Showing 61 results

Archival descriptions
Magnús Kr. Gíslason: Skjalasafn File
Print preview Hierarchy View:

Bréfritari: Ásgrímur Hartmannsson

Ásgrímur Hartmannsson (1911-2001) skrifar Magnúsi. Ásgrímur var bæjarstjóri, kaupmaður og framkvæmdastjóri á Ólafsfirði. Meðfylgjandi er miði frá Sigurmoni Hartmannssyni (1905-1991) sem á stendur: Systurnar á Vöglum. Geymist þar til þær hafa vit á. Sigurmon.

Bréfritari: Ingvar Sigurðsson

Ingvar Sigurðsson skrifar Magnúsi.
Ath. Ingvar skrifar frá Móeiðarhvoli að mestu. Aftast í safninu er bréf undirskrifað af Ingvari H. Sigurðssyni, Glaumbæ. Um er að ræða Hjálmtý Ingvar Sigurðsson (1910-1979) en hann tók upp nafnið Hjálmtýr, breytti því síðan í Hallgrímur Ingvar Thorlacius. Ekki er á hreinu hvort um er að ræða þann sama og skrifar frá Móeiðarhvoli.

Bréfritari: Ninna J. Stevens

Ninna J. Stevens (f. 1903) skrifar Magnúsi. Hún var búsett í Blaine, Washington, USA. Hún var frænka Magnúsar, eða ritar þannig í sumum bréfanna. Það er þáttur um hana í Vestfirskum æviskrám IV, bls. 285-289. Hún hét Jónína Guðlaug Johnson, var fædd í Hallsonbyggð í North Dakota þann 7. febrúar 1903. Hún var söngkona. Maður hennar var Guðbjartur (Guðbert) Marshall Stevens, fæddur í Winnipeg þann 26. mars 1897.

Bréfritari: Óþekktur

Bréfið er á ensku og íslensku. Í haus þess er sama heimilisfang og í bréfi Wilhelms Anderson. Skrift er ekki samsvarandi við bréf Willhelms og ekki er ljóst hver bréfritari er. E.t.v. vantar eina síðu. Í forskoðun Hjalta er talað um afkomanda Björns Jónssonar frá Sleitustöðum.

Bréfritari: Stefán Vagnsson

Stefán Vagnsson (1889-1963) skrifar Magnúsi. Stefán var bóndi, skáld og kennari á Flugumýri, á Sólheimum og á Hjaltastöðum í Blönduhlíð, Skagafirði. Síðar skrifstofumaður á Sauðárkróki.

Poesiebók

Bók með uppskrifuðum kvæðum eftir ýmsa. Bókin er merkt Ingibjörgu og fremst í bókinni stendur: Til Imbu Stefánsd. frá Imbu Magnúsd.

Ýmis gögn

119 blöð að mestu í A4 broti. Vélritað og handskrifað. Einnig umslög, stílabók og viðskiptabók við Séreignasjóð Sláturfélags Skagfirðinga. Einnig fleiri gögn, m.a. teikning af húsi. Annars að mestu leyti bókhaldstengt.

Ýmis kveðskapur

Ýmis kveðskapur, að mestu eftir Magnús. Einnig kvæði undirritað af Bjarna Gíslasyni og vísur undirritaðar af St. St, Stefáni Stefánssyni frá Móskógum á Bökkum, Skagafirði.
Með er úrklippa úr blaði, minningagrein eftir Magnús í bundnu máli um Gísla Sigurðsson hreppstjóra á Víðivöllum, 1948.
Sum kvæði Magnúsar birtust seinna í bókinni Ég kem norðan kjöl (1954).