Fjórðungsmót á Sauðárkróki 1959. Haukur frá Áshildarholti efstur alhliða gæðinga. knapi, Björn Jónsson frá Mýrarlóni tekur við verðlaunum. Pálína á Skarðsá stendur fyrir framan Hauk.
Haust 1953. Námsferð í Skagafjörð til að skoða og kaupa hross. Gunnar Bjarnason og Stefán Jónsson voru með. Framhaldsdeildin. Frá v. Sigmundur Guðbjarnason, Óskar Eiríksson, Árni Jóhannsson, Kjartan Georgsson, Sveinn Guðmundsson og Páll Sigurðsson, Fornahvammi sem keyrði.
Haust 1953. Ferð í Skagafjörð til að skoða og kaupa hross. Gunnar Bjarnason og Stefán Jónsson voru með. Framhaldsdeildin. Páll Sigurðsson, Fornahvammi keyrði. Verið að koma hesti bílinn.
Flatatunga, Skag. vetur 1953. Guðrún Oddsdóttir, Flatatungu býr sig af stað til að smala stóðinu. Einar E. Gíslason og Oddur Einarsson, bóndi í Flatatungu fylgjast með.
Flatatunga 1953. Nemendur í Framhaldsdeildinni á Hvanneyri skoðum tryppin í Flatatungu. Frá v. Gísli Einarsson, Sveinn Guðmundsson, Stefán Jónsson kennari, Einar E. Gíslason, Kjartan Georgsson og Óskar Eiríksson. Flest tryppin undan Glað 404 frá Flatatungu.
Flatatunga veturinn 1953. Nemendur í Framhaldsdeild á Hvanneyri skoðum tryppin í Flatatungu. Einar E. hefur fest kaup á veturgömlu mertryppi undan Glað 404 og heldur hann um háls á því en Sveinn Guðmundsson teimir, Óskar Eiríksson og Jón G. Jónsson, fylgjast með.
Kirkjubær vetur 1955. Halldór Jónsson heldur í brúnan fola undan Svaða 352. Ingólfur Magnússon fjósameistari á Hvanneyri horfir á. Gamlibærinn í bakgrunni.
Fjórðungsmót á Melgerðismelum 1976. Hér eru 7 efstu alhliðagæðinga, frá v: No 1. Sigurður Ingimarsson, Flögumýri á Kolskegg. 2. Þorvaldur Pétursson, Akureyri á Tígli frá Hvassafelli. 3. Andres Kristinsson, Kvíabekk á Þór frá Akureyri. 4. óþekktur og Glaumur frá Steiná. 5. Páll Pétursson, Höllustöðum á Smyrli Höllustöðum. 6. Reynir Hjartarson, Brávöllum á Sprota frá Möðrufeelli 7. óþekkur á Glanna frá Áshóli.
Syðra-Skörðugil veturinn 1970. Tolli 797 frá Syðra-Skörðugili, Brúntvístjörnóttur með glampa í hægra auga. (IS1969157500). AE 7,83. Sigurjón Jónasson heldur í hann. Snjókoma.
Syðra-Skörðugili veturinn 1970. Tolli 797 frá Syðra-Skörðugili, Brúntvístjörnóttur með glampa í hægra auga. (IS1969157500). AE 7,83. Sigurjón Jónasson, heldur í hann. Gömlu fjárhúsin í baksýn sem notuð voru til 1974.