Minnisvarði um Sigurð Jónasson skógarvörð afhjúpaður í rjóðri við bæjartóftir Laugarbrekku í Reykjarhólnum í september 1996. Drengirnir Sigurður Örn Hilmarsson (t.v.) og Sigurður Sigurðsson eru barnabörn Sigurðar og afhjúpuðu þeir minnisvarðann.
Afhjúpaður minnisvarði um Sigurð Jónasson skógarvörð í rjóðri við bæjartóftir Laugarbrekku í Reykjarhólnum í september 1996. F.v. Sigurður Örn Hilmarsson og Sigurður Sigurðsson barnabörn Sigurðar, en þeir afhjúpuðu minnisvarðann þá sr. Gunnar Gíslason, Magnús Sigurjónsson framkvæmdastjóri héraðsnefndar, óþekktur og Þórarinn Sólmundarson.
Birgir Guðjónsson og Monika Sóley Borgarsdóttir með farsímaveski sem fyrirtækið Click on Island hóf framleiðslu á árið 1999. Birgir var framkvæmdastjóri fyrirtækisins.
Frá vinstri Jóna Guðrún Gísladóttir (1944), Jófríður Tobíasdóttir (1939-) og Björgvin Jónsson (1929-2000). Frá skemmtun Rökkurkórsins í Miðgarði. (Hugsanlega 20 ára afmælisfagnaður kórsins vorið 1999).