Svana Theodórsdóttir (1922-1994) og Skúli Theódórsson (1925) í anddyrinu á Keldnabænum. Bak við Svönu eru dyrnar að Skálanum og sér þar í gamalt kirkjualtari. Til hægri sést í Saltkistuna fyrir gróft salt - en til vinstri er Stóra kistan. Í henni var geymt ómalað korn. Sjá nánar: Úr torfbæjum inn í tækniöld III - bls. 87.
Spónsgerði í Hörgárdal í Eyjafirði. Horft af bæjarhúsunum til suðurs fram Hörgárdal. Möðruvellir í fjarlægð og Hörgárdalsfjöllin í baksýn (frá vinstri: Strýta - Vindheimaöxl - Bægisárhnjúkur - Þverbrekkuhnjúkur - Drangafjall - Grjótárhnjúkur og rétt sést í Lönguhlíðarfjall. Lengst til vinstri sér í norðurstafninn á Framhúsinu.
Uppdrættir af tveimur torfbæjum; Skottastöðum og Eiríksstöðum í Svartárdal. Hjá uppdrættinum af Eiríksstöðum kemur fram ártalið 1935 og líklega eru allir uppdrættirnir gerðir á því ári.
Virðist vera brot úr bókinni Calendarium perpetuum & sex libri oeconomici de re familiari, hortensi, rustica, pecuaria, venatoria & medicamentaria, das ist: Ein stets wehrender Calender: auch sechs nothwendige & gantz nützliche Hauß Bücher eftir M. Johannis Coleri og kom út líklega 1603. Bókarbrotið fjallar um hrossarækt.
Bréfritari: Bayerishces Staatsministerium für Arbeit und soziale Fürsorge, München, Þýskalandi. Undirritað af "Ebert". Viðtakandi: Bruno Schweizer, við Klepp, Reykjavík. Efni: "Anwerbung von weiblischen Arbeitskräften nach Island" / Ráðning verkakvenna til Íslands.
Bayerisches Staatsministerium für Arbeit und soziale Fürsorge