Efni bréfs: Varðar breytta og bætta starfsemi Kvenfélagasambands Íslands og spurningalista sem sendur hafði verið. Handskrifuð undirskrift Kristínar Guðmundsdóttur.
Efni bréfs: Frá Kvenfélagasambandi Íslands. Varðar Leiðbeiningastöð heimilanna. Handskrifaðar undirskriftir Hjördísar Eddu Broddadóttur og Elfu Þorgrímsdóttur.
Efni bréfs: Ýmislegt af 18. formannaráðsfundi Kvenfélagasambands Íslands. Meðfylgjandi er plagg með stofnári sambandsins, tilgangi þess og fjölda aðildarfélaga.
Efni bréfs: Ýmislegt frá Kvenfélagasambandi Íslands, m.a. um sumarnámskeið í Horne á Jótlandi, 3. - 5. ágúst 2001. Meðfylgjandi er skráningarblað á námskeiðið ásamt frekari upplýsingum. Handskrifuð undirskrift: Helga Guðmundsdóttir, forseti K.Í.
Efni bréfs: Varðar Leiðbeiningastöð heimilanna. Undir skrifa Guðrún Þóra Hjaltadóttir og Hjördís Edda Broddadóttir. Meðfylgjandi er afrit af greininni Þjóðfélagið hefur breyst, eftir Hjördísi Eddu Broddadóttur.
Greiðslukvittun, undirrituð af Ólínu Björnsdóttur. Greiðsla Kvenfélags Rípurhrepps til Minningarsjóðs Sigurlaugar frá Ási og varðandi styrk til Sjúkrahúss Skagfirðinga.
Listi yfir formenn kvenfélaga í Sambandi skagfirskra kvenna. Einnig stjórn S.S.K. og Orlofsnefnd. Á blaðinu er getið heimsókna kvenfélaga til Sjúkrahúss Skagfirðinga yfir árið 1993.
Hlutverk og markmið kvenfélaganna árið 1999. Spurningar frá Byggðasafni Skagfirðinga. Handskrifuð svör Kvenfélags Rípurhrepps. Meðfylgjandi blað með leiðbeiningum varðandi viðtalsupptökur á segulband. Titill blaðsins er Kvenfélögin&BSk.
Bréfið er handskrifað á 5 pappírsarkir í stærðinni 26,6 x 20,4 sm. Með liggur umslag með vélritaðri utanáskrift. Búið er að rífa frímerki af umslaginu.
Bréfið er handskrifað á þrjár línustrikaðar pappírsarkir í A4 broti. Með fylgir umslag og pappírsörk í A5 stærð sem er listi yfir verðlag á Sauðárkróki árið 1924.
Bréfið er handskrifað á línustrikaða pappírsörk og undirritað af Eyþór J. Hallsyni á Hofsósi. Meðfylgjandi er umslag, stílað á Valdemar Guðmundsson á Bólu.
Stílabók sem í eru skráðar upplýsingar sem varða skattframtöl á umræddu árabili. Kápan er farin að losna frá bókinni og hefti orðin ryðguð en blöðin eru í heillegu ástandi.
Skjalið er handskrifað á pappírsörk í A5 stærð. Inniheldur upplýsingar um verðlag til skattmats. Aftan á blaðinu eru ýmsir útreikningar. Blaðið er mjög upplitað og brúnir farnar að rifna.
12 blaðsíðna bæklingur sem inniheldur skýrslu um Hinn almenna kirkjusjóð 1964 og er gefin út af þáverandi biskupi yfir Íslandi. Meðfylgjandi er umslag frá Biskupsstofu.
Bréfið er handskrifað á rúðustrikaða pappírsörk í stærðinni 22,6 x 18 sm, alls 4 skrifaðar síður. Með liggur um slag sem búið er að klippa frímerkið af.
Skjalið er 6 síður í A4 stærð (þar af forsíða og ein auð síða). Það er gefið út af Búnaðarbankanum og er ljósrit af verðmati á hlutabréfum í Loðskinni hf í júlí 1997.
Myndin er svarthvít pappírskópía í stærðinni 5,5x5,5 sm. Á henni eru tvær konur sem standa á húströppum með barn milli sín og fyrir neðan tröppurnar eru tvö börn. Fólkið á myndinni er óþekkt.