Sýslunefnd Skagfirðinga 1942-1946. Talið frá vinstri: Jón Björnsson- Jón Jónsson- Friðbjörn Traustason- Gísli Sigurðsson- Björn Jónsson- Hermann Jónsson- Pétur Hannesson- Sigurður Sigurðsson- Steinn Sveinsson- Stefán Vagnsson- Jón Gunnlaugsson- Árni Daníelsson- Jóhannes Kristjánsson- Arngrímur Sigurðsson- Gísli Magnússon (1893-1981) b. Eyhildarholti og Haraldur Jónasson.
Sýslunefnd Skagfirðinga eftir lokafund 14. desember 1988. Fremri röð frá vinstri: Rögnvaldur Gíslason- Sigurður Jónsson- Halldór Þ. Jónsson- Jón Guðmundsson- Gunnar Gíslason og Valberg Hannesson. Aftari röð frá vinstri: Steingrímur Vilhjálmsson- Bjarni Gíslason- Ófeigur Gestsson- Pálmi Runólfsson- Marinó Sigurðsson- Stefán Gestsson- Ríkharður Jónsson- Guðmundur Vilhjálmsson- Jón Eiríksson og Sigurður Sigurðsson.
Skjalið er handskrifað á pappírsörk í folio stærð. Nefndarálit atvinnumálanefndar vegna erinda frá Ræktunarfélagi Norðurlands. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 broti, alls tvær skrifaðar síður. Það varðar fjallskilamál Hofshrepps gegn Fellshreppi. Með liggur bréf frá Haraldi Hjálmarssyni og Hjálmari Pálssyni vegna málsins. Ástand skjalanna er gott.
Afrit af bréfi sem er vélritað á pappírsörk í A4 stærð. Athugasemdir við sýsluvegasjóðsreikning. Á skjalið eru einnig rituð svör við athugasemdunum. Ástand skjalsins er gott.
Afrit, vélritað á pappírsörk í folio stærð. Bréf til Vegamálastjóra. Varðar skaðabótakröfu vegna æðarvarps í landi Sjávarborgar og í landi Hellulands. Ástand skjalsins er gott.
Skjalið er vélritað á pappírsörk í foliostærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar útboð Hegranesbrautar. Á því er innisgli Skagafjarðarsýslu. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar lánsábyrgð vegna láns til Bjarna Jóhannssonar í Hólakoti. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar kláðaskoðun vegna fjárkláða í hreppnum. Á bréfinu eru nokkrar ryðskemmdir, annars er ástand þess gott.
Tillögurnar eru er handskrifaðar á pappírsörk í folio stærð Það varðar breytingar fjallskilareglugjörð sýslunnar frá 1904 Með liggur fjölritað afrit af fjallskilareglugjörð, gefið úr árið 1906. Ástand skjalanna er gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A5 broti. Þær varðar ársreikning Búnaðarfélags Lýtingsstaðahrepps og greiðslu landssjóðsstyrks til félagsins. Ástand skjalsins er gott.
Listinn er vélritaður á pappírsörk í A4 stærð og telur nemendur við Reykjarhólslaug vorið 1919. Með liggur skýrsla um sundkennsluna. Hún er vélrituð á pappírsörk í A5 stærð. Ástanda skjalanna er gott.
Pappírsörk í folio broti. Þrjár síður handskrifaðar, útsvarskæra Hjálmars Þorgilssonar á Kambi í Deildardal. Aftasta síðan er niðurstaða hreppsnefndar í útsvarskærumálum þriggja einstaklinga.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio stærð. Það varðar greiðslu sements vegna Norðurárbrúar. Með liggja skrá yfir timbur í brúna og reikningur frá Eimskipafélagi Íslands vegna sementsflutnings.
Bréfið er handskrifað á 1 pappírsörk í folio broti, alls þrjárskrifaðar síður. Með liggur reikningur yfir tekjur og gjöld Ingibjargar, ásamt kærubréfi dagsettu 116.02.1921.
Innbundin fundargerðabók í stærðinni 23,5x36 cm. Bókin er 440 númeraðar síður og þar af eru 5 auðar. Bókin er innsigluð. Þessar fundirgerðir voru gefnar út á prenti.
Innbundin fundargerðabók í stærðinni 23,5x34 cm. Bókin er 304 númeraðar síður og þar af eru 6 auðar. Kápan er farin að losna frá bókinni og kjölurinn nokkuð slitinn. Þessar fundirgerðir voru gefnar út á prenti.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A5 broti, alls tvær skrifaðar síður. Það varðar girðingu fyrir hinn svokallaða Bakkaveg. undir bréfið rita nokkrir íbúar í Rípurhreppi.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í folio stærð, afrit gert með kalkipappír. Með liggur annað samhljóða afrit. Það varðar uppgjör vegna Alþingishátíðarinnar. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar ábyrgð á Ræktunarsjóðsláni fyrir Tryggva Kvaran á Mælifelli. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar ábyrgð á Ræktunarsjóðsláni fyrir Vilhelm Jóhannsson í Litladalskoti. Ástand skjalsins er gott.
Tillögurnar eru handskrifaðar á pappírsörk í A4 broti. Þær varða ýmis fjármál. Með liggja símskeyti og pappírsörk í A4 stærð, sem einnig varða fjármál. Ástand skjalanna er gott.