Athugasemdirnar eru handskrifaðar á pappírsörk í folio broti. Með liggja kvittun fyrir dvöl á heilsuhæli, fóðurbirgðaskoðanir, húslán til barnaprófa og 4 kvittanir vegna búfjárskoðunar. Alls 5 pappírsarkir sem varða athugasemdir við sveitarsjóðsreikning Holtshrepps fyrir faradagaárið 1914-1915. Ástand skjalanna er gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar reglugjörð um grenjaleitir og refaveiðar í Skagafjarðarsýslu og kosningu á þremur mönnum í refaveiðinefnd fyrir hreppana. Ástand skjalsins er gott.
Stefán Ásgrímsson Efra-Ási kona hans Helga Jónsdóttir og börn þeirra- talið frá vinstri: Steinn Stefánsson- Ásgrímur Stefánsson og Guðrún Stefánsdóttir.