Ninna J. Stevens (f. 1903) skrifar Magnúsi. Hún var búsett í Blaine, Washington, USA. Hún var frænka Magnúsar, eða ritar þannig í sumum bréfanna. Það er þáttur um hana í Vestfirskum æviskrám IV, bls. 285-289. Hún hét Jónína Guðlaug Johnson, var fædd í Hallsonbyggð í North Dakota þann 7. febrúar 1903. Hún var söngkona. Maður hennar var Guðbjartur (Guðbert) Marshall Stevens, fæddur í Winnipeg þann 26. mars 1897.
Ingvar Sigurðsson skrifar Magnúsi. Ath. Ingvar skrifar frá Móeiðarhvoli að mestu. Aftast í safninu er bréf undirskrifað af Ingvari H. Sigurðssyni, Glaumbæ. Um er að ræða Hjálmtý Ingvar Sigurðsson (1910-1979) en hann tók upp nafnið Hjálmtýr, breytti því síðan í Hallgrímur Ingvar Thorlacius. Ekki er á hreinu hvort um er að ræða þann sama og skrifar frá Móeiðarhvoli.
Stefán Vagnsson (1889-1963) skrifar Magnúsi. Stefán var bóndi, skáld og kennari á Flugumýri, á Sólheimum og á Hjaltastöðum í Blönduhlíð, Skagafirði. Síðar skrifstofumaður á Sauðárkróki.
Sigurbjörg Björnsdóttir (1886-1984) skrifar Magnúsi. Sigurbjörg var húsfreyja í Deildartungu í Reykholtsdal, Borgarfirði. Síðast búsett í Reykholtsdalshreppi.
Baldur Pálmason (1919-2010), skrifar Magnúsi. Baldur var útvarpsmaður, ljóðskáld og þýðandi í Reykjavík. Á haus bréfsins stendur: Skrifstofa útvarpsráðs.
Ásgrímur Hartmannsson (1911-2001) skrifar Magnúsi. Ásgrímur var bæjarstjóri, kaupmaður og framkvæmdastjóri á Ólafsfirði. Meðfylgjandi er miði frá Sigurmoni Hartmannssyni (1905-1991) sem á stendur: Systurnar á Vöglum. Geymist þar til þær hafa vit á. Sigurmon.
Leifur Sigurðsson (1921-2006) skrifar föður sínum þrjú bréf. Eitt bréfið er til Margrétar Þorsteinsdóttur (1889-1989), móður Leifs. Leifur var rennismiður. Kona: Friðrika Elíasdóttir (1913-2004).
Margrét Hjaltadóttir (f. 1950) skrifar afa sínum. Maður hennar: Þórir Jón Ásmundsson (f. 1947). Þau bjuggu um skeið á Hjalla í Akrahreppi en fluttu svo suður. Margrét er kölluð Gréta.
Þórólfur Pétursson (f. 1942) skrifar afa sínum. Þórólfur er bóndi á Hjaltastöðum í Akrahreppi. Kona: Anna Jóhannesdóttir (f. 1956). Systir Þórólfs, Bryndís Pétursdóttir (f. 1947) er meðskrifandi að jólakorti sem er innan safnsins.
Sigríður Márusdóttir (f. 1930) skrifar tengdaföður sínum. Maður hennar var Þorsteinn Sigurðsson (1918-2011) sonur Sigurðar. Sigríður býr í Hjaltastaðahvammi í Akrahreppi, en þar höfðu þau bú, hún og Þorsteinn. Sigríður er kölluð Sigga.
Þorsteinn Sigurðsson (1918-2011) skrifar föður sínum. Hann var bóndi í Hjaltastaðahvammi í Akrahreppi. Kona hans: Sigríður Márusdóttir (f. 1930). Þorsteinn var kallaður Steini.
Jórunn Sigurðardóttir (1926-2015) skrifar föður sínum. Jórunn var gift Frosta Gíslasyni (1926-2001). Þau bjuggu á Frostastöðum í Akrahreppi. Jórunn var kölluð Nunna.
Þorsteinn Helgason (1886-1963) skrifar Sigurði. Þorsteinn var bóndi í Stóra-Holti í Fljótum. Makar: María Guðmundsdóttir (1885-1921) Sigurbjörg Bjarnadóttir (1888-1933).
Kristín Jónsdóttir fæddist í Hofsstaðaseli í Hofsstaðabyggð 25. janúar 1886. Hún var húsfreyja á Þorsteinsstöðum í Tungusveit, Lýtingsstaðahreppi. Maður hennar var Stefán Jónatansson (1892-1936) bóndi á Þorsteinsstöðum. Kristín lést 1. júlí 1948.
Elínborg Lárusdóttir (1891-1976) rithöfundur. Elínborg var hálfsystir Þorláks. Hún skrifar undir Ella. Maður hennar var Ingimar Jónsson (1891-1982), prestur og skólastjóri.
Jón Dal Þórarinsson (1911-1997) var búfræðingur og bóndi í Efra-Holti í Tunguhlíð og einnig á Efra Lýtingsstaðakoti. Hann bjó seinast í Reykjavík. Kona hans var Sigurveig Jóhannesdóttir (1915-2005).
Sigrún Þórey Hjálmarsdóttir (f. 1915) er frænka Þorláks. Hún átti heima á Espihóli er bréfið var skrifað árið 1951. Maður hennar var Ólafur Runebergsson (1926-1993), bóndi. Hann var bóndi í Kárdalstungu, Áshreppi, A-Húnavatnssýslu árið 1957, skv. Íslendingabók.
Vísur eftir Dr. Jón Helgason. Virðist vera teknar saman af "K.S.B.". Á heftið er skrifað: "Þessi kvæði Dr. J. H. hafa ekki komið mikið fyrir augu almennings."
Að mestu viðskipti við Kaupfélag Skagfirðinga. Einnig reikningur Mjólkursamlags Skagfirðinga 1950 (5 blaðsíður) og lán frá Ræktunarsjóði Íslands. Einnig skattreikningar.