Bréf: Verslun Sigurðar Sigfússonar v/ hraðfrystistöð og fiskimjöl v/ dómsmál - v/ viðræður um atvinnumál á svæðinu - innritunarskírteini - breyting á samningi við atvinnurekendur - verkfallsboðun - v/ brot á samningum- Sigurður Sigfússon og félög.
Bréf: 1.maí ávarp - lög félagsins - áskorun til Sauðárkróksbæjar að bæta atvinnuástandið - kjörbréf- Hulda Sigurbjörnsdóttir - samningur Þróttur og Brynja og vinnuveitendur á Siglufirði - fundargerð 30/9 1960 - listi- stjórn og nefndir - lög og reglur félagsins - samingur við atvinnurekendur á Sauðárkróki og fleira.
Í safninu eru forprentuð og handskrifuð skjöl í afriti með yfirlit yfir greiddar atvinnuleysisbætur, einnig vélrituð dagpeningavottorð með stimpli frá vinnumiðlun Sauðárkrókskaupstaðar (sum skjölin eru í tvíriti) og umsókn um örorku- ellilífeyri. Á skjölunum eru persónugreinanlegar trúnaðarupplýsingar.
Innbundin og handskrifuð bók með færslum um úthlutun atvinnuleysisbóta. Bókin er vel læsileg og í góðu ásigkomulagi. Í bókinni eru persónugreinanlegar upplýsingar.
Innbundin og handskrifuð bók með færslum um úthlutun atvinnuleysisbóta. Bókin er vel læsileg og í góðu ásigkomulagi. Í bókinni eru persónugreinanlegar upplýsingar.
Innbundin og handskrifuð bók með félagaskrá og ársreikningum Vkf Öldunnar. Bókin er ágætlega varðveitt og vel læsileg. Í bókinni var Sjónhornið 15-21. nóv. án ártals.
Yfirlit frá Lífeyrissjóði verkalýðsfélaga á Norðurl.vestra það var tekið úr innbundu hefti með ársreikningum Vkf Öldunnar (C-14) og sett í sér örk þar sem á skjalinu er trúnaðarmál.
Innbundið hefti með ársreikningum Verkakvennafélagsins Öldunnar. Aftast í heftinu var yfirlit frá Lífeyrissjóði verkalýðsfélaga á Norðurl.vestra það var tekið úr og sett í sér örk þar sem á skjalinu er trúnaðarmál.
Innbundin og handskrifuð bók, vel læsileg og í góðu ásigkomulagi. Í bókinni er blaðsíða í A4 stærð sem á er ritaðir punktar frá fundi við starfsstúlkur Sjúkrahússins á Sauðárkróki og kosninga er fóru þar fram.
Í þessu safni er filma og tvær ljósmyndir af Hofsóskirkju önnur myndin er framan á jólakorti (óútfyllt). Í umslagi er mynd af Hofsóskirkju framan á umslaginu stendur "Hofsóskirkja vígð 28. ágúst 1960".
Stílabók með rúðustrikuðum blaðsiðum - í bókinni er legstaðaskrá og teikningar fyrir Hofsóskirkjugarð, ódags.og án ártals. Í bókinni er erindi frá prófasti Skagafjarðarprófastsdæmi (1998).
Í safninu er fundagerð Organistafélags Skagafjarðar - tilkynning frá Skagafjarðarprófastsdæmi - Tilkynning vegna nýrrar úgáfu á sálmabókum, pöntunarform fyrir þær og umslagið.
Tvö bréf frá Biskupi Íslands, annað vegna kjör vegna prestkosninga 1966. Meðfylgjandi því er afrit af umsókn um embættið. Hitt bréfið er þingsáliktunartillaga um afnot af kirkjum frá 1977 og tvo eintök af lög um veitingu prestakalla. Á öðru þeirra er handskrifað ártalið 1966 nokkrum sinnum.
Í safninu er vélritað bréf með ályktun frá Birni Björnssyni vegna gjafar til Hins íslenska Biblíufélags, 20. febr. 1965, umslag fylgir. Bréfið er orðið gulnað og rifið. Aftan á blaðið eru útreikningar. Einnig er línustrikað blað með nöfnun, dagsetningum og útreikningi annað samskonar blað er ónotað.
Í safninu eru gögn vegna kaupa á orgeli fyrir Hofsóskirkju - tollskjöl, teikningar og mál, erindi, reikningar og skýrsluform. Skjölin eru vélrituð, tölvuútprentanir og er mikill hluti gagnanna faxpappír og í flestum tilvikum er blekið mjög dauft að texti sést illa
Fundagerðir héraðsfundar og ársreikningar héraðssjóðs Skagafjarðarprófastdæmis. Ákveðið var að leyfa ársreikningunum vera áfram í þessu safni í stað þess að færa það í annað.
Tvær litlar bleikar gormabækur eru í örk og komu þannig í safn og látið halda sér. Merktar júl. '84- febr. '86 og febr. '86 - ág. '87. Bækur eru í góðu ástandi.
Innbundin og handskrifuð bók. Saurblaðið er fagurlega skreytt, og á næstu blaðsíðum eru skátalögin, skátaheitið, kjörorð skáta og heilbrigðisreglur Baden Powells skráð með skrautskrift. Bindingin er léleg en bókin er engu að síður ágætlega varðveitt, plastfilma var utan um bókina en hún var fjarlægð.
Erindi frá Brynju Hlíðar fyrir hönd K.S.S.I. á Akureyri (Kvenskátasamband Íslands ?) til Kvenskátafélagsins Ásynja en umslagið er merkt sr. Helga Konráðssyni.
Innbundin og handskrifuð bók með yfirlit yfir þá einstaklinga sem tóku skátapróf árin 1933-1961. Í bókinni er laust blað sem er staðfesting á loknu sérprófi skáta. Bókin er vel læsileg og í góðu ásigkomulagi.
Innbundin handskrifuð bók með yfirlit yfir skátapróf einstaklinga árin 1960-1961. Í bókinni eru laus stílabókarblöð með fundagerð sem er án ártals, einnig eru nokkrir samanbrotnir miðar í bókinni frá foreldrum þar sem þau veita börnum sínum leyfi til að skrá sig í skátafélagið. Bókin og miðarnir eru í góðu ásigkomulagi og vel læsiegt.
Vélritaðar og handskrifaðar staðfestingar að Frank B. Michelsen hafi náð skátaprófi. Blaðið þunnt líkt og smjörpappír, orðið gulnað og skitugt, öðru leyti er það vel varðveitt.
Tvö pappírsskjöl, á öðru þeirra er með nöfnum félaga og yfirlit yfir seld skátamerki. Skjalið er ódagsett og án ártals. Hitt blaðið er með félagaskrá og yfirlit yfir greiðslu pr. árs 1929-1933.
Tvö lítil reikningsbókahefti með rúðustrikuðum blaðsíðum. Í öðru heftinu er manntal fyrir desember 1961 og janúar 1962, en í hinu er blótsská fyrir desember 1961 og febrúar 1962. Annað er ekki í heftunum. Blaðsíðurnar hafa gulnað og heftin hafa varðveist að öðru leyti mjög vel .
Safnið inniheldur vélrituð, forprentuð og handskrifuð gögn á mismunandi gerð pappíra. Þetta eru erindi frá Bandalagi íslenskra skáta, fylgigögn bókhalds og jólakort. Í safninu er kvittun frá Bandalagi íslenskra skáta þar sem búið er að klippa á tveimur stöðum inn á blaðið. Hefti voru hreinsuð úr safninu, blöðin eru í mismunandi ástandi, sum rifin og gulnuð.
Forprentaðar árs og mánaðarskýrslur fyrir skátafélagið Andvara fyrir tímabilið 1929-1962. Í safninu eru tvær mánaðarskýrslur frá árinu 1962 fyrir janúar og febrúar. Ársskýrslurnar ná yfir tímabilið 1929-1948, þó vantar skýrslur frá árinu 1943-1946 í safnið. Skýrslurnar eru í mismunandi ástandi, blöðin rifnuð, skítug og hafa gulnað.