Sýnir 896 niðurstöður

Lýsing á skjalasafni
Bruno Scweizer (1897-1958) With digital objects
Prenta - forskoðun Hierarchy View:

BS406

Á gamla varðaða veginum austan við Reykjahlíð. Varðan er nú horfin. Framundan er suðurendi Dalfjalls og norðurendi Námafjalls. Á milli þeirra er Námaskarð. Landslagi hefur verið breytt svo að það er vart þekkjanlegt í dag. Á hestinum er Hinrik Aðalsteinsson (f. 1922) frá Vogum við Mývatn. Sjá Úr torfbæjum inn í tækniöld III - bls. 194.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS407

Austan Námaskarðs yfir Hverarönd. Búrfell í baksýn.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS420

Sér í hornið á Þinghúsinu í Bólstaðarhlíð til Langadals. Þinghúsið var rifið 1960.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS425

Bólstaðarhlíð og Skeggsstaðafjall í Húnaþingi.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS426

Klemens Guðmundsson í Bólstaðarhlíð gengur frá Skottastöðum með pósttöskuna á öxl. Halldór Jóhannsson bóndi gengur niður brekkuna frá bænum. Local Caption Myndin virðist spegluð í bókinni: Úr torfbæjum inn í tækniöld III - bls. 234.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS435

Heimilisfólk á Skottastöðum. Halldór Jóhannsson (1895-1982) situr við borð. Gaflveggurinn og veggurinn undir skarsúðinni eru tajaldaðir og skrýddir síðum úr blaði í bók. Á hillu má m.a. sjá saumavél og fjölskyldumyndir.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS442

Barkarstaðir í Svartárdal. Drengurinn er Vermundur Eiríksson frá Vatnshlíð - sem dvaldist á Barkarstöðum.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS445

Kláfurinn yfir Svartá. Sigurður Benediktsson á Leifsstöðum í kláfnum en Sigurður sonur hans er á bakkanum.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS12

Borgin Stettin eða Szczecin var eitt sinn í Þýskalandi en eftir seinni heimsstyrjöldina tilheyrði hún Póllandi. Myndin er af Altes Rathaus (gamla ráðhúsið) við Heymarkt. Húsið er byggt úr rauðum múrstein í gothic stíl. Talið hafa verið byggt á 15. öld. Húsið er það eina sem eftir er af Stettin Altstadt (Gamla bænum) sem var eyðilagður að mestu árið 1945. Upphaflega hét húsið Neues Rathaus (Nýja ráðhúsið) því það kom í staðinn fyrir gamalt ráðhús á sama stað. Mun stærra ráðhús var byggt annars staðar 1869. Altes Rathaus skemmdist í seinni heimsstyrjöldinni en var endurgert árið 1968. Nú er að finna í húsinu veitingastað og safn.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS14

Ferðafólk á leið eftir Markarfljótsaurum á leið í Húsadal

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS108

Spöngin og Nikulásargjá (Peningagjá) á Þingvöllum.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS115

Hundur við fjárhús í Múlakoti í Fljótshlíð

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS122

Heimilisfólk í Vatnsdal í Fljótshlíð ásamt Ólafi Túbals. F.v. Ágúst Þór Guðjónsson - Guðlaug Guðjónsdóttir - Þuríður Guðrún Vigfúsdóttir - Ólafur Túbals - Guðjón Úlfarsson - Úlfar Guðjónsson. Local Caption Sjá nánar: Úr torfbæjum inn í tækniöld III - bls. 79

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS131

Líklega frá Múlakoti í Fljótshlíð.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS133

Svana Theodórsdóttir (1922-1994) og Skúli Theódórsson (1925) í anddyrinu á Keldnabænum. Bak við Svönu eru dyrnar að Skálanum og sér þar í gamalt kirkjualtari. Til hægri sést í Saltkistuna fyrir gróft salt - en til vinstri er Stóra kistan. Í henni var geymt ómalað korn. Sjá nánar: Úr torfbæjum inn í tækniöld III - bls. 87.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS135

Veggskápur frá 1779 við búrdyrnar í anddyri gamla bæjarins á Keldum. Á myndinni eru einnig snælda - hrossabrestur og kambur.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS150

Jónína Elíasdóttir á leið í Húsadal í Þórsmörk.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS182

Ólafur Túbals listmálari (1897-1964). Ólafur var bóndi í Múlakoti í Fljótshlíð og stundaði þar greiðasölu um árabil.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS187

  1. Múlakot. Þýsk kona í upphlut Láru Túbals.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS195

Drengur og hestur í Múlakoti í Fljótshlíð.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS205

Frú Lára Túbals (1902-1984) eiginkona Ólafs Túbals í Múlakoti með dóttur hennar Guðbjörgu Lilju (1928-1976)

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS228

Víðimýrarkirkja í Skagafirði - bakhlið

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS229

Víðimýrarkirkja í Skagafirði - framhlið

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS239

Séð út Eyjafjörð. Þar sem túnin eru er nú nyrsti hluti Helgamagrastrætis.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS249

  1. Spónsgerði í Hörgárdal í Eyjafirði. Horft af bæjarhúsunum til suðurs fram Hörgárdal. Möðruvellir í fjarlægð og Hörgárdalsfjöllin í baksýn (frá vinstri: Strýta - Vindheimaöxl - Bægisárhnjúkur - Þverbrekkuhnjúkur - Drangafjall - Grjótárhnjúkur og rétt sést í Lönguhlíðarfjall. Lengst til vinstri sér í norðurstafninn á Framhúsinu.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS336

Bræðurnir Guttormur og Halldór Þormar í hlöðunni í Laufási

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS6

Dráttarbátar í höfn í Stettin í Póllandi - (þá Þýskalandi)

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS635

Fjárhús og hlaða á Skútustöðum í Mývatnssveit.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS2013

Danska konungsskipið við Sprengisand í Reykjavíkurhöfn. Konungur á leið um borð í snekkju sína eftir veislu á Hótel borg. Bryggjan er skreytt í tilefni konungskomunar.

Bruno Scweizer (1897-1958)

Skottastaðir og Eiríksstaðir

Uppdrættir af tveimur torfbæjum; Skottastöðum og Eiríksstöðum í Svartárdal. Hjá uppdrættinum af Eiríksstöðum kemur fram ártalið 1935 og líklega eru allir uppdrættirnir gerðir á því ári.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS2740

Þorbjörg Jónsdóttir Schwzeizer við bæjarlækinn Ekru á Heiðarseli á Síðu - Skaft.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS401

Af Hverfjalli í suðaustur yfir Lúdent. Búrfell í bakgrunni.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS408

Myndin er tekin - þar sem nú eru bílastæði við Hveri í Námaskarði. Hægra megin er ytri kollan á Námafjalli.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS41

Farþegar um borð í Dronning Alexandrine

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS429

Sigurður Benediktsson (1885-1974) bóndi Leifsstöðum í Svartárdal.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS431

Kristín Halldórsdóttir (f. 1927) á Skottastöðum í Svartárdal í fagurlega hlöðnum bæjargöngum á Skottastöðum. Að baki hennar sést í hlóðirnar. Til vinstri sér í fót Halldórs bónda Jóhannssonar. Bruno skrifaði að hliðargangurinn til vinstri sé aðeins 1 -4 metrar á hæð og að baki telpurnnar er fjóshurðin 1 -15 x 0 -60 cm.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS434

Heimilsfólk á Skottastöðum í Húnavatnsþingi. Frá vinstri: Halldór Jóhannsson (1895-1982) bóndi - Kristín (f. 1927) dóttir hans - Guðríður Einarsdóttir og Guðmundur Halldórsson rithöfundur - sem síðar kenndi sig við Bergstaði.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS439

Sigurður Jakobsson (1859-1945) bóndi á Steiná í Svartárdal - Hún.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS44

Samvinnubústaðirnir við Ásvallagötu í Reykjavík 1935

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS446

Kláfur yfir Svartá - Hún. Í kláfnum er Sigurður Benediktsson á Leifsstöðum en á bakkanum synir hans Björn og Sigurður.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS447

Sigurður Benediktsdóttir á Leifsstöðum í Svartárdal Hún í kláfi yfir Svará við Leifsstaði.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS45

Þúfnakargi í borginni. Sér til syðstu húsa við Framnesveg. Nýi Vesturbæjarskólinn stendur nú á opna svæðinu fremst á myndinni.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS452

Eiríksstaðir í Svartárdal. Laxárdalsfjöll fyrir miðri mynd í norðri. Nágranni kveður Guðmund Sigfússon (1906-1993) með kossi - en Guðmunda Jónsdóttir húsfreyja (1908-1937) stendur á bæjarhlaði.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS461

Hlóðaeldhús á Eiríksstöðum í Svartárdal - Hún.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS465

Eiríksstaðir í Svartárdal - Hún. Guðmundur Sigfússon (1906-1993) stendur með hest sinn framan við bæinn.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS47

Séð yfir Kaplaskjól í Reykjavík. Kaplaskjósvegur liggur í brekkunni á miðri mynd. Fremsta húsið er Skáli og í fjaska aftan við það er Blátún - hús Jóns Þorleifssonar listmálara.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS483

Bæjarlækur á Gili í Svartárdal. Smiðja og kvarnhús. Ofar í gilinu var rafmagnsrafstöð.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS491

Heyhlaðan á Gili í Svartárdal - Hún.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS496

Fjósar í Svartárdal. Húnavatnsþingi. Miðbaðstofan. Þar voru þrjú rúm.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS500

Á Fjósum í Svartárdal - Hún. F.v. Sigfús Eyjólfsson (1878-1956) bóndi - Kristvina Kristvinsdóttir (1883-1959) Unnur B. Gísladóttir (f. 1931) Jósef Sigfússon (f. 1921) Jón Hjálmarsson (f. 1925)

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS501

Séð fram Svartárdal - Bólstaðarhlíð fremst - en Skeggstaðafjall til hægri.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS507

Úr fjárhúsum í Bólstaðarhlíð í Húnavatnsþingi.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS51

Karlmaður í Hressingarskálagarðinum í Reykjavík

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS518

Saurbær í Vatnsdal. Náttmálasteinn í hægra horni - en hann er í Haukagilslandi og er eyktarsteinn frá Haukagili. Sér til Vatnsdalsfjalls.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS521

Hey tekið saman á Haukagili í Vatnsdal 1935. Heyið borið saman í sæti eða fúlgur. Sjá nánar: Úr torfbæjum inn í tækniöld III - bls. 252.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS529

Séð að Vatnsdalshólum í mynni Vatnsdals í Húnavatnsþingi.

Bruno Scweizer (1897-1958)

Niðurstöður 171 to 255 of 896