Sigurbjörg Björnsdóttir (1886-1984) skrifar Magnúsi. Sigurbjörg var húsfreyja í Deildartungu í Reykholtsdal, Borgarfirði. Síðast búsett í Reykholtsdalshreppi.
Stefán Vagnsson (1889-1963) skrifar Magnúsi. Stefán var bóndi, skáld og kennari á Flugumýri, á Sólheimum og á Hjaltastöðum í Blönduhlíð, Skagafirði. Síðar skrifstofumaður á Sauðárkróki.
Árni Ásgrímur Þorkelsson Fæddur á Skeggstöðum, Svartárdal 17. desember 1852 Látinn 2. desember 1940 Var á Sauðárkróki 1930. Hreppstjóri og bóndi í Geitaskarði í Langadal, Engihlíðarhr., A-Hún.
Ingvar Sigurðsson skrifar Magnúsi. Ath. Ingvar skrifar frá Móeiðarhvoli að mestu. Aftast í safninu er bréf undirskrifað af Ingvari H. Sigurðssyni, Glaumbæ. Um er að ræða Hjálmtý Ingvar Sigurðsson (1910-1979) en hann tók upp nafnið Hjálmtýr, breytti því síðan í Hallgrímur Ingvar Thorlacius. Ekki er á hreinu hvort um er að ræða þann sama og skrifar frá Móeiðarhvoli.
Ninna J. Stevens (f. 1903) skrifar Magnúsi. Hún var búsett í Blaine, Washington, USA. Hún var frænka Magnúsar, eða ritar þannig í sumum bréfanna. Það er þáttur um hana í Vestfirskum æviskrám IV, bls. 285-289. Hún hét Jónína Guðlaug Johnson, var fædd í Hallsonbyggð í North Dakota þann 7. febrúar 1903. Hún var söngkona. Maður hennar var Guðbjartur (Guðbert) Marshall Stevens, fæddur í Winnipeg þann 26. mars 1897.
Bréfið er á ensku og íslensku. Í haus þess er sama heimilisfang og í bréfi Wilhelms Anderson. Skrift er ekki samsvarandi við bréf Willhelms og ekki er ljóst hver bréfritari er. E.t.v. vantar eina síðu. Í forskoðun Hjalta er talað um afkomanda Björns Jónssonar frá Sleitustöðum.
Icelandic Folk Tales and Fairy Stories, samantekt og þýðing: Holmes Boynton. Bókin er árituð af útgefandanum, Beatrice S. Gislason Boynton, ekkju Holmes.
Ýmis kveðskapur, að mestu eftir Magnús. Einnig kvæði undirritað af Bjarna Gíslasyni og vísur undirritaðar af St. St, Stefáni Stefánssyni frá Móskógum á Bökkum, Skagafirði. Með er úrklippa úr blaði, minningagrein eftir Magnús í bundnu máli um Gísla Sigurðsson hreppstjóra á Víðivöllum, 1948. Sum kvæði Magnúsar birtust seinna í bókinni Ég kem norðan kjöl (1954).
Í dyrunum á húsinu er Anna Classen, óvitað um röð hægra megin við hús Ingibjörg Classen og María Classen. Lengst til hægri Ólafur Briem er bjó í Ólafshúsi.
Öskubuskur voru kvennahljómsveit (söngsveit) sem var stofnuð af fimm nemendum í Gagnfræðaskólanum í Reykjavík árið 1945. Fáum árum síðar voru aðeins Margrét Björnsdóttir og Sigrún Jónsdóttir eftir. Þær gáfu út fjórar 78-snúninga plötur hjá útgáfunni Tónika árið 1954. Þekktustu lög þeirra af þessum plötum eru „Seztu hérna hjá mér ástin mín“ (Lydia K. Liliuokalani/Jón frá Ljárskógum) og „Bimbó“ (Rodney Morris/Guðmundur Sigurðsson). Sigrún Jónsdóttir m eð gítarinn.