Showing 4 results

Archival descriptions
Feykir (1981-) Item Minnismerki English
Advanced search options
Print preview Hierarchy View:

4 results with digital objects Show results with digital objects

Fey 299

Minnisvarði um Sigurð Jónasson skógarvörð afhjúpaður í skógræktarstöðinni Laugarbrekku í Varmahlíð haustið 1996. F.v. Sigurður Örn Hilmarsson og Sigurður Sigurðsson barnabörn Sigurðar, þá sr. Gunnar Gíslason, óþekktur, Magnús Sigurjónsson framkvæmdastjóri héraðsnefndar og Þórarinn Sólmundarson.

Feykir (1981-)

Fey 323

Minnisvarði um landspóstana á Stað í V-Hún. Á Stað í Hrútafirði var viðkomustaður landspóstsins áður en vegur og bílaumferð komst á yfir Holtavörðuheiði og árið 1993 var reistur þar minnisvarði um landspóstana. Kirkja er á Stað. Mennirnir tveir fyrir miðju eru bræðurnir Magnús (t.v.) og Eiríkur Gíslasynir frá Stað.

Feykir (1981-)

Fey 353

Skagfirðingar, hugsanlega eldri borgarar á ferð í Lónkoti við minnisvarða um Sölva Helgason. F.v. Haraldur Hermannsson (sér á bak), Anna Pála Guðmundsdóttir, Sigurlaug Guðmundsdóttir, Kári Steinsson (fjær), Hrólfur Jóhannesson, Magnús Jónasson, Birna Guðmundsdóttir, Ágústa Jónasdóttir t. v. við súluna. Aðrir óþekktir.

Feykir (1981-)

Fey 90

Minnisvarði um bræðurna á Víðivöllum, Pétur Pétursson biskup, Jón Pétursson háyfirdómari og Brynjólfur Pétursson Fjölnismaður. Víðivellir er bær í Blönduhlíð í Skagafirði, gamalt höfuðból þar sem oft bjuggu höfðingjar, til dæmis ýmsir sýslumenn Skagafjarðarsýslu. Kirkja var á Víðivöllum til forna en var aflögð 1765. Dálítill jarðhiti er á tveimur stöðum í landi jarðarinnar og þar var steypt upp sundlaug árið 1937-38 og var notuð til sundkennslu fram yfir 1960 en nýtt eitthvað lengur til sunds. Eyðibýlið Örlygsstaðir er í landi Víðivalla. Þar var Örlygsstaðabardagi háður 21. ágúst 1238 og er talið að þar hafi barist hátt í þrjú þúsund manns. Minnisvarði um bardagann var afhjúpaður 21. ágúst 1988, 750 árum eftir að hann var háður. Á Víðivöllum fór fram síðsta aftaka í Skagafirði 1789. Var þar hálshöggvin kona úr Fljótum sem hafði fætt barn sumarið áður, fyrirkomið því og grafið. Frá 1809-1842 bjó þar Pétur Pétursson prófastur með Þóru Brynjólfsdóttur konu sinni og þar ólust upp synir þeirra, þeir Jón Pétursson háyfirdómari, Pétur Pétursson biskup og Brynjólfur Pétursson Fjölnismaður, um skeið forstöðumaður íslensku stjórnardeildarinnar í Kaupmannahöfn , oft nefndir Víðivallabræður. Minnisvarði um bræðurna var reistur skammt frá bænum 1998. Í Íslandsheimsókn Kristjáns konungs 10. sumarið 1936 kom hann við á Víðivöllum ásamt fylgdarliði og borðaði hádegisverð í tjaldi á Víðivallatúni.
Dr. Sturla Friðriksson t.v. á myndinni flytur hátíðarræðu, en hann var einn af hvatamönnum þess að minnisvarðinn var reistur.

Feykir (1981-)