Bókin er innbundin og er 21x32,3 sm að stærð. Hún er 96 tölusettar blaðsíður og þar af eru 70 bls auðar. Í bókina eru ritaðar fundargerðir annars vegar frá 1929-1930 og hins vegar frá 1938-1939. Virðist sem fundir hafi fallið niður árin þar á milli, þó það sé ekki ljóst af texta bókarinnar. Með liggja minnismiði, uppköst að orðsendingum vegna annars vegar aðstoð við finnsku þjóðina vegna stríðástands og hins vegar um að takmarka ásetning búfjár. Auk þess fundarboð vegna fjársöfnunar fyrir finnsku þjóðina og er það í tveimur eintökum.
Bókin er innbundin og er 17,6x20,4 sm að stærð. Hún er 124 tölusettar blaðsíður og þar af eru 119 bls auðar. Utan um bókina er hlífðakápa úr þunnum pappír. Í bókina eru ritaðar fundargerðir héraðsmálafunda og millifundanefnda frá árunum 1929-1947. Annars vegar er um að ræða fundi rafveitunefndar frá árunum 1929-1930 og hins vegar fundi mullifundanefndar frá árinu 1947, þar sem rætt var um sjúkrahús- og lögreglumál.
Bókin er innbundin í stærðinni 17x21,4 sm. Hún er 300 tölusettar bls og þar af er ein auð síða. Með liggur uppkast að vélrituðu bréfi til Rögnvaldar Jónssonar á Tyrfingsstöðum sem var laust inni í bókinni.
Bókin er innbundin og stærð hennar er 29,2 x 24,8 sm. Kjölurinn er slitinn og rifnað hefur af kápunni frá kilinum. Hún er 64 tölusettar síður og eru þær fullskrifaðar.
Bókin er innbundin og er 16,3 x 19,9 sm að stærð. Bókin er 212 tölusettar síður. Á fremstu 17 síðurnar eru ritaðar fundargjörðir en aftan við miðja bókina eru samtals 37 síður sem á eru rituð ýmis minnisatriði vegna kosninga, líklega einnig frá árinu 1944.
Bókin er innbundin og er 17,9 x 21,7 sm að stærð. Hún er 288 tölusettar síður og þar af eru 267 auðar síður. Með liggur á lausu blaði reikningur um störf nefndarinnar.
Bókin er innbundin í stærðinni 22x 27,4 sm. Hún er 72 tölusettar síður, þar af eru 59 auðar síður. Með liggur bréf frá öldrunarnefnd Skagafjarðar frá árinu 1987.
Bókin er innbundin í stærðinni 22 x 30 sm. Síðurnar eru ótölusettar en alls eru 73 skrifaðar síður. Með liggja bréf frá Agli Bjarnasyni, dags. 4.12.1973 og Landgræðslu ríkisins 7.11.1989.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í folio broti, alls þrjár skrifaðar síður. Það varðar aflabrest við fuglaveiðar i Drangey vorið 1895 og greinargerð Konráðs um orsakir þessa.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A5 broti. Það varðar umfjöllum almenns fundar í Hegranesi um breytingar á reglugerð fyrir fiskveiðar við Drangey. Reifuð er niðurstaða fundarins og er bréfið undirritað af Eggert Briem.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í folio broti, alls ein skrifuð síða. Það varðar tillögur Bjarna um breytingar á reglugjörð um Drangey. Athugasemd er skráð með blýanti á spássíu, líklega með hendi Sigurðar Sigurðssonar sýslumanns.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 broti, alls tvær skrifaðar síður. Það varðar umfjöllum fundar á Hofsósi um breytingar á reglugerð fyrir fiskveiðar við Drangey. Reifuð er niðurstaða fundarins og undir bréfið rita 10 fundarmenn.
Álitið er handskrifað á pappírsörk í folio stærð. Yfirskrift þess er "Nefndarálit í málinu um breyting á Drangeyjarreglugjörð". Undir það rita þrír nefndarmenn.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A5 broti, alls tværi skrifaðar síður. Það er undirritað af Hermanni Þorsteinssyni á Reykjarhóli og Páli Árnasyni á Ysta-Mói. Bréfið varðar ósk um endurgreiðslu á láni fyrrum Holtshrepps til sýslusjóðs vegna brúargerðar yfir Fljótaá.
Athugasemdirnar eru ritaðar á pappírsörk í folio stærð. Þær varða sýslusjóðsreikning fyrir árið 1899. Undir þær rita Ólafur Briem og Zóphonías Halldórsson.
Athugasemdirnar eru ritaðar á pappírsörk í folio broti, alls 3 skrifaðar síður. Þær varða sýsluvegasjóðsreikning fyrir árið 1899. Undir þær rita Sigfús Jónsson og Jón Jónsson.
Athugasemdirnar eru ritaðar á pappírsörk í folio stærð. Þær varða sýslusjóðsreikning fyrir árið 1901. Undir þær rita Ólafur Briem og Rögnvaldur Björnsson.
Bréfið er ritað á pappírsörk í A5 broti, ein skrifuð síða. Bréfritari lýsir því yfir að hann geti ekki gegnt starfi sauðfjáreftirlitsmanns á komandi ári.
Bréfið er ritað á pappírsörk í A5 broti, ein skrifuð síða. Bréfritari lýsir því yfir að hann geti ekki gegnt starfi sauðfjáreftirlitsmanns á komandi ári.
Frumvarpið er skráð á pappírsörk í folio broti, alls 2 skrifaðar síður. Með liggur synishörn af skýrslu um fjárskoðanir, í sama broti, einnig tvær skrifaðar síður.
Bréfið er ritað á pappírsörk í folio broti. Það varðar brúagerð á Gönguskarðsá. Með liggur kostnaðaráætlun fyrir brúargerðina, rituð á pappírsörk í A5 broti, alls 3 skrifaðar síður.
Bréfið er ritað á pappírsörk í folio broti, alls þrjár skrifaðar síður. Bréfritari mótmælir því að "sveitalimur" sá er málið varðar eigi sveitafesti í Holtshreppi.
Skilagreinin er skráð á pappírsörk í A5 broti, alls 3 skrifaðar síður. Skilagrein varðandi Hrafnagil í Laxárdal Ytri, gerð nokkru eftir að ábúendur höfðu flutt til Vesturheims. Hún er samin og undirrituð af Sigurði Ólafssyni á Hellulandi.
Skýrslan er skráð á pappírsörk í foliostærð. Þar gerir skýrsluritari grein fyrir verkþáttum og fjölda dagsverka og launum vegna vegavinnu í Hofshreppi sumarið 1900.
Greinargerðin er rituð á pappírsörk í folio stærð, alls þrjár skrifaðar síður. Svo virðist sem það séu tilkvaddir tryggingamenn sem rita hana. Greinargerðin er rituð á dönsku.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í folio broti, alls 3 skrifaðar síður. Það varðar hugmyndir bréfritara um hátíðahöld og önnur verkefni í tilefni af 1000 ára afmæli byggðar í Skagafirði.
Bréfið er ritað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar nýtt fyrirkomulag á búnaðareftirlitsstarfsemi. Með liggur fjölritað blað með yfirskriftinni: "Ræktunarsamband Norðurlands og búnaðarlögin" og er það í A4 stærð.
Pappírsörk í foliostærð, úr bréfabók sýslunefndar. Varðar erindi til Sigurðar J. Fanndal, þar sem hann er skipaður í sóttvarnarnefnd fyrir Haganesvíkurkauptún.