Úr leikritinu, Hassið hennar mömmu eftir Dario Fo, sem Leikfélag Sauðárkróks setti upp í Bifröst síðla vetrar 1993 . Ásgrímur Ingi Arngrímsson t.h. hinn óþekktur.
Kiwanisklúbburinn Drangey gað 7 ára krökkum á Króknum reiðhjólahjálma. Hugsanlega er þarna verið að afhenda hjálma við lögreglustöðina. Sveinbjörn Ragnarsson lögreglumaður t.v. og Hallur Sigurðsson kiwanismaður t.h.
Frá afhendingu reiðhjólahjálma við lögreglustöðina á Sauðárkróki, en Kiwanisklúbburinn Drangey gaf 7 ára krökkum á Króknum reiðhjólahjálma. Sveinbjörn Ragnarsson lögregluþjónn t.v. og Hallur Sigurðsson kiwanismaður t.h. (krýpur).
Sæmundur Hermannsson (t.h.) formaður Bygginganefndar öldrunarheimila afhendir Halldóri Þ. Jónssyni sýslumanni lykla að 6 nýjum íbúðum fyrir aldraða á Hofsósi í maí 1986.
Farskóli Norðurlands vestra stóð fyrir námskeiði í rafsuðu í verknámshúsi Fjölbrautaskólans í desember 1995. Leiðbeinandi var Ingvar Ingvarsson frá Iðntæknistofnun. Á myndinni eru f.v. Björn Sighvatsson, Jósep Þóroddson, Árni Ingimundarson, Stefán Steinþórsson, Kári Björn Þorsteinsson, Ingvar leiðbeinandi, Stefán Jónsson, Jónatan Sævarsson og Þorgeir Sigurðsson.
Nýr slökkvibíll kemur til Sauðárkróks 1985. F.v Halldór Þ. Jónsson sýslumaður, Björn Sverrisson slökkviliðsstjóri, Guðbrandur Frímannsson og Þórður Þórðarson bæjarstjóri.
Þátttakendur á námskeiði í markaðssetningu á fiskeldis og sjávarafurðum, sem haldið var á Hólum haustið 1990. Claes Kjaer Mathiesen t.v. og Hinrik Gústaf Ólafsson.
Bragi Guðmundsson sagnfræðingur og Jón Ísberg sýslumaður með bókina, Héraðsstjórn í Húnaþingi, við útkomu bókarinnar í desember 1992, en Bragi skrifaði bókina og Jón var formaður ritnefndar.
Saumakonur á saumastofu KS á Hofsósi (síðar Íslenska Fánasaumastofan ehf.) að sauma íslenska fánann sumarið 1991 en von var á Vigdísi forseta í Fjörðinn og því nóg að gera. F.v. Guðbjörg Guðnadóttir, Svanhildur Guðjónsdóttir og Halldóra Márusdóttir.
Árið 1991 hóf sútunarverksmiðja Loðskinns tilraunir með sútun fiskroðs. Á myndinni eru Karl Bjarnason framleiðslustjóri Loðskinns og Gísli Eymarsson með sútuð steinbíts og hlýraroð. (maí 1994)
Bjarni Jónsson sagnfræðingur (t.v), Jóhanna Lára Pálsdóttir landfræðingur og Páll Brynjarsson stjórnmálafræðingur vinna að gerð svæðisskipulags fyrir Skagafjörð (jún. 1995, sem gert er ráð fyrir að verði tilbúið síðla árs 1997.
Bára Jónsdóttir Sauðárkróki með fyrsta barn ársins 1997 (18. jan) á fæðingardeildinni á Sauðárkróki. Barnið var stúlka og faðirinn Sigurbjörn Björnsson.
Sýning á gömlum lækningaáhöldum á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki. Fjærst er Jónína Hallsdóttir hjúkrunarfræðingur þá Haflína Björnsdóttir frá Kolkuósi og næst óþekkt.
Ásdís Ármannsdóttir sýslufulltrúi á Sauðárkróki, veitir viðtöku í janúar 1997 málverki af Sigurði Sigurðssyni sýslumanni, sem Sigurður sonur Sigurðar sýslumanns málaði og gaf sýslumannsembættinu.
Arnór Sigurðsson (t.v.) afhendir Ásdísi Ármannsdóttur sýslufulltrúa málverk af föður sýnum Sigurði Sigurðssyni sýslumanni í janúar 1997. Það var Sigurður sonur Sigurðar sýslumanns sem málaði myndina og gaf hana sýslumannsembættinu í Skagafirði.
Sverrir Sveinsson veitustjóri á Siglufirði vildi í janúar 1997 að Héraðsnefnd Skagafjarðar léti gera umhverfismat fyrir iðjuver á Sraumnesi við utanverðan Skagafjörð.
Dansskemmtun eldri borgara í Bifröst. Næst t.v. Geirmundur Valtýrsson spilar á harmóniku þá Þórey Jóhannsdóttir og Þórður Eyjólfsson og María og Árni Blöndal.
Tilg. Skemmtun eldri borgar í Bifröst. Til vinstri við borðið f.v. María Sveinsdóttir (næst), Lilja Sveinsdóttir og Ágústa Jónasdóttir. Hægra megin við borðið Dagbjört Stefánsdóttir (næst) þá Þóranna Kristjánsdóttir og óþekkt.
Tilg. Skemmtun eldri borgara í Bifröst. Vinstra megin við borði f.v. Svavar Einarsson, Þórður Þórarinsson og Sólveig Júlíusdóttir. Hægra megin f.v. (fjærst) Jón Jóhannsson, Sigríður Árnadóttir og Ólafur Þórarinsson.