Laufey og Svava tvíburasystur. Dætur Benedikt Jónssonar frá Hólum í Hjaltadal og seinni konu hans Kristínar Baldvinsdóttur. Þær bjuggu í Winnipeg. Ættingjar Gullu og Þóris á Litlu-Gröf
Fred Gardiner, eiginmaður Þóru Benediktsdóttur f. 1884 á Syðri-Brekku (Thora Gardiner). Hún flutti til Vesturheims ásamt föður sínum Jóni Benediktssyni. Hún var systir Sigríðar Benediktsdóttur.
Aftan á mynd er skrifað: Magnús er voða kall mikill prakkari og óþægur með köflum. En Halla er miklu stilltari. Bæði ljóshærð hann með alveg hvítt hár.
Ekki vitað hvaða fólk þetta er. Aftan á mynd má sjá óljósa skrift þar stendur m.a "Dúnda litla segir ég er en þá svo lítil". Svo er óljóst framhald á skrift. En lýkur á "vertu sæl mamma mín."
Aftan á mynd er ritað: Gleðileg jól og nýjár. Arnþór og Jónas. Þeir eru synir Magnúsar Blöndal sem var fóstusonur Arngríms Sigurðssonar og Sigríðar Benediktsdóttur.
Guðlaug Arngrímsdóttir og frænka hennar Janis Johnson frá Kanda. Janis er af íslenskum ættum. Móðurafi Guðlaugar, Benedikt Jónsson flutti til Vesturheims 1887 ásamt móðursystur hennar Þóru og fleiri ættingjum.