Leikritið Jói eftir Kjartan Ragnarsson í leikstjórn Árna Blandon sett upp af Leikfélagi Sauðárkrós á Sæluviku 1990 . Hér er Skúli Gunnarsson t.v. sem leikur Jóa og Ragnar Björnsson.
Jóhanna María Jóhannsdóttir frá Ásbjarnarstöðum á Vatnsnesi (t.v.) sigraði í alþjóðlegri tískukeppni sem haldin var á Hótel Íslandi vorið 1997. Með henni á myndinni er Katrín Haraldsdóttir í verðlaunakjólnum sem Jóhanna hannaði.
Leikflokkurinn á Hvammstanga setti upp leikritið Maður og kona eftir Jón Toroddsen árið 1991. Gísli Einarsson (1967-) lengst t.v. Aðrir leikendur óþekktir.
Þorrablót á Ketilási. Símon Gestsson á Barði aftan við fjórrmenningana. Lengst til vinstri er Gunnar Steingrímsson í Stóraholti og þriðji frá vinstri (í brúnu vesti) er Sigurgeir Finnur Þorsteinsson frá Helgustöðum. Óljóst hverjir eru á bak við grímurnar.
Leikarararnir Björgvin J Sveinsson (1962-) og Elín Jónsdóttir í hlutverkum sínum í leikritinu "Er þetta ekki mitt líf" sem Leikfélag Sauðárkróks setti upp haustið 1982.
Til vinstri Unnar Rafn Ingvarsson (1968-) og lengst til hægri Herdís Á. Sæmundardóttir (1954-). Á milli þeirra eru afkomendur Þorleifs Markússonar frá Móskógum að afhenda göng frá honum til Héraðsskjalasafnsins.
Umhverfisviðurkenningar veittar í fyrsta sinn í Húnaþingi vestra haustið 1999. F.v. Sigríður Hjaltadóttir dómnefndarkona, Víglundur Gunnþórsson og Sigrún Valdimarsdóttir í Dæli, Ingibjörg Pálsdóttir og Sigurður Eiríksson á Hvammstanga, Þorvaldur Pálsson á Bjargi, Helena Svanlaug Sigurðardóttir og Ragnar Árnason á Hvammstanga og Elín R. Líndal á Lækjarmóti sem athenti viðurkenningarnar.
Birgir Guðjónsson og Monika Sóley Borgarsdóttir með farsímaveski sem fyrirtækið Click on Island hóf framleiðslu á árið 1999. Birgir var framkvæmdastjóri fyrirtækisins.
Vígsla jarlstofunar á Hótel Tindastóli haustið 1999. Frá vinstri, Pétur Einarsson (1947-) og Svanfríður Ingvadóttir (1955-) eigendur Hótels Tindastóls, Guðni Ágústsson (1949-) landbúnaðarráðherra og Jón Sigurður Eiríksson (1929-) frá Fagranesi.
Ásgeir Eiríksson er mikill og djúpur bassi og talinn ákaflega efnilegur söngvari. Hér syngur hann einsöng með Rökkurkórnum á skemmtun kósins í Miðgarði á annan í jólum 1992.
Kirkjukór Sauðárkrókskirkju syngur á íþróttavellinum á 17. júní, (1993) Fremri röð frá vinstri: Sigríður Ögmundsdóttir (1921-2007), Kristín Bjarney Sveinsdóttir (1948-), Anna S. Pétursdóttir (1942-), Sólborg Björnsdóttir (1932-), Jóhanna Karlsdóttir (1943-), Lára Angantýsdóttir (1938-) og Guðbrandur J. Guðbrandsson á trompet (1964-). Í aftari röð f.v. Sigurdríf Jónatansdóttir (1960-), óþekkt, Björgvin Jónsson (á bak við Kristínu) Guðmundur Ragnarsson, Kári Steinsson (bak við Sólborgu) og Stefanía Stefánsdóttirl (bak við Jóhönnu).
Jasskvöld á Sumarsæluviku í Bifröst sumarið 1983 sem Jazzklúbbur Skagafjarðar og Jazzklúbbur Akureyrar stóðu fyrir. Ingimar Eydal (1936-1993) er við hljómborðið og Haukur Þorsteinsson lengst til hægri. Þá er Jóhann Friðriksson fjærst fyrir miðju.
Á miðvikudaginn í dymbilviku vorið 1992 var engu líkara en vorið væri komið á Krókinn. Götusóparar voru í óða önn í bænum og lúðrahljómar ómuðu í gamla bænum síðdegis. Þar var á ferðinni Stórsveit Tónlistarskóla Sauðárkrórks, sem stofnuð var með 20 hljóðfæraleikurum um veturinn. Tónlistarfólkið hélt til vinabæjar-tónlistarmóts í Köge í Danmörku skömmu eftir að myndin var tekin. Með leik sínum á Aðalgötunni var sveitin að sýna þakklætisvott þeim fyrirtækjum sem studdu hana til fararinnar.
Frá söngskemmtun í Húnaveri í janúar 1998. Bjórkallarinn sunginn. Frá vinstri: Þorleifur Ingvarsson, Tryggvi Jónsson frá Ártúnum, Halldór í Tungu, Brynleifur Friðriksson og söngvarinn Sigurður Ingvi Björnsson frá Guðlaugsstöðum, allir félagar í Karlakór Bólstaðahlíðahrepps.
Skagfirskir kennarar á fundi. Á borðinu vinstra megin eru, talið frá vinstri, Fríða Eyjólfsdóttir, Herdís Fjeldsted, Kristín Bjarnadóttir, Hlín Bolladóttir, Stefán Gestsson og Björn Björnsson (í rauðum bol) sem öll störfuðu við Grunnskólann á Hofsósi.
Krakkar úr árgangi 1978 í Laugabakkaskóla í sólarhrings lestrarmaraþoni veturinn 1993-1994, til fjáröflunar fyrir Danmerkurferð. Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir frá Dæli, Jón Hilmar Karlsson (með gleraugu og bók) og Harpa Ragnarsdóttir, óþekkt.
Óþekktur fundur í Fjölbrautaskólanum. Fremstur í fremstu röð er Snorri Styrkársson (með skegg), fremstur í annarri röð er Vigfús Vigfússon (í grænum jakka). Innst á sama bekk og Vigfús eru Kristján Hansen og María Hansen. Þorleifur Konráðsson í rauðri úlpu aftast og við hlið hans er Sigurlaug Kristín Konráðsdóttir
Landsmót UMFÍ í Mosfellsbæ 1990. Sigurvegarar í stangarstökki. F.v. Gísli Sigurðsson frá Stóru-Ökrum, 2. sæti, Kristján Gissurason frá Valadal, 1. sæti og Geir Gunnarsson frá Brekkukoti í 3. sæti.
Blásarahljómsveit Tónlistarskólans á Sauðárkróki leikur í Bifröst á nýarsfagnaði eldri borgara í ársbyrjun 1990. Stjórnandi hljómsveitarinnar er Sveinn Sigurbjörnsson.
Frá skólaskákmóti sem Kiwanisklúbburinn Drangey gekkst fyrir í mars 1988. Þekkja má Pálma Sighvatsson á miðri mynd (stendur) og Hall Sigurðsson t.h. (stendur). Myndin birtist í 11. tbl.1988.
Tilg. Grohe eða Damixa skákmót (Sæluvikuskákmót). Jón Arnljótsson Ytri- Mælifellsá t.v. og Páll Ágúst Jónsson Siglufirði t.h. Pálmi Sighvatsson fjærst t.v. Aðrir óþekktir.
Tilg. Íslandsmót í skák haldið í Reykjavík 1988. Sveit Skáfélags Sauðárkróks hægra megin við borðið. Geirlaugur Magnússon næst, þá Haraldur Hermannsson og Freysteinn Björgvinsson fjærst. T.v. við borðið óþekktir.
Vorið 1991 gaf Lionsklúbbur Sauðárkróks, Sauðárkrókskirkju 60 lausa stóla. Á myndinni eru Lionsmenn ásamt sr. Hjálmari Jónssyni t.v. með stólinn. Hinn sem heldur á stólnum er Óskar Jónsson læknir. Þá er gestur fundarins Sigurður Þórólfsson t.v. í hjólastól.
Fjölnota fjárhús voru tekin í notkun á Hólum vorið 1992. Ámyndinni er sr. Bolli Gústavsson að blessa bygginguna. Heimismenn eru fjær en þeir sungu við athöfnina.
Kirkjuhátíð í Bifröst haustið 1982 þegar þess var minnst að 90 ár voru liðin frá vígslu Sauðárkrókskirkju. Við borðið næst t.v. má þekkja f.v. Jóhönnu, Maríu og Árna Blöndal.
Tilg. Frá afhjúpun minnisvarða við Frúarstíg þ.e. Freyjugötu á Króknum sumarið 1997 um framtak kvenna á Króknum í lok nítjándu aldar. Minnisvarðinn er gjöf frá fjórum karlaklúbbum í bænum.
Frá afhjúpun minnisvarða um Hermann Jónasson fyrrverandi forsætisráðherra á Syðri-Brekkum í Blönduhlíð haustið 1997 T.h. á myndinni er Steingrímur Hermannsson og t.v. við hann er Edda Guðmundsdóttir kona hans. Lengst t.h. er hugsanlega Pálína Hermannsdóttir.