Showing 60277 results

Archival descriptions
Advanced search options
Print preview Hierarchy View:

35618 results with digital objects Show results with digital objects

Hvatningakort

Hvatningakort frá aðilum eða aðdáendum innan Tindastóls - ekki kemur fram hverjir senda eða hverjum kortið er ætlað. Inni í kortinu stendur; STRÁKAR! nú er að duga eða drepast - upp með baráttuna og beint í 2. deild. Með "SÚSÍ" hefst þetta allt. Tindastóll "Fan Club".
Einnig er útklippt jólakveðja frá formönnum Ungmennafélagi Íslands.

Ljósmyndir

Ljósmyndir af íþróttaviðburðum og iðkendum UMSS.

UMSS (1910-

UMSS: Skjalasafn

  • IS HSk N00188
  • Fonds
  • 1906 - 1995

Skjalasafn UMSS frá árunum 1906 - 1993. Bókhald, fundarbækur, ársskýrslur, erindi, skrár, ljósmyndir og ýmis gögn.

UMSS (1910-

Sigurlaug Jónsdóttir og Gunnar Helgason: ljósmyndasafn

  • IS HSk IS-HSk N00493
  • Fonds
  • 1920-1980

Ljósmyndasafn úr eigu Sigurlaugar Jónsdóttur og Gunnars Helgasonar. Í safninu eru 20 litmyndir, í því eru auk þess þrjár filmur og 9 svart hvítar ljósmyndir. Flestar ljósmyndirnar eru teknar í 75 ára afmæli Jóns Nikodemussonar þann 7. apríl 1980. Einnig eru nokkrar myndir sem teknar eru á Tyrfingsstöðum og Gilsbakka á Kjálka. Allar litmyndirnar eru merktar á bakhliðinni en minna er um það með pappírskópíurnar.

Sigurlaug Jónsdóttir (1929-2008)

Ljósmyndasafn Björns H. Björnssonar

Um 140 svart/hvítar ljósmyndir úr eigu Björns Haraldar Björnssonar, sem var bróðir Ólínu Ingibjargar Björnsdóttur. Myndirnar fylgdu bréfa- og ljósmyndasafni úr eigu Ólínar og Guðjóns Sigurðssonar. Safnið kom í litlu tréboxi (vindlaboxi) sem var grisjað úr, inni í því var umslag með ljósmyndum sem settar voru saman við hinar. Einnig voru litlar myndamöppur með myndum af helstu kennileitum Kaupmannahafnar og utan um þær eru umbúðir / umslög og á þeim er upphleypt konungsskjaldarmerki Danmerkur.

KCM1097

Jarðaför Ólínu Jónasdóttur frá Miklabæjarkirkju 1956. Líkmennirnir nær (tilg.) Jón Gíslason, Miðhúsum fremstur og Rögnvaldur Jónsson (Kota-Valdi) aftastur. Fjær sjá mynd 1095. Jón Hallsson (sonur Ólínu) er næstur aftan við kistuna.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

Byggingarnefnd Félags eldri borgara á Sauðárkróki

Gögn úr safni Árna Blöndals og Maríu Gísladóttur konu hans. Í þessu safni eru skjöl, teikningar, fundargerðir, ársreikningar, lög félagsins, formleg erindi vegna byggingarnefndar Félags eldri borgara á Sauðárkróki og varða byggingu sem félagið stóð fyrir að yrði reist að Sauðármýri 3, Sauðárkróki. Í skjölunum eru fundagerðir og samskipti við sveitarfélagið Skagafjörð um forsendur og annað er tengjast byggingarframkvæmdirnar. Árni var kosinn í byggingarnefnd félagsins árið 1998 og er þetta skjöl sem voru í hans varðveislu. Skjölin voru að mestu leyti í plastvösum og -möppu sem var fjarlægt, hefti voru einnig hreinsuð úr.

Árni Blöndal: skjalasafn

  • IS HSk N00489
  • Fonds
  • 1955-2014

Safn úr eigu Árna Blöndals og Maríu Gísladóttur konu hans. Einkaskjalasafnið var forflokkað af skjalamyndara áður en það var afhent, í því safni er talsvert af persónulegum gögnum, sendibréf, jólakort, DVD diskar auk ljósmynda frá fjölskyldum þeirra bæði á Íslandi og erlendis. Í safninu eru einnig skjöl sem tengjast félögum sem Árni starfaði og kom að í gegnum tíðina. Safnið var að miklu leyti flokkað og voru skjölin geymd í plastvösum sem voru í plastmöppu. Safnið var yfirfarið og sumt flokkað á ný og því skipt í tvennt, það sem tengist byggingu Sauðármýrar 3 á Sauðárkróki og einkaskjöl. Allt plast var grisjað úr safninu, einnig ljósrit af fundargerðum úr fundargerðabókinni, afrit af ljósmyndum sem teknar voru á stjórnarfundum húsfélagsins að Sauðármýri 3.
Hefti voru fjarlægð. Ljósmyndirnar voru settar í sýrufría plastvasa fyrir betri varðveislu, öll pappírsgögn voru sett í arkir. Safnið var í tveimur öskjum.

Árni Ásgrímur Blöndal (1929-2017)

Ýmis pappírsskjöl 2000-2004

Í safninu er skjalaskrá Jóns Þorlákssonar og Ingibjargar Claessen Þorláksson sem afhent voru Borgarskjalasafni Reykjavíkur. Göngukort í nágrenni við Hraunsvatn í Öxnadal límt við þakkarbréf frá Hrauni í Öxnadal ehf.

Árni Ásgrímur Blöndal (1929-2017)

Víðilækur í Varmahlíð

Kaupsamingur og afsal vegna Víðilæks sem var sumarbústaður í eigu Árna og Maríu, einnig lítil skrifblokk með lista yfir innkaup vegna framkvæmda við bústaðinn. Eitt skjal með lista og útskýringum er varða val á skífu - ekki liggur fyrir hverju það tengist en skjalið var sett með kaupsamningsskjölunum.

Árni Ásgrímur Blöndal (1929-2017)

DVD diskar

Tveir dvd diskar í plasthulstri merktir "Ferð í Blöndu 1968" og "Júgóslavía".

Árni Ásgrímur Blöndal (1929-2017)

Vísnasafn

Vísur úr safni Árna og nokkrar sem hann samdi sjálfur, einnig er handskrifuð frásögn og á blaðinu er límdur miði - líklega athugasemd frá Árna sjálfum. Skjölin eru án dagsetningar og ártals nema tölvupóstsamskipti Árna við aðra hagyrðinga.

Árni Ásgrímur Blöndal (1929-2017)

Ljósmyndir

Safn ljósmynda frá fjölskyldu Árna og Mæju, einnig myndir frá ferðakynningu Flugleiða sem haldin var á Hótel Mælifelli á Sauðárkróki um 1980-1985.

Árni Ásgrímur Blöndal (1929-2017)

Fjölskyldu ljósmyndir

Ljósmyndir frá fjölskyldu Árna og Maríu í Bandaríkjunum. Myndirnar voru í pastmöppu merktri Álfheiði Blöndal.

Árni Ásgrímur Blöndal (1929-2017)

Pistlar og gamanmál 1955-2000

Skemmtivísur, annálar og endurminningar úr ferðum erlendis sem flutt var á skemmtunum Rótaryklúbbsins í gegnum tíðina. Flest skjölin eru án ártals.

Árni Ásgrímur Blöndal (1929-2017)

Results 171 to 255 of 60277