Sýnir 3167 niðurstöður

Lýsing á skjalasafni
Guðjón Ingimundarson: Skjalasafn
Prenta - forskoðun Hierarchy View:

2165 niðurstöður með stafrænum einingum Sýna niðurstöður með stafrænum einingum

Erindi til stjórnar KS 1954

Erindi til stjórnar og framkvæmdastjóra Kaupfélags Skagfirðinga, stílað á Svein Guðmundsson sem var þá starfandi framkvæmdastjóri. Undir erindið ritar Guðmundur Björnsson trésmiður sem hóf störf sem verkstæðisformaður á trésmíðaverkstæði K.S. árið 1950.

Guðjón Ingimundarson (1915-2004)

Bókun 1961

Bókun Skafta Magnússonar og Erlendar Hanssen við afgreiðslu reikninga Sauðárkrókskaupstaðar fyrir árin 1959-1960 á fundi bæjarstjórnar haustið 1961.

Fréttir frá Sauðárkróki 1954

Fréttir frá Sauðárkróki í desember 1954. Þar kemur meðal annars fram að á þessum tíma hafi margir bæjarbúar átt fé og telur Guðjón að um 1770 fjár sé í bænum, 50 naugripir og 55 hross.

Við ána

Nafn höfundar er ekki skráð en líklegt er að Jón Jónsson Skagfirðingur hafi ort kvæðið þar sem Guðjón Ingimundarson virðist hafa vélritað mikið af kvæðum Jóns og fannst þetta í sömu möppu og kvæði eftir Jón.

Réttindi á heitu vatni 1951

Samningur um réttindi á heitu vatni og boranir eftir heitu vatni í Sjávarborgarlandi árið 1951. Samningsdrögin liggja með. Samninginn undirrita Björgvin Bjarnason þáverandi bæjarstjóri og þáverandi eigendur Sjávarborgar og Borgargerðis; Þorsteinn Árnason, Haraldur Árnason og Kristmundur Bjarnason.

Greinargerð atvinnumálanefndar 1952

Greinargerðin er nokkuð ítarleg og þar er eftirfarandi tekið til umfjöllunar: staðbundið atvinnuleysi, atvinnutæki og iðnað, fiskibáta, landbúnað, hafnarmál og fleira. Undir greinagerðina rita Guðjón Sigurðsson og Magnús Bjarnason.

Styrkumsókn 1942

Umsókn um styrk úr íþróttasjóði fyrir Varmahlíðarskóla. Upphæðin sem sótt var um var 3500 kr. og var upphæðin ætluð a). kaldri vatnsleiðslu til sundlaugarinnar, b). til endurbóta á heitum vatnsleiðslum, c). til upphitunar á búningsherbergjum og byggingar á baðklefum. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 10.000 kr.

Niðurstöður 1 to 85 of 3167