Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A5 broti, alls tvær skrifaðar síður. Það varðar girðingu fyrir hinn svokallaða Bakkaveg. undir bréfið rita nokkrir íbúar í Rípurhreppi.
Fundargerðin er handskrifuð á pappírsörk í folio broti, alls tvær skrifaðar síður. Varðar sameiginlegan fund hreppanna þriggja þar sem rætt var um ágreining um notkum vegar í landi Grænhóls. Einnig tillögur um að taka ferðaleiðir til Sauðárkróks í tölu hreppavega.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í folio stærð, alls ein skrifuð síða. Það varðar ágang búfjár frá Sauðárkróki á jörðinni Skarði og brúna yfir Gönguskarðsá.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í folio broti, alls þrjár skrifaðar síður. Það varðar Vatnabakkaveg og girðingu í landi Grænhóls. Undir það rita 17 aðilar, að því er virðist allir íbúar í Sauðákrókshreppi.
Bréfið er ritað á pappírsörk í folio broti, alls 1 skrifuð síða. Það varðar mótmæli við þeim gjörðum hreppsnefndar að taka Vatnabakkaveg í hreppsvegatölu. Undir bréfið rita 24 íbúar hreppsins og athugasemd ritar einn íbúi til viðbótar.
Vélritað heftir í folio broti, alls 18 vélritaðar síður, gefið út af vegamálastjóra. Síðurnar eru númeraðar með blýanti og eru þær öftustu eftirrit og bréf frá Vegamálastjóra. Í heftinu er getið um hina ýmsu vegi í sýslunni.