Útskrift úr landamerkjabók Skagafjarðarsýslu, landamerkjaskrá fyrir jörðinni Víðimýri í Seyluhreppi í Skagafjarðarsýslu. Þar kemur fram að jörðinni tilheyri rekaítak í Hvalvík, sem er hálfur viðreki og hálfur hvalreki í Hvalvík, frá Hvallæk inn í miðjan Hvalbás, móts við Reynistaðarklaustur. Ritað í Víðmýri 26. maí 1890 af J. Benediktssyni (eiganda Víðimýrar). Rétta útskrift staðfestir, skrifstofu Skagafjarðarsýslu, 28. apríl 1936, Sigrún M. Jónsdóttir (handskrifuð undirskrift og stimpill).
Enginn titill er á handritinu, en það hefst á 1. atriði. Á öftustu síðu stendur neðst „Tjaldið“ og þar fyrir neðan er dagsetningin 23.01.1921 og nafnið S. Kristinsson, frá Hólum.
Bréf Ísleifs Gíslasonar til barnabarna sinna, Braga Kristjónssonar og Jóhönnu Kristjónsdóttur. Meðfylgjandi eru gátur í bundnu máli. Einnig kveðskapur, eftir Ísleif og einnig undir dulnefninu Sneglu-Halli.
Frásögn sem gerðist árið 1923, birt í blaðinu Sóley. Höfundur skrifar undir Þórlaug. Óvíst er hvaða ár frásögnin var birt, en hér má lesa um blaðið Sóley: http://skemman.is/stream/get/1946/1501/5362/1/Lokaverkefni_._skemman.pdf. Óskar Einarsson afhenti Hannesi Péturssyni frásögnina 20. október 1983. Á meðfylgjandi miða er minnst á Ríkeyju, systur Kristrúnar og um hana má lesa í Skagfirðingabók 12, í grein eftir hana er nefnist Sumur á Syðri-Brekkum.
Frásagnir af eftirfarandi fólki: Jóhann Lúðvíksson, Gísli Gottskálksson, Sigurlína Magnúsdóttir og Sigfús Björnsson. Handskrifað er í vélritin. Hannes fékk frásagnirnar sendar af K. Jónssyni (óskýr undirskrift, en virðast vera þeir stafir - ath. rithandaathugun til að finna út um hvaða mann er að ræða). Meðfylgjandi miði er dagsettur 15.02.1982.
Fundargerðir Skagfirðingafélagsins í Reykjavík frá upphafi, 6. desember 1936, til ársins 1960. Markmið félagsins í upphafi var að vinna að því að setja á stofn mennta- og menningarsetur við Reykjarhól í Seyluhreppi (Varmahlíð). Starfssemi félagsins verður fjölbreyttari þegar á líður. Nafn félagsins var fyrst "Varmahlíð" en var strax á 3ja fundi breytt í Skagfirðingafélagið í Reykjavík.
Efni bréfs: Varðar hátíðarsamkomu á Hólum í tilefni af 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar. Bréfið er frá Framkvæmdarnefnd sameiginlegrar þjóðhátíðar Skagafjarðarsýslu, Sauðárkróks og Siglufjarðar. Handskrifuð undirskrift Haraldar Árnasonar.
Efni bréfs: Bréf frá formanni Sambands skagfirskra kvenna, Sigrúnu Aadnegard, Bergsstöðum. Meðfylgjandi er listi yfir formenn kvenfélaga í Sambandi skagfirskra kvenna 1997, auk stjórnar S.S.K. og Orlofsnefndar.
Efni bréfs: Þakkarbréf til Kvenfélags Rípurhrepps fyrir stuðning varðandi hjartaómskoðunartæki handa Hjartadeild FSA. Dagsett í nóvember 2002. Handskrifaðar undirskriftir: Gísli J. Eyland, formaður og Sigurður H. Sigurðsson, gjaldkeri.
Efni bréfs: Bréf frá tímaritinu Húsfreyjunni er varðar boð um að senda greinar og fréttatilkynningar til tímaritsins. Handskrifuð undirskrift ritstjóra, Rutar Helgadóttur.
Efni bréfs: Upplýsingar um starf Kvenfélagasambands Íslands. Meðfylgjandi er kynning og dagskrá Norræns kvennasambandsþings á Hótel Victoria, Stavanger í Noregi, 11. - 14. júní 2009, blað til athugunar við formannsskipti í kvenfélögum, boð, kynning og dagskrá
landsþings Kvenfélagasambands Íslands á Hótel Stykkishólmi, 26. - 28. júní 2009. Einnig lög Kvenfélagasambands Íslands, tillögur til lagabreytinga fyrir landsþingið í Stykkishólmi og bréf þess efnis, dagsett í Reykjavík 24. mars 2009 og undirritað af laganefndinni, Sigurlaugu Viborg, Helgu Guðmundsdóttur og Ásu St. Atladóttur.
Efni bréfs: Varðar sameiginlegt átak héraðsskjalasafna og Kvenfélagasambands Íslands um söfnun skjala kvenfélaga um land allt. Handskrifuð undirskrift Unnars Ingvarssonar, héraðsskjalavarðar. Meðfylgjandi er bæklingurinn Héraðsskjalasöfnin, Miðstöðvar heimilda um byggðalag þitt.
Efni bréfs: Varðar breytta og bætta starfsemi Kvenfélagasambands Íslands og spurningalista sem sendur hafði verið. Handskrifuð undirskrift Kristínar Guðmundsdóttur.
Efni bréfs: Frá Kvenfélagasambandi Íslands. Varðar Leiðbeiningastöð heimilanna. Handskrifaðar undirskriftir Hjördísar Eddu Broddadóttur og Elfu Þorgrímsdóttur.
Efni bréfs: Ýmislegt af 18. formannaráðsfundi Kvenfélagasambands Íslands. Meðfylgjandi er plagg með stofnári sambandsins, tilgangi þess og fjölda aðildarfélaga.
Efni bréfs: Ýmislegt frá Kvenfélagasambandi Íslands, m.a. um sumarnámskeið í Horne á Jótlandi, 3. - 5. ágúst 2001. Meðfylgjandi er skráningarblað á námskeiðið ásamt frekari upplýsingum. Handskrifuð undirskrift: Helga Guðmundsdóttir, forseti K.Í.
Efni bréfs: Varðar Leiðbeiningastöð heimilanna. Undir skrifa Guðrún Þóra Hjaltadóttir og Hjördís Edda Broddadóttir. Meðfylgjandi er afrit af greininni Þjóðfélagið hefur breyst, eftir Hjördísi Eddu Broddadóttur.
Greiðslukvittun, undirrituð af Ólínu Björnsdóttur. Greiðsla Kvenfélags Rípurhrepps til Minningarsjóðs Sigurlaugar frá Ási og varðandi styrk til Sjúkrahúss Skagfirðinga.
Listi yfir formenn kvenfélaga í Sambandi skagfirskra kvenna. Einnig stjórn S.S.K. og Orlofsnefnd. Á blaðinu er getið heimsókna kvenfélaga til Sjúkrahúss Skagfirðinga yfir árið 1993.
Hlutverk og markmið kvenfélaganna árið 1999. Spurningar frá Byggðasafni Skagfirðinga. Handskrifuð svör Kvenfélags Rípurhrepps. Meðfylgjandi blað með leiðbeiningum varðandi viðtalsupptökur á segulband. Titill blaðsins er Kvenfélögin&BSk.
Bréfið er handskrifað á 5 pappírsarkir í stærðinni 26,6 x 20,4 sm. Með liggur umslag með vélritaðri utanáskrift. Búið er að rífa frímerki af umslaginu.