Dansflokkurinn E-ROTIK sýndi dans í leikhléi í leik Tindastóls og Njarðvíkur í körfubolta í mars 1996. Dansflokkinn skipuðu Guðrún Rut Guðmundsdóttir, Áróra Rós Ingadóttir, Erna María Þrastardóttir, Íris Ösp Sveinbjörnsdóttir og Silvía Rut þorsteinsdóttir. Þess má geta að þær höfðu unnið til bronsverðlauna á Íslandsmeistaramótinu í free style dönsum í Tónabæ skömmu áður.
Frá Þorramóti Grósku í boccia árið 1998 í íþróttahúsinu á Króknum. F.v. Ásta Ragnarsdóttir, Sigríður Sigurðardóttir, Sólveig Sigurðardóttir, óþekkt og Jóhanna Haraldsdóttir.
Frjálsíþróttafólk á Króknum bætir aðstöðu sína í sjálfboðavinnu vorið 1993. F.v. Gísli Sigurðsson, Björn Sigurðsson, ? Björnsson, Sigurður Björnsson og Ingibjörg Guðjónsdóttir.
Kristinn Einarsson frá Akranesi tekur land á Reykjum að loknu Drangeyjarsundi í ágúst 1994. T.v. við hann er Björn Jónsson frá Fagranesi og t.h. Bragi Halldórsson frá Akranesi.
Guðmundur Ingvi Einarsson (1981-) Íslandsmeistari í golfi í flokki unglinga 15-18 ára 1999. Hann náði jafnframt góðum árangri á Norðurlandamóti unglinga í Finnlandi það sumar.
Golf á Hlíðarendavelli í ágúst 1990. Ólafur Ingimarsson púttar. Bogi bróðir hans situr til hægri og Sigurgeir Angantýsson fyrir miðju (rauð peysa). Aðrir óþekktir.
Opið golfmót á Hlíðarendavelli í júlí 1986. 4 efstu í karlaflokki. Ragnar H. Ragnarsson frá Húsavík lengst t.h. sigraði og Þórhallur Pálsson lengst t.v. Hinir óþekktir.
Landsbankinn færir Golfklúbbi Sauðárkróks 1500 golfkúlur að gjöf vorið 1997 fyrir öflugt unglingastarf klúbbsins. Björn Steinn Sveinsson formaður Golfklúbbsins (t.h.) tekur við gjöfinni frá Maríu Lóu Friðjónsdóttur fulltrúa bankans.
Í Opinni viku í skólanum á Húnavöllum í október 1988 var unnið að ýmsum verkefnum. Í veislu um kvöldið var svo borin fram terta sem var líkan af skólanum. Aðalleiðbeinandi í vikunni var Örn Ingi Gíslason myndlistamaður.
Þarna er sennilega verið að taka upp Galdrakarllnn í Oz í Bifröst í janúar 1985, en Leikfélag Sauðárkróks setti sýninguna upp í leikstjórn Hávars Sigurjónssonar. Það var síðan sýnt í Stundinni okkar í sjónvarpinu. Maðurinn sem situr er Snorri Sveinn Friðriksson, tökumaður óþekktur.
Alþýðusönghátíð í Bóknámshúsinu á Sauðárkróki sumarið 1997. Frá vinstri Gísli Þór Ólafsson (1979-) spilar á gítar. María Gréta Ólafsdóttir (1956-), Halldóra Helgadóttir (1945-), Svanhildur Elsa Jónsdóttir (1942-) og Guðný Hólmfríður Axelsdóttir (1967-).
Þórir Ísólfsson (1954-) ræktunarmaður og bóndi á Lækjamóti flytur fyrirlestur á ráðstefnunni "Landbúnaður í nútíð og framtíð" sem haldin var á Hvammstanga í september 1999.
Minnisvarði um Sigurð Jónasson skógarvörð afhjúpaður í skógræktarstöðinni Laugarbrekku í Varmahlíð haustið 1996. F.v. Sigurður Örn Hilmarsson og Sigurður Sigurðsson barnabörn Sigurðar, þá sr. Gunnar Gíslason, óþekktur, Magnús Sigurjónsson framkvæmdastjóri héraðsnefndar og Þórarinn Sólmundarson.
Minnisvarði við Gullstein skammt frá Gróru-Giljá þar sem minnst er1000 kristniboðs í Húnaþingi. Minnisvarðinn sem er eftir Raganar Kjartansson var afhjúpaður í júlí 1981.
Bygging Ábæjar á Sauðárkróki vorið 1992. Verið að leggja snjóbræðslurör (Kobra) framleidd á Sauðárkróki. Jón Geirmundsson (1956-) til vinstri, hinn óþekktur.
Feykir lesin. Anton Angantýsson næst og konan í miðið á bak við hann, sennilega Halla Jónasdóttir og hugsanlega María Guðmundsdóttir t.h. Aðrir óþekktir, Myndin líklega tekin í Bifröst.
Minnisvarði við Gullstein skammt frá Stóru-Giljá þar sem minnst er 1000 ára kristniboðs í Húnaþingi. Minnisvarðinn sem er eftir Ragnar Kjartansson var afhjúpaður í júlí 1981.