Sýnir 115 niðurstöður

Lýsing á skjalasafni
Akrahreppur: Skjalasafn
Advanced search options
Prenta - forskoðun Hierarchy View:

Skólahaldsskýrsla

Skýrslan er útfyllt eyðublað í A4 stærð. Inn í hana eru fylltar helstu tölur um skólahald í Akraskóla skólaárið 1974-1975.

Akrahreppur (1000-)

Bréf varðandi samstarf um gagnfræðaskóla

Bréf í A4 stærð. Bréfið er frá bæjarstjóranum á Sauðárkróki og með því fylgir útskrift úr fundargerð þar sem forsvarsmenn skólamála ræddu hugsanlegt samstarf um Gagnfræðaskóla á Sauðárkróki.

Akrahreppur (1000-)

Auglýsing um skattskrá

Fjölritað auglýsingaveggspjald, ætlað til útfyllingar. Spjaldið auglýsir hvar og hvenær skattskrá liggur frammi og hver kærufrestur er.

Akrahreppur (1000-)

Kvenréttindafélag Íslands 40 ára

Bókin er kjallímd með þunnri kápu. Á titilsíðu stendur:
"Kvenréttindafélag Íslands 40 ára. 1907-1947. Minningarit. Reykjavík, útgefandi: Kvenréttindafélag Íslands 1947.

Kvenréttindafélag Íslands

Bókhaldsgögn 1961

Bókhaldsgögn frá árinu 1961, alls 7 skjöl. Flest þeirra varða félagsheimilið Héðinsminni.

Akrahreppur (1000-)

Reikningshald

Gögn er varða reikningshald vegna skólamála í Akrahreppi.

Akrahreppur (1000-)

Skýrslur

Skýrslur varðandi elli- og örorkubætur.

Akrahreppur (1000-)

Ályktun um Blönduvirkjun

Vélrituð pappírsörk í A4 broti, ályktun fundar sveitarstjórnarmanna í Miðgarði vegna Blönduvirkjunar, þar sem mótmælt er frumvarpi um Blönduvirkjun sem fyrirhugað er að leggja fyrir Alþingi.

Akrahreppur (1000-)

Minnispunktar

Minnispunktar sem varða landamerkjamál Upprekstrarfélags Saurbæjarhrepps og eigenda Ábæjar og Nýjabæjar.

Akrahreppur (1000-)

Skattskrá Akrahrepps 1967

Skattskrá Akrahrepps fyrir árið 1967. Skráin er tölvuútprentun, heftuð saman og kjallímd. 2 eintök, á forsíður beggja eru ritaðar tölur og útreikningar.

Akrahreppur (1000-)

Viðbótarskattskrá 1978

Viðbótarskattskrá Akrahrepps fyrir árið 1978. Skráin er tölvuútprentun, 2 pappírsarkir í folio stærð.

Akrahreppur (1000-)

Búnaðarskýrsla fyrir árið 1953

Skýrslan er stórt eyðublað, samanbrotið í folio stærð og í hana eru skráðar ýmsar upplýsingar varðandi landbúnað í Akrahreppi árið 1953.

Akrahreppur (1000-)

Niðurstöður 86 to 115 of 115