Þunn innbundin handskrifuð bók með línustrikuðum blöðum. Bókin geymir fundagerðir stjórnar S.S.K. og formannafunda sambandsins frá 1955 - 1982 og eru fundagerðir vel læsilegar. Bókin hefur varðveist mjög vel. Límborði er á kili bókarinnar.
Í safninu eru vélrituð og fjölfölduð/ ljósrituð/ tölvuútprentuð pappírsgögn sem innihalda fundargerðir Sambandi Norðlenskra Kvenna (S.N.K.). Fundagerðirnar eru frá 1968, 1973 - 1980, 1982 - 1986 og 1995 - 1996. Hver fundargerð er heftuð saman í nokkurs konar hefti með forsíðum og baksíðum á lituðum pappír, og jafnvel með þykkri pappír. Öll gögnin hafa varðveist ágætlega og eru vel læsileg.
Um er að ræða mikið safn af handskrifuðum, vélrituðum, forprentuðum, tölvuútprentuðum skjölum. Í safninu eru formleg og óformleg erindi og bréf, skýrslur, félagatöl, lög S.S.K og Sambandi Norðlenskra Kvenna (S.N.K.)og Kvenfélagssambands Íslands, einnig ársreikningar, jólakort, símskeyti tilefni 40 og 50 ára afmælis Sambands Skagfirskra Kvenna og bæklingar tengdir ýmsum málefnum sem sambandið lét sig varða. Samband Skagfirskra Kvenna stóð fyrir hugmyndasamkeppni um mynjagrip árið 1987 og er verðlaunateikningin geymd í safninu. Einnig er prótótýpa af teikningu sem hönnuð var fyrir 40 ára afmæli S.S.K. Í safninu er talsvert af úrkliptum auglýsingum sem eru frá sambandinu og tengjast starfsemi þess. Í sér möppu var nokkuð af úrklippum úr dagblöðum héraðsfréttablaða og auglýsingablöðum, sem dæmi auglýsingar úr Sjónhorninu og var það allt fjarlægt úr safninu þar sem blöðin eru aðgengileg á www.timarit.is og engin þörf talin á að geyma þau. Úrklippurnar úr Sjónhorninu voru ódagsettar og án ártals. Safnið er í mjög góðu ásigkomulagi.
Í safninu er félagatal Kvenfélags Sauðárkróks, skýrsla S.S.K. og nafnalisti formanna kvenfélaganna í Skagafirði. Þakkarbréf frá Öldrunarnefnd Skagafjarðar vegna greiðslna á fé sem Samband Skagfirskra Kvenna gaf til byggingar Hjúkurnar- og dvalarheimilisins á Sauðárkróki. Skýrsla vegna vinnuvöku, nafnalisti formanna kvenfélaga í Skagafirði og bréf til formanna. Erindi frá Friðarhópi Kvenna í Reykjavík og K.Í. Bréfasamskipti Guðrúnar L. Ásgeirsdóttur við Svend Hamborg vegna heimsóknar hans til Íslands.
Í safninu eru handskrifuð bréf fyrrv.formanns SSK til formanna kvenfélaganna, skýrslur S.S.K. fundarboð og dagskrá og handskrifuð fundargerð. Einnig formleg og óformleg erindi og bréf. Handskrifað bréf frá formanni sambandsins vegna hugmyndasamkeppni um skagfirska minjagripi. Ferðatilhögun vegna ferðar kvenfélagskvenna til Danmerkur og ljósrituð blaðaúrklippa með frásögn um heimsókn þeirra í Viuf. Í safninu er teikning af verðlaunatillagu Friðriks Arnars Haraldssonar á minjagrip fyrir S.S.K. og grein um það í Feyki sama ár. Ársreikningar og Skipulagsskrá vegna Utanfarasjóð sjúkra í Skagafirði. Allt safnið hefur verið vel varðveitt.
Í safninu eru handskrifuð, ljósrituð, vélrituð, forprentuð og tölvuútprentuð bréf, formleg og óformleg erindi, bréf og skýrslur. Á meðal skjala eru ársskýrslur kvenfélaganna í Skagafirði, lög og skýrsla frá S.S.K. (ódags. og án ártals), yfirlit yfir formenn kvenfélaganna 1988-89. Bréf frá formanni S.S.K. einnig erindi og bréf frá K.Í. og ACWW. Kynningarefni um stöðu heimilisfærði í grunnskólum og málefnum. staðfesting á greiðslum frá Stéttarsambandi Bænda, einnig umsókn um styrk SSK til Stéttarfélags Bænda. Boðskort, jólakort og ferðaskipulag til Hollands, V-Þýskalands og Belgíu auk fleiri skjala sem öll eru í góðu ásigkomulagi.
Mikið að skjölum er í þessu safni, meðal gagna eru fundarboð, skýrslur frá kenfélögum í Skagafirði, dagskrá aðalfundar og listi yfir formenn félaga innan S.S.K. Erindi og bréf sambandsins til K.Í, handskrifuð bréf og erindi. Í safninu eru einnig afrit af skýrslum frá sambandsfélögum innan K.Í. og þakkarbréf frá S.S.K. til Bæjarstjórnar Sauðárkróks vegna fjárstyrkja og áskorun til ráðherra heilbrigðismála um skilagjald á flöskur, áldósir o.s.frv. Erindi um jafnréttismál frá Margréti Guðnadóttur prófessor. Formleg og óformleg bréf, ályktanir, erindi og skýrslur frá K.Í. Einnig ársreikningur tímaritsins Húsfreyjunnar, skipulag ferðar á vegum S.S.K Hollands, Belgíu og V-Þýskalands og úrklippa með umfjöllun um ferðina í Feyki og fleiri skjala.
Á formannafundi SSK - haustið 1982 Sitjandi frá vinstri: Guðrún L. Ásgeirsdóttir, aðrar óþekktar standandi. Fjórða frá vinstri: Margrét Gunnarsdóttir, sjöunda frá vinstri: Solveig Arnórsdóttir, áttunda frá vinstri: Árdís Maggý Björnsdóttir aðrar óþekktar.
Tekið á móti vinabæjarheimsókn í Árgarði (vantar ártal). Frá vinstri; Ása Helgadóttir, Ingigerður ???? Guðrún L. Ásgeirsdóttir og Árdís Maggý Björnsdóttir.
Þunn innbundin handskrifuð bók með línustrikuðum blöðum. Bókin inniheldur fundgerðir stjórnar S.S.K. og aðalfunda, einnig fyrstu lög sambandsins. Bókin er vel læsileg og hefur varðveist mjög vel. Límborði er á kili bókarinnar.
Í safninu eru vérituð og fjölfölduð pappírsgögn sem innihalda fundargerðir S.S.K. frá 1974 - 1988 og 2003 sem er yngsta fundagerðin. Hver fundargerð er heftuð saman, tvær þeirra eru með límborða yfir heftin. Nokkrar fundagerðir voru til í tveimur eintökum og voru þau sem litu verr út grisjuð úr safninu, annað var látið halda sér. Búið var að rífa pappírsræmu á horni á forsíðublaði elstu fundagerðarinnar annars eru öll gögnin í góðu ásigkomulagi og vel læsileg. Flest heftin eru með forsíðu og bakhlið á lituðum pappír í gulum, bláum og gráum lit. Yngst fundagerðin var í plastmöppu og blöðin voru tekin úr.
Pappírshefti, heftað saman á langhlið með ágripi af sögu Sambands Skagfirskra Kvenna frá stofun sambandsins í tilefni 40 ára afmælis sambandsins sem var 1983. Forsíðan og bakhlið heftsins er í gulum lit, hvít blöð þar á milli. Forsíðan er myndskreytt með merki S.S.K og ártalinu 1943 en ekki dagsett, bakhliðin er án skreytingar og texta. Ágripið um sögu S.S.K. er eftir Pálu Pálsdóttur einnig er í heftinu afmælisljóð og vísur eftir Emmu Hansen, Guðfinnu Gísladóttur og Hólmfríði Jónasdóttur, einnig er texti eftir Kristbjörgu S. Bjarnadóttur frá Litlu-Brekku sem heitir "Minningabókin" og er um starfsemi S.S.K. Heftið í góðu ásigkomulagi .
Handskrifuð, vélrituð, tölvuunnin og fjölfölduð pappírsgögn sem öll innihalda lög Sambands Skagfirskr Kvenna auk þess sem er einnig tillaga um breytingu á lögum S.S.K., skjölin eru öll ódagsett og án ártals. Ákveðið var að hafa þau saman þar sem þau voru ekki flokkuð sérstaklega með öðrum skjölum.
Í safninu er teikning sem var gerð í tilefni 40 ára afmælis S.S.K. sem var 1983. Myndin var prentuð á veifu / borðfána. Einnig er borðfáni með merki K.Í. einnig íslenski fáninn (lítill). Teikingar og munir er allt vel með farið.
Handskrifuð skjöl í A3 stærð sem innihalda skipulagsskrá hins skagfirska kvennaskóla, dags. 29. júní 1878, og var samþykkt af Sýslunefnd Skagafjarðarsýslu og samþykkt sama ár. Þetta skjal er líklega n.k. afrit af upprunalega skjalinu.
Á meðal skjala eru skýrslur S.S.K., listi formanna kvenfélaganna, fundarboð og fundardagskrá. Bréf frá KÍ, bæklingar um Íslenska þjóðbúninginn og frá Heimilisiðnaðarfélaginu. Þakkarbréf og tveir límmiðar frá Thy Spillermandslaug sem er danskur hópur sem heimsótti Skagafjörð og Sólveig Arnórsdóttir tók á móti fyrir hönd S.S.K., einnig þakkarbréf auk annara formlegra og óformlegra erinda og bréfa. Öll skjölin eru í mjög góðu ásigkomulagi og vel læsileg.
Meðal gagna sem eru í safninu eru fundarboð og dagskrá aðalfundar og formannafunda S.S.K., fundargerðir og minnispunktar frá fundunum. Formleg erindi til bæjastjóra Sauðárkróksbæjar og Skógræktarstöðvar Ríkisins, einnig óformleg bréf og erindi til formanna kvenfélaganna í Skagafirði og fundargerð Landsþings K.Í. Í safninu eru einnig fundarboð fyrir S.N.K., jólakort og þakkarkort til formanns S.S.K. Gögnin hafa öll verið mjög vel varðveitt.
Í safninu eru vélrituð og tölvuútprentuð einnig ljósrituð pappírsgögn. Meðal annars er áskorun sem lögð var fram á formannafund S.S.K. um náttúrugripasafn sem er í Varmahlíðaskóla. Einnig er mikið af skjölum frá Kvenfélagsambandi Íslands, dagskrá formannafundar, skýrsla stjórnar, tillaga að nýju fræðsluriti og endurskoðaður ársreikningur fyrir árið 1989. Einnig er reglugerð og söguágrip fyrir Kvennaheimilið Hallveigarstaði og skýrsla framkvæmdarstjórnar
Í safninu eru handskrifuð, vélrituð og tölvuprentuð og ljósrituð gögn. Meðal annars er ársskýrsla og fundargerð frá formannafundi SSK. Þakkarbréf frá Kvenfélagi Sauðárkróks, Sjúkrahúsi Skagfirðinga, Gagnfræðaskóla Sauðárkróks og Grunnskólanum á Hólum. Önnur erindi, bréf og jólakort.
Forprentuð og tölvuprentuð skjöl, í safninu eru þakkarbréf frá Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki, Könnun á hlutverkum kvenfélaganna árið 1999, spurningalisti frá Byggðasafni Skagfirðinga og bæklingurinn Kvenfélög við aldahvörf,höf. Sigríður Sigurðardóttir. Bréf með niðurstöðu rannsóknar á stöðu og viðhorfum kvenna í dreifbýli á Norðurl. vestra.
Vinnuvaka á Löngumýri 1985 og 1986. Konur úr kvenfélagi Staðarhrepps í forgrunni, Guðný Friðriksdóttir frá Hjalla og Þórdís I. Sverrisdóttir (Dísa) frá Dúki í Sæmundarhlíð.
Þunn innbundin handskrifuð bók með línustrikuðum blöðum. Bókin er 300 blaðsíðna og í hana eru skrifaðar fundagerðir aðalfunda S.S.K. Bókin er vel læsileg og hefur varðveist mjög vel. Límborði er á kili bókarinnar.
Ljósritað hefti eða pappírsgögn með fundargerð formannafunds S.S.K. árið 2003. Eintakið var bundið í glært spjald og þykkan pappír, heft saman og límborði þar yfir það var fjarlægt. Blöðin rifnuðu hjá skjalaverði þegar efra heftið var fjarlægt, að öðru leyti hafa gögnin varðveist ágætlega og eru vel læsileg.
Tölvuútprentuð pappírsgögn með upplýsingum um eignahlut kvenfélaganna og aðkomu félaganna að félagsheimilum í Skagafirði, s.s. skemmtanir, fundir, ofl. Skjöl eru ódagsett og án ártals og eru frá Félagsheimilinu Ketilási - Fljótum, Félagsheimilinu Höfðaborg - Hofsósi, Félagsheimilinu Árgarði - Lýtingsstaðahreppi, Félagsheimilinu Melsgil - Staðarhreppi, Félagsheimili Rípurhrepps, Félagsheimilinu Skagaseli - Skefilstaðahreppi, Félagsheimilinu Ljósheimum- Skarðshreppi. Skjölin hafa varðveist mjög vel.
Forprentuð, vélrituð og handskrifuð kvæði, ljóð og stökur eftir konur en í safninu er einnig eitt ljóð er eftir Jón Trausta og lítill pappírsbútur með æðruleysisbæninni. Í safninu er kvæði sem var ort árið 1910 og er tileinkað Kvenfélagi Staðarhrepps. kvæðið er eftir Guðrúnu Ólafsdóttur frá Páfastöðum. Kvæðið Draumsýn eftir Áslaugu S. Jensdóttur, Núpi. Þrjú afmælisljóð til S.S.K. eftir Emmu Hansen í tilefni af afmæli sambandsins 1983. Söngur Sambands Norðlenskra Kvenna, eftir Laufeyju Sigurðardóttur frá Torfufelli. Ljósrit af textum með nokkrum vísum og stökum, neðst á blaðinu stendur: Rúvak í Árgarði 10/2 1984 - Fjöldasöngur. Ljóðabréf til Oddfríðar Skúladóttur eftir Guðrúnu Jónsdóttur, dagsett. Rvk. 14.des 1913. Staka eftir Áslaugu Jensdóttur, á hlið bréfsins er handskrifað með penna Snorri Ingimarsson. Vort land, kvæði eftir Emmu Hansen sem ort var í tilefni 70 ára afmælis S.N.K. 1984 (á tveimur bls.). Handskrifaðar vísur eftir Diddu. önnur vísan heitir; Til Margrétar á Löngumýri 60 ára. Vísur eftir Hólmfríði Jónasdóttur þar sem hún þakkar stjórn Sambands Skagfirskra Kvenna fyrir boð til handa öldruðum Skagfirðingum 27. júní 1987. Handskrifaðar vísur eftir Kristbjörgu Bjarnadóttur frá Litlu-Brekku. Önnur vísan er með titlinum Stiklað á stóru (eða gaman og alvara) og var flutt í Miðgarði 24.okt. 1986. Hin vísan eða textinn við laginu "Komdu og skoðaðu í kistuna mína" var vélrituð og ljósrituð og heitir Minningabókin. Textinn er einnig að finna í hefti sem S.S.K. lét gera í tilefni afmælishátíðar sambandsins 1983. í safninu er einnig forprentaður texti með baráttusöng Kvennafrídagsins og kallast Hvers vegna kvennafrí, textinn er eftir Valborgu Bentsdóttur, lag; "Frjálst er í fjallasal".
Pappírsgögn frá 1968 - 1980, ákveðið var að setja skjöl frá 1968-1979 saman við skjöl frá 1980 þar sem þau voru svo fá. Eitt handskrifað bréf frá 1968 sem er stílað á Dómhildi frá Jónínu Stefánsdóttur. Í safninu er veifa með mynd af Halldóru Bjarnadóttur 1873-1981) sem gengdi meðal annars formennsku Sambandi Norðlenskra Kvenna. Veifan var gerð í tilefni afmælis Halldóru þegar hún var 105 ára 1978. Skjöl frá árinu 1979 eru vélritað erindi S.S.K til kvenfélaganna og tengist ári barnsins. Einnig er vélritað erindi vegna byggingu dvalar- og hjúkrunarheimils fyrir aldraðra á Sauðárkróki þar sem flest kvenfélögin auk annara félaga innan Skagafjarðar voru þátttakendur að. Í safninu eru einnig formleg bréf frá S.S.K. til Menntamálaráðuneytisins, Sýslunefndar Skagafjarðarsýslu og Heilbrigðisnefndar sýslunnar, Kvennasögusafn Íslands, einnig fundargerð formannafundar S.S.K. árið 1980 Einnig Líka skýrslur S.S.K., félagatal og forprentaður bæklingur með lögum Kvenfélagssambands Íslands, jólakort og tvö þakkakort vegna andláts Sigríðar Sigtryggsdóttur sem lést 1979 og Ólínu Björnsdóttur sem lést 1980.
Skjöl frá árinu 1981 í safninu eru skýrslur S.S.K., nafnalisti yfir formenn kenfélaga í Skagafirði. Formleg og óformleg erindi og bréf frá formanni S.S.K. til kvenfélaganna í Skagafirði. Í safninu eru aðallega bréfasamskipti er varða dvalarheimili aldraða í Skagafirði þar sem árið 1981 var alþjóðaár aldraðra. Fundardagskrá formannafundar S.S.K. ódags. og án ártals.
Í safninu eru þrjú símskeyti og nokkur jólakort í tilefni af 50 ára afmælisárs S.S.K. Einnig póstkort stílað á Pálínu Skarphéðinsdóttur frá Sigríði Ingimarsdóttur. Bæklingur sem kallast Hugmyndaskrá Landbúnaðarins, lög Sambands Norðlenskra Kvenna og erindi frá K.Í. til formanna héraðssambandanna.
Í safninu er ársskýrsla Kvenfélags Staðarhrepps ásamt umsóknar S.S.K. um styrk til Stéttarsambands bænda og bæklingur vegna 80 ára afmælis Sambands Norðlenskra Kvenna og auglýsing um dagskrá opnunarhátíðarinnar Árs fjölskyldunnar.
Vélrituð, forprentuð, tölvuprentuð og ljósrituð pappírsgögn. Í safninu eru fundarboð vegna aðalfundar SSK, ársreikningur sambandsins og orlofssjóðs. Þakkarbréf frá ýmsum aðilum innan Skagafjarðar vegna gjafa frá SSK. Formlegt erindi frá Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Einnig fundarboð á stofnfund Beinverndar, einnig bæklingur í tengslum við það og lög félagsins. Bréf og erindi frá K.Í. meðal annars um framtíð kvenfélaganna í landinu.
Forprentuð og ljósrituð pappírsgögn, í safninu er veifa merkt Slysavarafélagi Íslands 7 ára, forprentað eyðublað fyrir ársskýrslur kvenfélaganna. Einnig formleg erindi og bréf frá stórn Sambands Borgfirskra Kvenna, K.Í, Landspítalanum, Sameinuðu sveitarfélagi í Skagafirði. Ódagsett og án ártals lög Kvenfélagssambands Íslands. Einnig eru lög um skyldutryggingu lífeyrisréttinda, minnisblað er varða Lífeyrisréttindi hjóna, og lög um orlof húsmæðra nr.53/1972.
Ljósrituð, handskrifuð og forprentuð pappírsgögn, í safninu er skýrsla kvenfélags Sauðárkróks, erindi frá Sigríði Sigurðardóttur hjá Byggðasafni Skagafjarðar, lög K.Í., viðurkenning veitt K.Í. frá Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Erindi frá Kaupfélagi Skagfirðinga vegna "Byggðahóps Skagafjarðar". Þakkarbréf frá Grunnskólanum á Hofsósi og Alþýðulist. Einnig teikning, afmæliskort, boðskort, beiðni um styrk til útgáfu bókar um Skagfirska rósavettlinga ásamt kostnaðaráætlun. Allt safnið var mjög vel varðveitt.
Safn ljósmynda sem tengjast starfi Sambands Skagfirskra Kvenna. Margar myndanna eru merktar SSK og eru með númeratali, en þó ekki allar. Myndirnar voru ekki raðaðar í neinni sérstakri númeraröð. Elstu myndirnar eru frá árinu 1944 og 1945, á myndunum eru konurnar sem voru á 2. og 3. aðalfundi samabandsins. Í safninu eru einnig myndir frá 40 ára afmælishátíðar S.S.K. sem haldin var í Bifröst á Sauðárkóki 1983, gróðursetningu á Hólum árið 1985 og forsetaheimsókn hjá Frú Vigdísi Finnbogadóttur. Yngstu myndirnar eru líklega frá árinu 1987. Myndirnar eru í ýmsum stærðum og gæðum og sumum þeirra fylgja blöð eða miðar með nöfnum þeirra einstaklinga sem eru á þeim. Í safninu voru einnig nokkarar myndir úr safninu stækkaðar og ljósritaðar, gæðin á þeim var ekki góð og ákveðið var að taka þær úr að einni mynd undanskildri, að öðru leyti er safnið í mjög góðu ásigkomulagi.
Formannafundur SSK í Framsóknarhúsinu í október 1983. Fremsta röð frá vinstri: Ása Helgadóttir, Solveig Arnórsdóttir, Sigurbjörg Bjarnadóttir. Önnur og þriðja röð frá vinstri: Rósa Bergsdóttir, Ásta Sigurgjörnsdóttir, Helga Þórðardóttir, Halla Guðmundsdóttir, Marga Magnúsdóttir, Svava Antonsdóttir, Guðlaug Arngrímsdóttir. Fjórða röð frá vinstri: Ingibjörg Jóhannesdóttir og Árný Ragnarsdóttir.
Þunn innbundin handskrifuð bók með línustrikuðum blöðum. Í bókinni eru skráðar fréttir af störfum kvenfélaga eða frásagnir kvenfélagskvenna, einnig eru í bókinni nokkrar pappírskópíur sem límdar eru á blaðsíðurnar sem tengjast frásögnunum. Bókin er vel læsileg og hefur varðveist mjög vel. Límborði er á kili bókarinnar.
Í safninu eru handskrifuð og vélrituð, formleg og óformleg bréf og erindi, einnig skýrslur S.S.K., tvær þingsályktunartillögur og jólakort. Fundarboð fyrir aðalfund S.S.K. Fundardagskra og bókamerki er meðal gagna. Öll gögnin hafa varðveist vel.
Handskrifuð, vélrituð og forprentuð pappírsgögn. Formleg og óformleg erindi og bréf, fundagerð aðalfundar S.S.K., bréf formanns S.S.K. til formanna kvenfélaganna í Skagafirði, og áskoranir til þingmanna, þakkarbréf og þingsályktunartillaga. Í safninu er einng silkiborði með prentaðri dagskrá afmælisfagnaðar vegna 90 ára afmælis Kvenfélags Sauðárkróks. Öll gögnin hafa varðveist mjög vel.
Tölvuútprentuð pappírsgögn með formlegum og óformlegum erindum. Í safninu eru greinagerð um að auka minjagripa- og nytjalisframleiðslu í Skagafirði og Húnavatnssýslunum, einnig eru gögn um reglur um smáverkefnasjóð landbúnaðarins og fundarræða sem tengist samstarfi Jafnréttisráðs og K.Í. sem er ódagsett og án ártals en var með þessum gögnum og þess vegna leyft að vera þar áfram það er það sama með bækling frá Stígamótum og fleiri gögn.
Formleg erindi til SSK frá Sigrúnu Ingibjörgu Arnardóttur á Akureyri vegna styrks til að læra þjóðbúningasaum, Húsmæðraskólanum á Hallormsstað og samtökum austfirskra kvenna. Bæklingur frá Kvenasögusafni Íslands. Önnur formleg erindi eru frá K.Í. auk annara skjala.
Safn með pappírskópíum, bæði í lit og svart hvítar sem tengjast starfi Sambands Skagfirskra Kvenna. Margar myndanna eru merktar SSK og eru með númeratali, þó ekki allar. Myndunum var heldur ekki raðað eftir neinni sérstakri númeraröð þegar var farið var yfir safnið. Elstu myndirnar eru frá árinu 1944 og er á myndinni konurnar sem voru á 2. aðalfundi samabandsins. Yngstu myndirnar eru líklega frá árinu 1987 þegar Friðrik Örn Haraldsson tók við verðlaunum fyrir verðlaunatillögu fyrir minjagrip fyrir S.S.K. Myndirnar eru í ýmsum stærðum og gæðum og sumum þeirra fylgja blöð með nöfnum þeirra einstaklinga sem eru á þeim. Í safninu voru einnig nokkarar myndir úr safninu stækkaðar og ljósritaðar, gæðin á þeim var ekki góð og ákveðið var að taka það úr, að öðru leyti er safnið í góðu ásigkomulagi. Myndirnar voru settar í sýrufría plastvasa ásamt blöðum og miðum með nöfnum þeirra til að auðvelda nafngreiningu.
Vorvaka Kvenfélagasambands Íslands 1984. Á Bessastöðum hjá frú Vígdísi Finnbogadóttur forseta. Frá vinstri: Frú Vigdís Finnbogadóttir, Áshildur Öfjörð, Margrét Gunnarsdóttir og óþekkt.
Friðrik Örn Haraldsson tekur við verðlaunum frá S.S.K. vegna tillögu að minjagrip fyrir sambandið. Frá vinstri: Solveig Arnórsdóttir, Friðrik og Lovísa Símonardóttir