Showing 207 results

Archival descriptions
Item
Print preview Hierarchy View:

9 results with digital objects Show results with digital objects

Viðbótarskattskrá 1978

Viðbótarskattskrá Akrahrepps fyrir árið 1978. Skráin er tölvuútprentun, 2 pappírsarkir í folio stærð.

Akrahreppur (1000-)

Útsvar uppkast

Átta reikningseyðublöð í A4 broti ásamt strimli úr reiknivél. Á blöðin eru handskrifaðar upplýsingar sem varða tekjur og gjöld Akrahrepps, útsvar og breytingar á því. Skjalið er ódagsett.

Akrahreppur (1000-)

Uppdráttur Íslands blað 64

Tvö eintök af landakorti. Uppdráttur Íslands , blað 64, Vatnahjallavegur. Neðst í vinstra horni stendur:
"Uppdráttur Íslands smækkaður niður í 1:200 000. Sýslumörk og landamerki samkævmt skoðun eigenda Ábæjar og Nýjabæjar í Skagafirði. Reykjavík 3. maí 1966 Zophonías Pálsson verkefr F.V.Í."

Akrahreppur (1000-)

Skýrslubók fyrir hreppstjóra Akrahrepps 1930-1991

Skýrslubók fyrir hreppstjóra Akrahrepps 1930-1991. Ýmsar skrár og skýrslur, svo sem:
-Skýrsla um búnaðarástand í Akrahreppi

  • Skrá yfir verkfæra karlmenn 20-60 ára í Akrahreppi
    -Skýrsla um ábúendur jarðeigna í Akrahreppi

Akrahreppur (1000-)

Skýrsla um ástand íþróttavallar

Skýrslan er vélrituð á pappírsörk í A4 stærð. Á skýrslunni er gerð grein fyrir ástandi og notkun íþróttavallar, en ekki kemur fram um hvaða völl er að ræða.

Akrahreppur (1000-)

Results 1 to 85 of 207