Spónsgerði í Hörgárdal í Eyjafirði - en þangað fór Bruno með meðmælabréf prestsins á meðan Matthías skoðaði leiði Bjarna Thorarensen. Myndin er tekin á bæjarhúsunum til suðvesturs í átt að fjárhúsunum. Í fjarlægð sjást fjárhúsin á Möðruvöllum (frá vinstri: Fjárhús - miðhús og Lækjarbakkahús). Ábúendur 1935 voru Ferdinand Kristjánsson frá Meyjarhóli á Svalbarðsströnd (1892-1971) og Jenný Ásgeirsdóttir frá Gautsstöðum (1898-1995). Dóttir þeirra er Ásta Ferdinandsdóttir (f. 1928) Spónsgerði.
Spónsgerði í Hörgárdal í Eyjafirði. Horft af bæjarhúsunum til suðurs fram Hörgárdal. Möðruvellir í fjarlægð og Hörgárdalsfjöllin í baksýn (frá vinstri: Strýta - Vindheimaöxl - Bægisárhnjúkur - Þverbrekkuhnjúkur - Drangafjall - Grjótárhnjúkur og rétt sést í Lönguhlíðarfjall. Lengst til vinstri sér í norðurstafninn á Framhúsinu.
Spónsgerði í Hörgárdal í Eyjafirði. Horft af bæjarhúsunum til suðurs fram Hörgárdal. Möðruvellir í fjarlægð og Hörgárdalsfjöllin í baksýn (frá vinstri: Strýta - Vindheimaöxl - Bægisárhnjúkur - Þverbrekkuhnjúkur - Drangafjall - Grjótárhnjúkur og rétt sést í Lönguhlíðarfjall. Lengst til vinstri sér í norðurstafninn á Framhúsinu.
Á Möðruvöllum. Séra Sigurður Stefánsson - síðar vígslubiskup - að skriftum. Bruno skrifaði á myndina: Prestur skrifar kynningar-eða meðmælabréf fyrir Bruno handa Ferdinand í Spónsgerði.
Möðruvellir í Eyjafirði. Vegur til hægri niður Leyning - en til vinstri vegur suður melana. Lengst til vinstri er fjós prestsins - þá Leikhúsið - síðan íbúðarhús (brann haustið 1937). Þá Stefánsfjósið og yst er lítið hesthús (áður notað sem fjós) sem nú er búið að rífa.
Úr Kristskirkju í Reykjavík. Sér yfir Vesturbæ til Seltjarnarness. Eiðisgrandi fyrir miðri mynd og Eiðistjörnin inn af honum. Stóra húsið neðst t.h. er svokallað ÍR hús.
Brúðkaupsmynd. Bruno Schwiezer og Þorbjörg Jónsdóttir. Tekin að Laufásvegi 18 Reykjavík á heimili Elíasar Bjarnasonar og Pálínu Elíasdóttur í ágúst 1938.
Gregor Lang (1884-1962) kaþólskur prestur og skólastjóri st. Stefáns menntaskólans í Augsburg og Annie Schweizer. Myndin er hugsanlega tekin við Miðdal
Staðartunga í Hörgárdal - Eyjafirði séð norðanfrá - ull til þerris á hlaðinu. Maðurinn með stafinn gæti verið Mattías Þórðarson - aðrir óþekktir. Húsið til vinstri er hlaða - þá kemur skúr og sunnan hans er þinghúsið og lengst sér í stafnana í skemmunum. Sjálfur bærinn var á bakvið þinghúsið - og var gengið í hann gegnum þinghúsið syðst.
Fólk og hestar á hlaðinu í Heiðarseli. Þorbjörg Schweizer situr á hesti en Sveinbjörg systir hennar talar við hana. Árni Jónsson hugar að reiðtygjum á hesti Þorbjargar. Hugsanlega er þarna mynduð brottför Þorbjargar og Brunos - en þau fluttust til Þýskalands.
Á Höfða í túninu í Miðdal í Mosfellssveit. Í hægra horninu er grafreitur fyrir dýr þar sem börnin í Miðdal höfðu yfirsungið fallin dýr. Fremstur er faðir Georg Lang prestur. Þá Karolína Sigríður Einarsdóttir (1912-1962) frá Miðdal - Þá Annie Schweizer - Sigurður Ólafsson hestamaður og söngvari og loks Leo Schweizer - sem snýr baki í myndavélina.