Íslandsmeistarar í körfubolta karla árið 1976,. 3. fl. Tindastóls. Aftari röð frá vinstri Friðrik Jónsson (1960-), Guðmundur Sveinsson (1960), Karl Ólafsson (1960), Örn Ragnarsson (1960-), Þorsteinn Reynir Þórsson (1960-) og Birgir Rafn Rafnsson (1960-). Fremri röð Ingvi Geirmundsson (1960-), Sigurður Guðjónsson (1960-), Sigurjón Magnússon (1960-), og Jóhann Helgi Ingólfsson (1960-).
Tilgáta. Frá 50 ára vígsluafmæli Siglufjarðarkirkju í lok ágúst 1982, en þá var jafnframt tekið í notkun safnaðarheimili á kirkjuloftinu, en áður hafði loftið verið notað til kennslu. Pétur Sigurgeirsson biskup er lengst t.v. og Auður Auðuns ráðherra við hlið hans.
Fyrirlestur í Safnahúsinu vorið 1988 þar sem Ásgeir S. Björnsson er með fyrirlestur um Daníel Bruun og rannsóknir hans. Fremstir eru Hjalti Pálsson t.v. og Örlygur Hálfdánarson.
Kofabyggð vestan við sjúkrahúsið á Sauðárkróki sumarið 1984. Edda Lúðvíksdóttir (1955-) t.v. við kofann. Íris Baldvinsdóttir (1965-) með gítar og Guðfinna Gunnarsdóttir (1942-2012) situr með barn.
Skrifstofa Sjóvá sem opnaði nýja skrifstofu að Skagfirðingabraut 9 Skr. síðla vetrar 1988. Umboðsmaður Sjóvá er Anna Pála Guðmundsdóttir við borðið t.h. og starfsmaður er Ásdís Sigríður Hermannsdóttir (1949-). við borðið t.v. Viðskiptavinur er óþekktur.
Héldu hlutaveltu í vetrarbyrjun 1988. Frá vinstri: Margrét Ágústa Sigurðardóttir (1980-), Hafrún Anna Sigurbjörnsdóttir (1980-), Rakel Hermannsdóttir (1976-), Brynhildur Olga Haraldsdóttir (1977-) og Bára Waag Rúnarsdóttir (1977-).
Frá fundi um útivist og útivistarsvæði í Vatnahverfi við Blönduós sem JC- Húnabyggð hélt á Blönduósi vorið 1985. Snorri Björn Sigurðson (1951-) þáverandi sveitarstjóri á Blönduósi í ræðupúlti. Gísli J. Grímsson fundarstjóri t.v. Reynir Vilhjálmsson og Þorvaldur Ásgeirsson t.h.
1000 ára kristni í Húnaþingi minnst með hátið við Gullstein skammt frá Stóru-Giljá 19 júlí 1981. Við það tækifæri skírði Sigurbjörn Einarsson biskup stúlkubarn er hlaut nafnið Hulda Dóra. Þekkja má Erlend Eysteinsson Stóru-Giljá á miðri mynd en hann var afi stúlkunnar sem skírð var.
Líkfylgd við útför Ingólfs Nikódemussonar sem lést 31. júlí 1996 á Sjúkrahúsi Skagfirðinga. Félagar úr Björgunarsveitinni Skagfirðingasveit báru kistuna upp Kirkjustíginn í kirkjugarðinn.
Minnisvarði Þórdísar, dóttur Ingimundar gamla, í Þórdísarlundi. Sunnan undir Vatnsdalshólum er Þórdísarlundur, skógarreitur sem Húnvetningafélagið í Reykjavík hefur ræktað og sinnt frá árinu 1952. Í Þórdísarlundi er minnisvarði um fyrsta innfædda Húnvetninginn, Þórdísi dóttur Ingimundar gamla, en hún er talin hafa fæðst þar á hörpu árið 895. Þar nærri stendur veiðihúsið Flóðvangur sem Veiðifélag Vatnsdalsár lét reisa árið 1964. Gönguleið liggur frá Þórdísarlundi að Þrístöpum.
Fermingarfræðsla á Löngumýri árgangur 1975. Nemendur frá Varmahlíð og Blönduósi. Fullorðnu mennirnir eru t.v. sr. Ólafur Hallgrímsson á Mælifelli og t.h. sr. Árni Sigurðsson á Blönduósi.
Galdrakarlinn í Oz sem settur var upp af Leikfélagi Sauðárkróks 1984, var síðan tekin upp fyrir sjónvarpið í janúar 1985. Kvikmyndatökumaður (ónafngreindur), Hávar Sigurjónsson (1958-) leikstjóri og Valdimar Leifsson, stjórnandi upptöku.
Frá 50 ára vígsluafmælis Siglufjarðarkirkju í ágúst 1982, en þá var jafnframt tekið í notkun safnaðarheimili á lofti kirkjunnar, en áður hafði loftið verið notað við kennslu.
Frá blaðamannafundi tóbaksvarnanefndar í ársbyrjun 1985, en þá tóku gildi ný tóbaksvarnarlög. Árni Johnsen formaður nefndarinnar situr fyrir borðsenda t.v.
Gangnamenn að Undirfellsrétt í Vatnsdal haustið 1982. Frá vinstri Magnús Pétursson frá Miðhúsum (hellir í glösin)- Jón B. Bjarnason frá Ási. Sigurður Magnússon frá Hnjúki - Reynir Steingrímsson frá Hvammi og Leifur Sveinbjörnsson frá Hnausum.
Útskrift frá Hólum vorið 1985. Jón Bjarnason (1943-) lengst til hægri. Hæstu einkunn hlaut Gunnar Sigurðsson frá Stóru-Ökrum og er hann í öftustu röð fyrir miðju og sagðist hann aðspurður ætla að verða bóndi og hefur það gengið eftir. Myndin tekin á tröppum Hóladómkirkju.
Björn Jóhann Björnsson (1967-) afhendir vinning í happdrætti FÁS í janúar 1987. Hinir heppnu heita Jóhann Helgi Sigmarsson (1969-) t.v. og Sigurður Árnason (1968-). Vinningurinn var Ladan sem er í baksýn.
Borð og myndarammi eftir Adam Magnússon Akureyri. Adam Magnússon er fæddur á Brimnesi í Ólafsfirði 3. september 1903, Látinn 12. nóvember 1984, Trésmíðasveinn á Akureyri 1930. Trésmiður á Akureyri.
Unglingavinna á Sauðárkróki 1987. Þökulagning í Hlíðarhverfi. Frá vinstri, Ingvar Ormsson (1974-), Kristján Kristjánsson (1973-) Sveinn H. Guðmundsson og Valdimar Birgisson (1974-).
Sex 40 ára búfræðingar frá Bændaskólanum á Hólum frá árinu 1945, voru viðstaddir skólaslit skólans vorið 1985. Frá vinstri, Rögnvaldur Gíslason Sauðárkróki, Frosti Gíslason Frostastöðum (bak við), Jón Samúelsson, Steinn Snorrason frá Bægisá, Sigurður Jónsson á Efstalandi í Öxnadal og Pétur Steindórsson á Krossastöðum í Glæsibæjarhreppi.