Bréfið er ritað á pappírsörk í A5 broti, ein skrifuð síða. Bréfritari lýsir því yfir að hann geti ekki gegnt starfi sauðfjáreftirlitsmanns á komandi ári.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í folio broti, tvær skrifaðar síður. Það varðar meðmæli bréfritara með kynbótabúinu á Nautabúi, vegna styrkumsóknar þess.
Skýrslan er handskrifuð á pappírsörk í folio stærð, undirrituð af Albert Kristjánssyni á Páfastöðum. Hún varðar fjárskoðanir í 10 hreppum í sýslunni. Með liggur bréf, einnig undirritað af Albert.
Tvær handskrifaðar pappírsarkir í A4 stærð. Listi yfir afhendingu baðlyfja vegna fjárkláða. Með liggja 27 pappírsseðlar með kvittunum fyrir móttöku baðlyfja. Ástand skjalanna er gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar fjárkláða í fé Sveinbjörns Sveinssonar bónda í Breiðargerði. Á skjalinu eru ryðskemmdir eftir bréfaklemmu, en að öðru leyti í góðu ástandi.
Stílabókin er í stærðinni 19,5 x 15,4 cm. Hún inniheldur æviágrip um Gunnar Einarsson á Þangskála, Snorra Bessason í Grundarkoti og Guðmund Bergsson. Einnig ýmsar ættfræðiupplýsingar, ábúendatal eftir 1900, fjártölu Holtshrepps 1967 o.fl. Kápan er óhrein en ástand bókarinnar er að öðru leyti gott.
Stílabókin er í stærðinni 25,3 x 19,5 cm. Í bókina er skrifaður ýmiss fróðleikur, m.a. um presta sem þjónað hafa í Fljótum, ljóð, þjóðsöguna um Sálina hans Jóns míns, sauðfjártölu í Holtshreppi og Haganesvík 1966, úrslit kosninga í kaupstöðum 1962 og uppskrift af viðtali við Hannes Hannesson á Melbreið. Ástand bókarinnar er gott.
Stílabókin er í stærðinni 32 x 13 cm. Innbundin í harðspjalda kápu. Í bókina er skrifaður fróðleikur og ljóð úr útvarpsþáttum. Einnig ýmis önnur ljóð, æviágrip Pálma Sveinssonar á Reykjavöllum í Skagafirði, hugleiðing um kosningarétt kvenna, annála atriði, fróðleikur um símalagningu og Glaumbæ í Skagafirði, fjártala í Holtshreppi 1932,frásögn um leiksýningu 1953 (ekki ljóst hvar hún var sett upp) og sögn um álagablett í Minni-Brekku. Ástand bókarinnar er gott. Með liggja tvö minnisblöð
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð auk fjórðungs úr annarri pappírsörk. Efi bréfsins er sauðfjárbúskapur þeirra Kolbeins og Péturs og auk þess svar við fyrirspurn um ættir Péturs. Blöðin eru upplituð og óhrein.
Innbundin bók í stærð 21,5 x 30 cm. Í hana eru færðar upplýsingar um sauðfé félagsmanna í fjárræktarfélagi Hjaltadals. Færslurnar eru frá tímabilinu 1950-1966. Ástand bókarinnar er gott.
Innbundin bók í stærð 21,5 x 30 cm. Í hana eru færðar upplýsingar um sauðfé félagsmanna í fjárræktarfélagi Hólahrepps. Færslurnar eru frá tímabilinu 1950-1966. Ástand bókarinnar er gott.
Forprentaðar hrútaskýrslur í A3 stærð með handskrifuðum upplýsingum um sauðfjárrækt, fyrir tímabilið 1952-1974. Allar skýrslurnar eru vel varðveittar og læsilegar.
Jón Lárusson (1917). Nokkur orð um hirðing sauðfjár. Akureyri, Prentsmiðja Odds Björnssonar. Ritið er 21,9x14,4 cm, telur 16 blaðsíður. Umfjöllun um hirðingu sauðfjár, ásamt ærnafnavísum og hrútanafnavísum.