Austurhlið Laufásbæjar - baðstofuhúsið. Gluggarnir vinstra megin eru á eldhúsi og búri - lengst t.h. er pilthúsið. Uppi er baðstofan - hjónaherbergið og kontórinn.
Laufás - framhlið: gestastofa - bæjardyr - skáli - dúnhús og skemma. Sr. Þorvarður lengst t.v. Matthías Þórðarson þjóðminjavörður í miðið og líklega Baldur Helgason smiður lengst t.v. Hundurinn hét Vígi. Laufáshnjúkur yfir bænum. Á burstinni má sjá æðarblika úr tré og á mæninum yfir bæjargöngunum er vindhani með nafni bæjarins.