Showing 8581 results

Archival descriptions
File
Advanced search options
Print preview Hierarchy View:

68 results with digital objects Show results with digital objects

Fundagerðarbók (Búkolla) 1886-1933

Innbundin og hanskrifuð bók frá 1886. Bókin er bundin með rauðu leðri sem hefur þornað og er illa farið. Bindingin er sömuleiðis mjög illa farin og eitthvað af blaðsíðunum lausar.
Í bókinni eru handskráðar fundagerðir, félagatal, lög og reikningar félagsins. Einnig jarbótaskýrslur,, eignaskrá og yfirlit yfir greiddum styrk til bænda.
Á saurblaði er skrifað "Búkolla", líklega var bókin kölluð það.

Búnaðarfélag Skarðshrepps

Fundagerðarbók 1934-1974

Innbundin og handskrifuð bók. Blaðsíður eru línustrikaðar. Bókin er í góðu ásigkomulagi og vel læsileg, í hana eru handskrifaðar fundargerðir, lög og reikningar félagsins. Einnig félagatal auk yfirlits yfir greidda styrki til bændanna.

Búnaðarfélag Skarðshrepps

Fundagerðabók Ylfingaflokks 1934-1952

Innbundin og handskrifuð bók, í bókina eru skráðar fundagerðir, félagaskrá og yfirlit yfir mætingar félagsmanna.
Í bókinni eru persónugreinanleg gögn.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Fundagerðabók "Ylfingaflokks" 1934-1952

Innbundin og handskrifuð bók. Í bókina er skráður stofnfundur Ylfingaflokksins sem var 10. mars 1934, einnig eru færðar inn skýrslur um starfið og skrá yfir mætingar skátafélaga.
Bókin er í sæmilegu ástandi, heftin sem binda hana eru orðin mjög ryðguð og farin að skemma út frá sér.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Fundagerðabók "Svanir" 1948-1949

Innbundin og handskrifuð bók með fundagerðum og sagt líka frá annari starfsemi skátaflokksins. Bókin er vel varðveitt, lítill hluti bókarinnar er notaður en hún er vel læsileg.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Fundagerðabók Svanir 1936-1943

Innbundin og handskrifuð bók. Líklega var byrjað að skrifa fundagerðir í bókina síðla árs 1936. Bókarbindingin er orðin laus, en bókin er vel læsileg og að öðru leyti í sæmilegu ásigkomulagi. Límborði er á kjölnum.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Fundagerðabók "Svana" 1936-1943

Harðspjalda bók með fundagerðum fyrir 2. flokk (Svani), einnig er félagatal og yfirlit yfir mætingar. Bókin er í góðu ásigkomulagi og vel læsileg.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Fundagerðabók "Smyrla" 1932-1941

Þunn stílabók með línustrikuðum blaðsíðum. Miðjuopnan er laus. Bókin er ágætlega varðveitt en pappinn utan á er rifinn frá brún og inn að miðju.

Skátafélagið Eilífsbúar

Fundagerðabók Smyrla 1932-1941

Þunn stílabók með handskrifuðum fundagerðum og frásögnum úr starfi félagsins. Bókin er rifin og blaðið í miðju er laust, hún er vel læsileg og í ágætu ásigkomulagi.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Fundagerðabók Roverskáta 1940-1960

Innbundin og handskrifuð bók, í bókinni er skráður stofnfundur Roverskáta (fyrir skáta 18 ára og eldri). Aðeins nokkrar fundagerðir eru skráðar í bókina en hún er ágætlega varðveitt og vel læsileg.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Fundagerðabók kvenskátafélagsins Ásynjur

Innbundin og handskrifuð bók. Saurblaðið er fagurlega skreytt, og á næstu blaðsíðum eru skátalögin, skátaheitið, kjörorð skáta og heilbrigðisreglur Baden Powells skráð með skrautskrift. Bindingin er léleg en bókin er engu að síður ágætlega varðveitt, plastfilma var utan um bókina en hún var fjarlægð.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Fundagerðabók Fálkar 1929-1943

Þunn stílabók með línustrikuðum blaðsíðum, í bókina eru skráðar dagbókarfærslur Fálka. Bókin er vel læsileg og í ágætu ásigkomulagi. Límborði er á kjölnum.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Fundagerðabók Fálka 1929-1943

Þunn stílabók með handskrifuðum fundagerðum og frásögnum úr starfi Fálka. Bókin er í ágætu ásigkomulagi og vel læsileg.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Fundagerðabók "Ernir" 1960-1961

Þunn stílabók með handskrifuðum fundagerðum, líklega frá árinu 1960-1961. Bókin er vel læsileg og ágætlega varðveitt. Miði framan á er laus.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Fundagerðabók "Ernir" 1960-1961

Þunn stílabók með handskrifuðum fundagerðum í bókinni og öðru er tengist starfsemi skátaflokksins. Bókin er vel læsileg og í góðu ásigkomulagi.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Fundagerðabók 1.sveitar 1930-1939

Innbundin og handskrifuð bók. Í bókinni eru fundagerðir 1. sveitar og félagaskrá, einnig fundagerðir sveita- og foringjafunda. Í bókina eru límdar tvær dagskrár fyrir skemmtanir sem skátarnir stóðu fyrir.
Bókin er í ágætu ásigkomulagi og er vel læsileg.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Fundagerðabók 1992-2002

Innbundin og handskrifuð bók með fundargerðum stjórnar byggingarnefndar félags eldri borgara í Skagafirði tímabilið 1992-2002. Í bókinni eru einnig rúðstrikuð blöð með samantekt frá því að ákvörðunartaka fyrir byggingunni er gerð og þar til byrjað er á framkvæmdum.

Fundagerðabók 1946-1958

Innbundin og handskrifuð bók með fundagerðum flokks- og sveitafundum skátafélagsins. Ein fundagerð (frá 1946) er aftarlega í bókinni. Bókin er vel læsileg og ágætlega varðveitt, aðeins lítill hluti bókarinnar er notaður.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Fundagerðabók 1946-1949

Innbundin og handskrifuð bók með fundagerðum og sagt líka frá annari starfsemi skátaflokksins. Bókin er vel varðveitt og læsileg, lítill hluti bókarinnar er notaður.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Fundagerðabók 1943-1946

Þunn innbundin handskrifuð bók með línustrikuðum blöðum. Bókin inniheldur fundgerðir stjórnar S.S.K. og aðalfunda, einnig fyrstu lög sambandsins. Bókin er vel læsileg og hefur varðveist mjög vel. Límborði er á kili bókarinnar.

Samband skagfirskra kvenna (1943 - )

Fundagerðabók 1940-1962

Innbundin og handskrifuð bók með fundagerðum foringja- sveitar-, deildar-, og stjórnarfunda. Einnig eru lög og ársskýrslur félagsins skráðar í bókina. Bókin er í góðu ásigkomulagi og er vel læsileg. Límborði er á kjöl bókarinnar.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Fundagerðabók 1930-1957

Handskrifuð stílabók með línum og blöðin nokkuð gulnuð, en heilleg. Í bókinni eru 5 laus fundargerðablöð sem tilheyra Lestrarfélags Óslandshlíðar, dagsett 1954-1957.

Lestrarfélag Óslandshlíðar

Fundagerðabók 1930-1939

Innbundin bók með línustrikuðum blaðsíðum. Í bókina eru færðar inn fundagerðir og ferðasögur auk annars sem félagið kom að.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Fundagerðabók 1913-1929

Bókin er handskrifuð stílabók með línum, blöðin eru gulnuð og nokkuð lausleg, sum blöðin eru rifinn og á aftari bókakápu vantar rifinn bút. Fjallað er um fundargerðir og lög félagsins.

Results 5441 to 5525 of 8581