Showing 904 results

Archival descriptions
Bruno Scweizer (1897-1958)
Advanced search options
Print preview Hierarchy View:

896 results with digital objects Show results with digital objects

BS252

  1. Í Spónsgerði í Hörgárdal í Eyjafirði. Hundurinn Kátur stendur uppi á bænum. Staðarhnjúkur í baksýn.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS253

  1. Í Spónsgerði í Hörgárdal í Eyjafirði. Eldiviðageymslan í Spónsgerði.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS254

  1. Í Spónsgerði í Hörgárdal í Eyjafirði. Úr gamla eldhúsinu. Árefti í þekjunni (ekki súðuð). Sést í búrdyrnar lengst til vinstri.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS255

  1. Í Spónsgerði í Hörgárdal í Eyjafirði. Baðstofugluggi - líklega vesturgluggi. Saumavél á kommóðu.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS256

Ásta Ferdinandsdóttir í baðstofunni í Spónsgerði (f. 1935)

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS260

  1. Möðruvellir í Eyjafirði. Heyskapur á Möðruvöllum - sunnan við fjós prestsins. Fjárhúsin í baksýn og efst gnæfir Hallgillstaðahnjúkur.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS261

  1. Möðruvellir í Eyjafirði. Maður að breiða úr reyfum á tún.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS262

Davíð Kristjánsson (1922-1998) frá Gásum - síðar verslunar- og skrifstofumaður á Akureyri í hestakerru í kirkjugarðinum á Möðruvöllum.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS265

  1. Spónsgerði í Hörgárdal í Eyjafirði. Til norðvesturs. Frá vinstri: Baðstofugluggi - skemmustafn - fjós. Jenný Ásgeirsdóttir húsmóðir framan við húsið.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS266

  1. Spónsgerði í Hörgárdal í Eyjafirði. Ferdinand Kristjánsson bóndi og Ásta dóttir hans.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS267

  1. Spónsgerði í Hörgárdal í Eyjafirði. Ferdinand Kristjánsson bóndi.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS268

  1. Möðruvellir í Eyjafirði. Vegur til hægri niður Leyning - en til vinstri vegur suður melana. Lengst til vinstri er fjós prestsins - þá Leikhúsið - síðan íbúðarhús (brann haustið 1937). Þá Stefánsfjósið og yst er lítið hesthús (áður notað sem fjós) sem nú er búið að rífa.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS270

  1. Ytri Bægisá í Eyjafirði. Fjárhús. Til vinstri sér inn í Barkárdal og yfir húsunum er mynni Hafrárdals.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS276

Eldhús líklega í Staðartungu í Hörgárdal

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS277

Í bæjargöngunum á Staðartungu í Hörgárdal - Eyjafirði.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS278

  1. Framan við bæinn í Staðartungu - Hörgárdal - Eyjafirði. Konan til vinstri er Ingibjörg Kristjánsdóttir (1908-1992) gift Jóni Kristjánssyni (1906-1974). Synir þeirra tveir sem eru á myndinni eru Páll Snævar(f. 1932 - búsettur á Akureyri) og Þengill (f.1929 bifvélavirki á Akureyri). Konan til hægri er húsmóðirin - Stefanía Jónsdóttir (1874-1944) - kona Friðbjarnar.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS279

  1. Framan við bæinn í Staðartungu - Hörgárdal - Eyjafirði. Konan til vinstri er Ingibjörg Kristjánsdóttir (1908-1992) gift Jóni Kristjánssyni (1906-1974). Synir þeirra tveir sem eru á myndinni eru Páll Snævar(f. 1932 - búsettur á Akureyri) og Þengill (f.1929 bifvélavirki á Akureyri). Konan til hægri er húsmóðirin - Stefanía Jónsdóttir (1874-1944) - kona Friðbjarnar.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS282

  1. Trésmiðurinn sem sá um viðgerðina á gamla bænum í Laufási var Baldur Helgason (1889-1977) sem hér stendur hjá verkstæði sínu bak við Hótel Goðafoss. Baldur var frá Grund í Höfðahverfi og starfaði alla tíð sjálfstætt að iðn sinni á Akureyri. Lengst hafði hann verkstæði sitt við Hafnarstræti - en síðustu árin í Laxagötu 4. Hann flutti inn fyrstu eða eina af fyrstu trésmíðavélum til Akureyrar.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS283

Mattías Þórðarson og Jóhanna Jóhannsdóttir (1908-1997) söngkona og söngkennari. Hún var ættuð frá Möðruvöllum í Eyjafirði og fór t.d. með aðalkvenhlutverkið í fyrstu óperettu sem flutt var á Íslandi - Meyjarskemmunni á Ísafirði 1934 og síðar í Reykjavík. Jóhanna giftist Baldri Johnsen lækni (f. 1910) árið 1936 og eignuðust þau 4 börn.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS285

Horft úr ofanverðri Vaðlaheiði yfir Pollinn til Akureyrar. Ofan bæjarins er Hlíðarfjall og t.v. sést upp í Glerárdal.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS286

Séð yfir Hálsmela og í Fornstaðarfjall - sem er austan Fnjóskadals - mynnið á Ljósavatnsskarði lengst t.h. Myndin er tekin af gamla Vaðlaheiðaveginum rétt ofan bæja.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS287

Tekin á sama stað og BS 286 - nema neðar. Hálshnjúkur og norðurendinn af Vaglaskógi. Þessi mynd tekur við sunnan við BS 286.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS288

Myndin er tekin af Vaðlaheiðavegi skammt fyrir ofan Skóga - sem er nálægt miðjum Fnjóskadal. Frá vinstri talið sést mikill hluti Vaglaskógar. Ofan hans sést inn Kisárdal til suðausturs. Hann skilur Lundöxlina frá öðrum hlutum fjallgarðsins austan dalsins og sést hvernig hún gengur skáhallt upp á hálendið allt til Háafells - sem ber hæst á fjallgarðinum milli Lunds og Þórstaðafjalla. Er þeim sleppir sést á myndinni lítið vik í fjallahringinn og tekur þar við hinn hvassbrýndi Kambfellshnjúkur. Síðan sést Tunguöxl og Tungufjall - en í smáviki milli þeirra sést í mynni Hjaltadals. Vinstra megin Tungufjalls sést í mynni Bleiksmýradals - sem nær óravegu til suðvesturs inn á hálendið. Nær má svo sjá Sellandsfjall og Illugastaðahnjúk. Næst á myndinni eru undirhlíðar Vaðlaheiðar ofan við Skóga. Á miðri mynd lengst t.v. glittir í Fnjóská.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS29

Horft heim til Kirkjubæjar í Færeyjum. Ólafskirkjan lengst til hægri og stofurnar næst henni. Magnúsarkirkjan (Múrinn) fyrir miðri mynd.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS295

Kaffidrykkja í gestastofunni í Laufási - en þar var gestum veittur beini - ekki með heimilisfólkinu. Frá vinstri: Mattías Þórðarson þjóðminjavörður - Ólína Marta Jónsdóttir (1898-1991) - prestfrú (frá Sjónarhóli á Vatnsleysuströnd) - Sr. Þorvarður Þormar (1896-1970 - frá Geitagerði í Fljótsdal) og Bjarni Jónsson (1872-1948). útibússtjóri Íslandsbanka og síðar Útvegsbankans á Akureyri. Hann lét af því starfi og flutti til Reykjavíkur í ágúst 1935. Í baksýn eru óþekktir menn - annar gæti verið bílstjórinn.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS296

Kaffidrykkja í gestastofunni í Laufási - en þar var gestum veittur beini - ekki með heimilisfólkinu. Frá vinstri: Mattías Þórðarson þjóðminjavörður - Ólína Marta Jónsdóttir (1898-1991) - prestfrú (frá Sjónarhóli á Vatnsleysuströnd) - Sr. Þorvarður Þormar (1896-1970 - frá Geitagerði í Fljótsdal) og Bjarni Jónsson (1872-1948). útibússtjóri Íslandsbanka og síðar Útvegsbankans á Akureyri. Hann lét af því starfi og flutti til Reykjavíkur í ágúst 1935. Í baksýn eru óþekktir menn - annar gæti verið bílstjórinn.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS297

  1. Austurhlið Laufásbæjar - baðstofuhúsið. Gluggarnir vinstra megin eru á eldhúsi og búri - lengst t.h. er pilthúsið. Uppi er baðstofan - hjónaherbergið og kontórinn.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS298

Séð að bæ og útihúsum í Laufási frá norðri. Baðstofa til vinstri.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS299

Laufás - framhlið: gestastofa - bæjardyr - skáli - dúnhús og skemma. Sr. Þorvarður lengst t.v. Matthías Þórðarson þjóðminjavörður í miðið og líklega Baldur Helgason smiður lengst t.v. Hundurinn hét Vígi. Laufáshnjúkur yfir bænum. Á burstinni má sjá æðarblika úr tré og á mæninum yfir bæjargöngunum er vindhani með nafni bæjarins.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS306

Rjáfrið á gamla hlóðaeldhúsinu í Laufási. Hagldareipi hanga á þverbitum.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS312

Þak á hlóðareldhúsinu (líklega) í Laufási

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS314

Bærinn í Laufási. Tréönd fremst á myndinni var á húsmæni.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS329

Sr. Þorvarður Þormar í Laufási við slátt ásamt óþekktum manni. Elías Gíslason (1897-1970) frá Melum á Fljótsdalshéraði er að kljást við kálf t.h. (óvíst hvort rétt)

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS33

Frá Færeyjum. Hlaðinn fjósveggur í Kirkjubæ. Fyrir miðri mynd er kornmylluhjól sem knúið var með vatnsafli.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS330

Úr borðstofu í gamla bænum á Laufási. Dragkista t.v. og skrifpúlt undir glugga.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS337

Guttormur Þormar í fjárhúshlöðu í Laufási

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS341

Horft af þaki fjárhúsa í Laufási - séð til Laufássins.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS344

Hluti úrskorins predikunarstóls í Laufáskirkju frá 1697

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS345

Við Eyjafjörð. Gæti verið við Oddeyri

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS35

Í rústum Magnúsarkirkju í Færeyjum. Múrinn að innan.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS356

Barnafoss í Sjálfandafljóti og hluti Djúpárfoss

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS358

Við vað á Skjálfandafljóti - á þeirri kvísl sem fellur vestur sunnan við Þingey og síðan vestan við eyjunna. Vaðið liggur út í Þingey og er maðurinn með hestanna landmeginn. Skammt fyrir neðan vaðið er Barnafoss. Sjá Úr torfbæjum í tækniöld bls. 1980.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS36

Naust í Kirkjubæ í Færeyjum. Hanað við sundið er fjallið Hestur lengst til vinstri og eyjan Koltur fyrir miðju.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS370

Fjárhús á Skútustöðum við Mývatn - nefnd Ásmundarhús

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS372

Skútustaðir við Mývatn. Verið að rífa gamla bæinn.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS373

Hraungígurinn Paradís í Borgum í Mývatnssveit

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS387

Fellshóll og Vestari-Fellshólseyri. Hvít froða á Mývatni.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS398

Á Borgarhálsi við Dimmuborgir í Mývatnssveit

Bruno Scweizer (1897-1958)

Results 86 to 170 of 904