Óþekktur fundur í matsal Heimavistar Fjölbrautaskólans. F.v. Ragnar Arnalds ráðherra, Þorkell Þorsteinsson, Jón Hjartarson skólameistari, Anna Kristín Gunnarsdóttir, Sveinn Allan Mortens og Snorri Björn Sigurðsson bæjarstjóri.
Frá Mjúkísmóti á Holtstjörn neðan Skörðugilsbæjanna, þar sem árlega er haldið ískappreiðamót, alla jafna á þorra. F.v. Sveinn Allan Morthens, Jón Hjörleifsson Kimbastöðum, Einar E. Gíslason Syðra-Skörðugili og Hróðmar Hjörleifsson Kimbastöðum.
Frá ársþingi SSNV sem haldið var á Löngumýri sumarið 1996. Sigurður Tómas Björgvinsson (t.h.) starfsmaður kynningarmiðstöðvar Evrópurannsókna kynnir úrbætur í atvinnumálum í kjördæminu. Hinir eru Agnar Gunnarsson t.v. og Sveinn Allan Mortens.
Tilg. Frá opnun meðferðar- og skólaheimilisins að Háholti í desember 1998. F.v. Páll Pétursson (1937-), Sigrún Magnúsdóttir, Gísli Gunnarsson (1957-), Sveinn Allan Morthens (1951-) og Magnús Heiðar Sigurjónsson (1929-).
Frá opnun meðferðar- og skólaheimilisins að Háholti í Skagafirði í desember 1998 F.v. Sveinn Allan Morthens (1951-) forstöðumaður heimilisins, Magnús Heiðar Sigurjónsson (1929-) framkvæmdastjóri Héraðsnefndar og Bragi Guðbrandsson forstjóri Barnaverndarstofu.
10 nýjar sláttuvélar voru afhentar eigendum sínum á hafnargarðinum á Sauðárkróki vorið 1997. Vélarnar sem voru settar saman og tollafgreiddar á Sauðárkróki voru keyptar af Búvélum hf. en forgöngu um kaupin hafði Sigmar Jóhannsson, Sólheimum. F.v. Egill Örlygsson Daufá, Óskar Broddason Framnesi, Vagn Stefánsson Minni-Ökrum, Sigurður Baldursson Páfastöðum, Sveinn Allan Morthens Garðhúsum, Theódór Júlíusson frá Búvélum, Pálmar Jóhannesson Egg, Pálmi Ragnarsson Garðakoti, Halldór Steingrímsson Brimnesi, Ragnar Gunnlaugsson Hátúni og Sigmar Jóhannsson Sólheimum.
10 bændur keyptu jafn margar sláttuvélarnar í einum pakka frá Búvélum hf. í júní 1997. Voru vélarnar tollafgreiddar og settar saman á Sauðárkróki. Frá vinstri, Egill Örlygsson, Óskar Broddason, Vagn Þormar Stefánsson (1965-), Sigurður Baldursson (1963-), Sveinn Allan Morthens (1951-), Theódór Júlíusson frá Búvélum, Þórður Pálmar Jóhannesson (1945-2012), Pálmi Ragnarsson, Halldór S. Steingrímsson (1955-), Ragnar Gunnlaugsson (1949-) og Sigmar Jóhannsson (1947-) sem gekkst fyrir kaupunum.