Hr. Karl Sigurbjörnsson biskup messaði í Drangey í ágúst árið 2000. Honum til aðstoðar var var séra Guðbjörg Jóhannesdóttir. Um hundrað manns hlýddu á biskup í blíðskaparveðri.
Hr. Karl Sigurbjörnsson biskup messaði í Drangey í ágúst árið 2000. Honum til aðstoðar var séra Guðbjörg Jóhannesdóttir. Um hundrað manns hlýddu á biskup í blíðskaparveðri.
Drangeyjarsund. Mynd tekin í fjörunni í Drangey 15. ágúst 1994. Frá vinstri, Jón Eiríksson (1929-) "Drangeyjarjarl" ásamt þrem Drangeyjarsundsköppum, þeim Eyjólfi Jónssyni, Axel Kvaran og Pétri Eiríkssyni.
Sigurfinnur að síga Háusigum. Sigurfinnur með vaðinn yfir bjargstokknum og reiðubúinn í niðurferðina. Einu sinni kom Sigurfinnur með 320 heil egg úr þessum stað.
Sigið í Lambhóla, Drangey. Í Lambhöfðanum í Drangey. Í Drangey eru öll egg tekin í svonefndum "hrifsingum" þar sem sigmaðurinn nær hvergi að leysa sig úr vaðnum og safna saman eggjum á syllum eins og í flestum öðrum þekktustu fuglabjörgum Íslands.