Fundagjörðabók málfundafélagsins / ungmennafélagsins Vonar í Stíflu 1918-1931. Harðspjalda bók, búið að líma á kjölin. Bókin er blettótt og með lausa blaðsíðu en læsilegum texta. Bókin er í viðkvæmu ástandi.
Fundagjörðabækur Málfundarfélagsins og Ungmennafélagsins Vonar í Stíflu 1918-1945. Harðspjalda bók, búið að líma á kjölin. Bókin er blettótt en læsilegur texti.
Fundagjörðabók ungmennafélagsins Vonar 1939-1945 ásamt lögum og félagatali ungmennfélags Holtshrepps 1949-1958. Síðasta fundagjörð U.m.f.V. er frá 15.4.1945 en ekki kemur þar fram að félagið sé formlega lagt niður. Erfitt hefur þó verið að halda félagsskapnum gangandi því í fundargjörð frá 29.3.1945 kemur fram að félagsmenn ræddu hvort leggja ætti félagið niður, ekki síst þar sem "... svo fáir félagsmenn eru á félagssvæðinu og út lit fyrir að þeim muni fækka en þá meira af völdum Fljótarvyrkjunar, þar sem félagssvæðið Stíflan legðist að mestu undir vatn." Harðspjalda bók, búið að líma á kjölin. Bókin er í góðu ástandi.