miðri mynd er sennilega Stefanía Anna Frímannsdóttir (kona Adolfs) annað fólk óþekkt svo og staðurinn.

Adolf Ingimar Björnsson (1916-1976)

Adb myndir 04

F.v. Guðrún Gísladóttir, Ólína Björnsdóttir (með hatt) Hulda Sigurbjörnsdóttir (tilg.) og Stefanía Anna Frímannsdóttirn.

Adolf Ingimar Björnsson (1916-1976)

Adb myndir 07

Skagafjörður. Myndin tekin austan Sauðárkróks. Blönduhlíðarfjöll fjær t.v. Maðurinn óþekktur.

Adolf Ingimar Björnsson (1916-1976)

Adb myndir 12

Skemmtiferð hjá Iðnaðarmannafélagi Sauðárkróks til Ólafsfjarðar 10. ágúst 1952. Fararstjóri í ferðinni var Adolf Björnsson og bílstjóri Gísli Sigurðsson (Búddi) frá Sleitustöðum. Þess má geta að Guðrún Árnadóttir frá Lundi segir frá þessari ferð í tímaritinu Nýtt kvennablað 8. tbl 01.12. 1952. "Dálítil ferðasaga"
Fremst t.h. eru Hólmfríður Árnadóttir og Reynir Ragnarsson.
Næsta röð f.v. Guðrún Gísladóttir, Ingi Sveinsson, Gísli Sigurðsson (Búddi á Sleitustöðum) bílstjóri, Stefanía Þorláksdóttir, Þórður Jóhannesson og Þórður Sighvats.
Röð þrjú. F.v. Guðrún Árnadóttir frá Lundi (með hendi við höfuðið), Jónatan Jónsson, óþekkt, óþekktur (á bak við Búdda) og Ólína Björnsdóttir (með höfuðfat).
Röð fjögur f.v. Jón Þorfinnsson, Skarphéðinn Pálsson, Sigurjón Þóroddsson, (Stefanía Frímannsdóttir), Guðjón Sigurðsson og Jóhann Guðjónsson.
Röð fimm f.v. Unnur Hallgrímsdóttir, Ingólfur Nikódemusson og Ísak Árnason.
Næst aftast f.v. Gunnar Helgason, Hákon Pálsson og (tilg.) Jón Magnússon lengst t.h.
Aftast eru Kristján Skarphéðinsson t.v. og Hjalti Jósepsson.
Mynd svipuð þessari er í myndasafni Guðjóns Sigurðssonar.

Adolf Ingimar Björnsson (1916-1976)

Adb myndir 15

Mynd tekin sunnan Króksins þar sem blokkirnar eru nú. Mjólkursamlagið t.v. og Staðaröxl, Gilsbunga og Sandfell fjær.

Adolf Ingimar Björnsson (1916-1976)

Adb myndir 18

Sjá no 12 og Adb 24 og Gsig 89. Ferð Iðnaðarmanna til Ólafsfjarðar í ágúst 1952.
Það er Adolf Björnsson sem stendur fremst og fjær t.v. stendur með hatt Guðvarður Sigurðsson.

Adolf Ingimar Björnsson (1916-1976)

Adb myndir 23

Fyrir miðri mynd Gísli Sigurðsson (Búddi) frá Sleitustöðum og hægra megin við hann Sigurjón Þóroddsson. Guðjón Sigurðsson er annar f.h. (með hatt). Hugsanlega tekið í ferð iðnaðarmanna til Ólafsfjarðar í ágúst 1952 (Sjá no 12).

Adolf Ingimar Björnsson (1916-1976)

Adb myndir 30

Frystihólf í frystihúsi KS sem fólk gat leigt sér til geymslu matvæla.

Adolf Ingimar Björnsson (1916-1976)