Tekið á móti norrænum konum að Löngumýri sumarið 1951. Frá vinstri: Karlotta á Hólum, Minna Bang, Sauðárkróki, Sigrún Pálmadóttir, Reynistað, Ingibjörg Jóhannsdóttir á Löngumýri, Amalía á Víðimel, Ingibjörg á Úlfsstöðum, Helga á Víðivöllum, Ólöf í Krossanesi, Björg á Löngumýri og Lilja Sigurðardóttir, Víðivöllum.
Heimildir frá Ingibjörgu Jóhannsdóttur á Löngumýri um sundkennslu í Skagafirði en afi hennar Ólafur Guðmundsson í Hamarsgerði var með þeim fyrstu sem kenndi sund í héraðinu. Í bréfi þessu fjallar Ingibjörg mest um Reykjalaug í Tungusveit.