Showing 3167 results

Archival descriptions
Guðjón Ingimundarson: Skjalasafn
Advanced search options
Print preview Hierarchy View:

2165 results with digital objects Show results with digital objects

Tillögur 1963

Tillaga um merkingu gatna, tillaga um rekstur Fiskivers Sauðárkróks, tillaga vegna atvinnumála, breytingartillaga v. Alþýðuhúss, tillaga um Framkvæmdasjóð.

Tillögur í málefnum KS 1960

Álit og tillögur í málefnum MS og KS. Flutningsmenn tillögunnar voru Jón Jónsson Hofi á Höfðaströnd, Gunnlaugur Björnsson á Brimnesi, Kristján Karlsson skólastjóri á Hólum, sr. Lárus Arnórsson Miklabæ og Arngrímur Sigurðsson í Litlu-Gröf.

Umboð 1956

Umboð veitt Þorgilsi Guðmundssyni á Fræðslumálaskrifstofunni í Reykjavík til þess að taka lán fyrir Guðjón í Lífeyrissjóði barnakennara.

UMSS

Margvísleg gögn tengd UMSS sem komu úr fórum Guðjóns Ingimundarsonar. Guðjón var í stjórn UMSS 1942-1973 og þar af formaður í 29 ár.

Guðjón Ingimundarson (1915-2004)

UMSS 75 ára - grein

Grein skrifuð í tilefni af 75 ára afmæli UMSS þar sem farið er yfir sögu félagsins. Greinin var send riti ÍSÍ það sama ár en var ekki birt fyrr en 1987 og þá mjög stytt.

Ungmennafélagið Tindastóll

Ýmis gögn tengt Ungmennafélaginu Tindastóli sem komu úr fórum Guðjóns Ingimundarsonar en hann var formaður Ungmennafélagsins Tindastóls í fimm ár og í stjórn í alls níu ár.

Guðjón Ingimundarson (1915-2004)

Úr gjörðabók bæjarstjórnar 1960

Afrit úr gjörðabók bæjarstjórnar Sauðárkróks í ágúst 1960. Undir fundargerðina rita Guðjón Sigurðsson, Guðjón Ingimundarson, Kári Jónsson, Sigurður P. Jónsson, Skafti Magnússon og Árni Þorbjörnsson.

Úrslit í Grettissundi 1940-1996

Yfirlit yfir keppendur og úrslit í Grettissundi 1940-1996 og þar með yfirlit yfir handhafa Grettisbikarsins þessi ár. Forsaga þessarar keppni er sú að þegar sundlaugin í Varmahlíð var vígð árið 1939 gaf Skagfirðingafélagið í Reykjavík lauginni bikar, svokallaðan Grettisbikar, til þess að keppa um í sundlauginni í 500 m. sundi og öðlast þar með titilinn "sundkappi Skagfirðinga".

Guðjón Ingimundarson (1915-2004)

Við ána

Nafn höfundar er ekki skráð en líklegt er að Jón Jónsson Skagfirðingur hafi ort kvæðið þar sem Guðjón Ingimundarson virðist hafa vélritað mikið af kvæðum Jóns og fannst þetta í sömu möppu og kvæði eftir Jón.

Vísur á auglýsingatöflu 1974

Lausavísur á auglýsingatöflu bæjarstjórnarskrifstofunnar á Sauðárkróki 1974.

Ráðalausir labba um storð
leggjast svo til náða.
Loksins fundu lausnarorð
látum Bakkus ráða.

Bakkusarvinur svarar:
Hver yrkir þannig? Álasar kóngsins megt,
sem ævinlega bætir þegnanna hag.
Allavega finnst mér forkastanlegt
að fárast yfir því, sem kippt er í lag.

Sífellt fremja ofaníát
ótta og hrolli slegin.
Virðast ætla að verða mát
veslings komma greyin.

Yfirlit yfir hæstu útsvör 1962

Frétt birt í Einherja í október 1962 þar sem er yfirlit yfir hæstu útsvör ásamt aðstöðugjaldi atvinnurekenda. Hæsta útsvarið bar Kaupfélag Skagfirðinga eða 534.200 kr. Hæsta útsvar einstaklinga bar Ole Bang lyfsali eða 33.900 kr.

Yfirlýsing 1963

Yfirlýsing frá Sigurði Stefánssyni, Brynjólfi Danívalssyni, Ármanni Helgasyni, Valdimari Péturssyni, Árna Hansen, Skafta Magnússyni, Valgarði Björnssyni, Pétri Jónassyni og Guðmundi Andréssyni þess efnis að þeir vilji ekki að nöfn þeirra séu sett á B-lista, enda styðji þeir A-lista.

Yfirlýsing frá bæjarfulltrúum 1968

Yfirlýsing frá bæjarfulltrúum Alþýðuflokksins og Framsóknarflokksins v. ákvörðunar Alþýðubandalagsins að rifta samstarfi um meirihluta í bæjarstjórn Sauðárkróks 1968. Undir yfirlýsinguna rita Guðjón Ingimundarson, Marteinn Friðriksson, Stefán Guðmundsson og Erlendur Hansen.

Results 3061 to 3145 of 3167