Karen Hulda Steindórsdóttir (1967-) tekur við viðurkenningum fyrir góðan námsárangur í FNV við útskrift vorið 1996 úr hendi Jóns Friðbergs Hjartarsson (1947-) skólameistara.
Frá vinstri, Erna María Jensdóttir (1982-), Hrafnhildur Alfreðsdóttir (1982-), Anna Katrín Guðmundsdóttir (1982-) og Gestur Sigurjónsson (1982-) við Þökulagningu.
Frá vinstir. Rúnar Bachmann, Guðmundur Gunnarsson (1945-) formaður Rafiðnaðarsambandi Íslands, Björgvin M. Guðmundsson (1954-), Jón Friðberg Hjartarsson (1947-) skólameistari. Hugsanlega verðið að taka við kennslutækjum til Fjölbrautaskólans að gjöf frá Rafiðnaðarsambandinu í janúar 2000.
Frá vinstri. Valgeir Kárason og Jón Friðberg Hjartarsson skólameistari (1947-) hugsanlega að skoða kennslutæki fyrir rafiðnaðardeild Fjölbrautaskólans sem Rafiðnaðarsambandið gaf skólanum í janúar 2000.
Vígsla Vesturfarasetursins. 7. júlí 1996. Valgeir Sigfús Þorvaldsson (1961-) heldur ræðu. Halldór Blöndal samgöngu- og ferðamálaráðherra er fremstur t.v.
Ættum Austur-Húnvetninga fagnað með útgáfuteiti í Félagsheimilinu á Blönduósi haustið 1999. Frá vinstri Steingrímur Steinþórsson (1951-), Ívar Gissurarson (1953-), Þórhildur Ísberg (1925-) og Elínborg Jónsdóttir (1921-2007) Skagaströnd, formaður Sögufélags Húnvetninga. .
Íslensk erfðagreining og Heilbrigðisstofnunin á Sauðárkróki stóðu fyrir fundi á Kaffi Krók haustið 1998 um miðlægan gagnagrunn. T.h. talar Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. Fyrir miðju er Friðrik J. Friðriksson læknir.
Við setningu Sæluviku í Safnahúsinu á Sauðárkróki vorið 1998 var opnuð sýning á trélist. Næst eru f.v. Jón Gissurarson Víðamýraseli, Hrólfur Jóhannesson, Sigríður Ragnarsdóttir og Birna Guðjónsdóttir.
Forráðamenn fiskeldisfyrirtækisins Máka fyrir framan seiðaeldisstöðina að Lambnesreykjum í Fljótum haustið 1998. Frá vinstri Vilhjálmur Bjarnason, óþekktur, óþekktur Haraldur J. Haraldsson, Árni Egilsson, Guðmundur Örn Ingólfsson framkvæmdastjóri Máka, Halldór Halldórsson dómari og óþekktir.
Frá kaffisamsæti í Árgarði vorið 1998 til heiðurs Indriða G. Þorsteinssyni (1926-2000) rithöfundi. F.v. Indriði, Hrönn Sveinsdóttir (kona Indriða) og Hjalti Pálsson.
Frá setningu Landsmóts hestamanna á Vindheimamelum árið 2002. Fremst t.h. Anna Sif Ingimarsdóttir. Aftan við hana heiðursgestir mótsins. F.v. Ólafur Ragnar Grímsson (1943-) forseti Íslands, Anna Bretaprinsessa og Jón Albert Sigurbjörnsson formaður LH.
Heiðursgestir á Landsmóti hestamanna á Vindheimamelum sumarið 2002 ásamt Eysteini Leifssyni (annar f.h.).F.v. Dorrit Moussaieff, Ólafur Ragnar Grímsson (1943-) forseti, Anna Bretaprinsessa, Eysteinn, og Jón Albert Sigurbjörnsson formaður LH.
Frá vinstri Arna Dröfn Björnsdóttir (1975-), Rakel Rögnvaldsdóttir (1978-), Svanhildur Elsa Jónsdóttir (1942-), Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir (1981-), Auðunn Blöndal (1980-), Indriði Þór Einarsson (1979-), Guðbrandur Jón Frímannsson (1922-2000), Ásdís Guðmundsdóttir (1963-), Guðbrandur Jón Guðbrandsson (1964-). Leikhópur úr revíunni Glaðar tíðir eftir Jón Ormar Ormsson sem Umf. Tindastóll setti upp árið 1997 í tilefni af 90 ára afmæli félagsins. Myndin er tekin í barnaskólnum þar sem Rás 1 tók upp söngvana úr revíunni.
Til vinstri Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson (1963-) og Bára Jónsdóttir. Leikfélag Sauðárkróks setti upp leikritið Deleríum búbónis eftir Jónas og jón Múla Árnasyni haustið 1983.
Leikfélag Skagastrandar setti upp "Stálblómið" síðla vetrar 1993, höfundur Róbert Hartiling, Leikstjóri Jónas Jónasson. Á sviðinu eru Jensína Lýðsdóttir, Sigrún Jónsdóttir og Lovísa Vatner.
Leikfélag Skagastrandar seti upp leikritið Stálblómið eftir Róbert Hartling árið 1993. Leikstjóri Jónas jónasson. F.v. Jensína Lýðsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Elín Njálsdóttir og Guðný Sigurðardóttir.
Samlestur Leikfélag Sauðárkróks á Sæluvikuleikritinu "Klerkar í klípu" sem sett var upp árið 1995. Frá vinstri Guðný Hólmfríður Axelsdóttir (1967-), Dagbjört Elva Jóhannesdóttir (1973), Einar Þorbergsson leikstjóri og Gunnar Bragi Sveinsson (1968-).
Leikritið, Karlinn í Kassanum, sem sett upp af Leikfélagi Sauðárkróks, árið 1994, leikstjóri Jón Ormar Ormsson. Frá vinstri Stefán Steinþórsson(1972-), Katrín María Andrésdóttir (1968-), Hjörvar Halldórsson (1975-).
Frá vinstri, Guðný Hólmfríður Axelsdóttir (1967-), Ragnar Jón Grétarsson, Stefán Steinþórsson (1972-), Katrín María Andrésdóttir (1968-). Leikritið Karlinn í Kassanum sett upp af Leikfélagi Sauðárkróks árið 1994. Leikstjóri Jón Ormar Ormsson.
Leikritið Pétur Gautur eftir Ibsen sem Leikfélag Sauðárkróks setti upp árið 1997. T.v. Gunnar Eyjólfsson (1926-), sem leikstýrði og leikur Pétur Gaut. Til hægri á myndinni er Bragi Haraldsson.
Hafsteinn Hannesson (1936-) var heiðraður af Leikfélagi Sauðárkróks árið 2002 á sýningu félagins á Galdra-Lofti. Formaður félagsins, Guðbrandur J. Guðbrandsson (1964-) veitir viðurkenninguna.
Úr leikritinu Áfram Latibær sem Leikfélag Sauðárkróks setti upp haustið 1998. Leikstjóri Sigurgeir Scheving. Lengst til hægri er Hrafnhildur Viðarsdóttir (1980-) og Vilhjálmur Ingimarsson sennilega fremstur.
Árið 1991 setti Leikfélag Sauðárkróks upp leikritið ,,Köttur á heitu blikkþaki" eftir Tennessee Williams. Leikstjóri Andrés Sigurvinsson t.h. og formaður Leikfélags Sauðárkróks, Skúli Björn Gunnarsson til vinstri.
Til vinstri, Haukur Þorsteinsson (1932-1993) og Jón Ormar Ormsson (1938-). Tilefnið 100 ára afmæli Sauðárkrókskirkju. (22. okt. 1992). Ath. Kirkjan okkar eftir Jón Ormar Ormsson, 1992.
Leikfélag Sauðárkróks setti upp barnaleikritið Kardemommubæinn eftir Thorbjörn Egner í leikstjórn Guðjóns Inga Sigurðssonar haustið 1987. Á myndinni er Hrólfur Viðar Bragason (1964-) sem Jónatan.
Leikflokkurinn á Hvammstanga setti upp leikritið Maður og kona eftir Jón Toroddsen árið 1991 í leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Gísli Einarsson (1967-) í miðröð annar frá vinstri. Aðrir óþekktir.
Frá vinstri, Sigfríður Sigurjónsdóttir (1968-), Addi Rokk frá Möðrudal og , Svanhildur Harpa Kristinsdóttir (1969-). tróðu upp á skemmtun í Höfðaborg á Hofsósi sem haldin var þegar "Græni herinn " kom til Hofsóss sumarið 1999.
Leikfélag Siglufjarðar. Tilg. Hassið hennar mömmu sett upp 1987. Frá vinstri Kristín Halldórsdóttir, Þórólfur Tómasson, Kolbeinn Engilbertsson, Helgi K. Hannesson, Ingi Hauksson og fremstur Elvar Elefsen.
Við útskrift í FNV vorið 1996 var listaverkið NAM eftir Finnu Birnu Steinsson afhjúpað. Frá vinstri, Finna Birna Steinsson listamaður, Ragnar Arnalds (1938-) alþingismaður og Jón Friðberg Hjartarsson (1947-) skólameistari.
Kynningardagur á Hólaskóla vorið 1999. Nemendur hrossaræktarbrautar gáfu góðfúslegar upplýsingar um námið. Þekkja má Hjalti Páll Þórarinsson Vogum Kelduhverfi, annan f.v. í aftari röð og Rósu Maríu Stefánsdóttur frá Akureyri fjórðu f.v. í aftari röð.