Bréf frá Sigurlaug Viborg, forseta Kvenfélagasambands Íslands. Bréfið varðar starfið á árinu og er vísað í meðfylgjandi plagg, fréttapunkta Hildar Helgu Gísladóttur, framkvæmdastjóra KÍ. Einnig eru meðfylgjandi upplýsingar um ferð á Norrænt sumarþing kvenfélaga, haldið í Vasa og Korsholm í Finnlandi 19. - 24. ágúst 2010.
Messað í Drangey í ágúst árið 2000. Karl Sigurbjörnsson biskup messaði og var séra Guðbjörg Jóhannesdóttir honum til aðstoðar. Um hundrað manns voru viðstödd athöfnina í blíðskaparveðri. Jón Eiríksson "Drangeyjarjarl" fremstur fyrir miðju.
Efni bréfs: Fréttabréf, nóvember 2010, til héraðssambanda og kvenfélaga innan Kvenfélagasambands Íslands. Meðfylgjandi eru upplýsingar um Evrópuþing ACWW haldið í Dublin á Írlandi 4. - 8. apríl 2011.
Drangey. Ljósmyndari Feykis var þarna á ferð í ágúst árið 2000 en þá messaði hr. Karl Sigurbjörnsson biskup í eynni í blíðskaparveðri fyrir um hundrað manns.
Drangey. Ljósmyndari Feykis var þarna á ferð í ágúst 1994. Í bátnum t.v. er Jón Eiríksson "Drangeyjarjarl" og Pétur Eiríksson en hann þreytti Drangeyjarsund árið1936.
Stjórn Rafiðnaðarsambands Íslands kom á 20 ára afmæli Fjölbrautaskólans í janúar árið 2000 og gaf góðar gjafir ásamt fyrirtækinu Samey. Frá vinstri Gísli Sigurðsson (1964-), Guðmundur Gunnarsson (1945-), Guðmundur Jóhann Ingólfsson (1958-), Stefán Héðinsson (1968-), óþekktur og Arnar Halldórsson (1967-).
Messað í Drangey í ágúst árið 2000. Karl Sigurbjörnsson (1947-) biskup Íslands messaði og var séra Guðbjörg Jóhannesdóttir honum til aðstoðar. Um hundrað manns voru við athöfnina í blískaparveðri.
Hr. Karl Sigurbjörnsson biskup messaði í Drangey í ágúst árið 2000. Honum til aðstoðar var séra Guðbjörg Jóhannesdóttir. Um hundrað manns voru við athöfnina í blíðskaparveðri. "Drangeyjarjarlinn" Jón Eiríksson er neðst í vinstra horni myndarinnar.
Efni bréfs: Upplýsingar um starf Kvenfélagasambands Íslands. Meðfylgjandi er kynning og dagskrá Norræns kvennasambandsþings á Hótel Victoria, Stavanger í Noregi, 11. - 14. júní 2009, blað til athugunar við formannsskipti í kvenfélögum, boð, kynning og dagskrá
landsþings Kvenfélagasambands Íslands á Hótel Stykkishólmi, 26. - 28. júní 2009. Einnig lög Kvenfélagasambands Íslands, tillögur til lagabreytinga fyrir landsþingið í Stykkishólmi og bréf þess efnis, dagsett í Reykjavík 24. mars 2009 og undirritað af laganefndinni, Sigurlaugu Viborg, Helgu Guðmundsdóttur og Ásu St. Atladóttur.
Efni bréfs: Varðar sameiginlegt átak héraðsskjalasafna og Kvenfélagasambands Íslands um söfnun skjala kvenfélaga um land allt. Handskrifuð undirskrift Unnars Ingvarssonar, héraðsskjalavarðar. Meðfylgjandi er bæklingurinn Héraðsskjalasöfnin, Miðstöðvar heimilda um byggðalag þitt.
Litmynd í stærðinni 16,2x25 sm. Á myndinni er kór eldri borgara í Skagafirði ásamt undirleikara og meðlimum úr öðrum kór. Myndin er tekin í Selfosskirkju.
Efni bréfs: Til formanna og stjórnarkvenna í kvenfélögum í Skagafirði og fjallar um það sem er á döfinni árið 2009. Handskrifuð undirskrift Ingibjargar Hafstað. Meðfylgjandi eru upplýsingar um námskeiðið Konur kalla ... KÍ 2009.
Efni bréfs: Varðar 35. Landsþing Kvenfélagasambands Íslands, 26. - 28. júlí 2009. Meðfylgjandi er kjörbréf, þátttökueyðublað, gistimöguleikar, hluti af lögum og tillögur.
Smáritið er 30 prentaðar síður, auk kápu. Ritið fjallar um fornleifarannsóknir í Skagafirði. Höfundar þess eru Guðný Zoega, Ragnheiður Traustadóttir og Sigríður Sigurðardóttir. Ástand skjalsins er gott.
Litmynd í stærðinni 18x24 sm. Á myndinni er kór eldri borgara í Skagafirði ásamt undirleikara og er myndin tekin í Borgarneskirkju. Aftasta röð frá vinstri: ?, Rögnvaldur Gíslason, Ólafur Axel Jónsson, Þorbergur Jósefsson, ?, Kári Steinsson, Páll í Keldudal. Miðröð frá vinstri: Dóra Valda rak 1. fv, Inda í Húsey 5. fh. Fremsta röð frá vinstri: Edda Skagfield 1. fv, Alda Ellertsdóttir 4. fv., Ingibjörg Kristjánsdóttir 4. fv.
Efni bréfs: Bókin „Förukonan“ hóf göngu sína í Hofósi árið 1954 og var gerð fyrir tilstuðlan Pálu Pálsdóttur kennara. Er bréfið var skrifað, þá var sú bók komin til varðveislu á Héraðsskjalasafni Skagfirðinga og ný bók farin í ferðalag á milli kvenfélaga. Dagsett 25. febrúar 2009.
Ljóðið er vélritað á A4 pappírsörk. Í yfirskriftinni kemur fram að um sé að ræða afmæliskveðju frá spilafélaga, Birni Eysteini Jónssyni, til Árna Blöndal á áttræðisafmæli. Neðst er handskrifað að Jói í Stapa sé höfundur ljóðsins.
Efni bréfs: Ýmsar upplýsingar um starf Kvenfélagasambands Íslands. Meðfylgjandi er dagskrá NKF þingsins, Hótel Eddu, Akureyri, 19. - 22. júní 2008. Einnig upplýsingar um Evrópuþing ACWW - Women Winning for Planet Earth, Southampton University í Hampshire, Englandi,
Pistill og söguágrip unnin upp úr fundargerðum í tilefnis 100 ára afmælis Kvenfélags Staðarhrepps. Fluttur á aðalfundi Sambands Skagfirskra Kvenna (SSK), dags. 27.04.2008.
Efni bréfs: Bréf varðandi félagsmálafræðslu. Meðfylgjandi er auglýsing og dagskrá. Handskrifaðar undirskriftir: Helga G. Guðjónsdóttir, formaður Ungmennafélags Íslands, Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands og Sigurlaug Viborg, forseti Kvenfélagasambands Íslands.
Fundur í stjórn S.S.K. ásamt Vinnuvökunefnd haldinn á Kaffi Krók 16. janúar 2007. Meðfylgjandi er bréf undirskrifað af Ingibjörgu Hafstað. Það er dagsett í Vík, 22. janúar 2007.
Efni bréfs: „Kvenfélagasamband Íslands boðar til landsátaks um aukna hreyfingu og bætt mataræði“ stendur í haus bréfsins, en það er jafnframt hvatning 35. formannaráðsfunds KÍ um aukna betri lýðheilsu. Fundurinn var haldinn 23.- 24. mars 2007 á Hótel Gullfossi, Brattholti í Biskupstungum. Meðfylgjandi er yfirlit yfir bæklinga varðandi hreyfingu og næringu.
Samkomulagið er ein pappírsörk í A4 stærð. Það kveður á um samstarf um söfnun og varðveislu muna fyrir Sögusetur íslenska hestsins. Ástand skjalsins er gott.