Prófúrlausnir nemenda Sólgarðaskóla í biblíusögum frá árinu 1967. Úrlausnir 12 nemenda, handskrifaðar á jafnmargar pappírsarkir í A4 stærð. Með liggja prófspurningar fyrir yngri og eldri deild.
Grein send Degi á Akureyri þar sem Guðjón fjallar ítarlega um Sauðárkrók, bæjarstjórnina, kirkjuna, íbúana, heilbrigðismál, skólamál, verslun, félags- og skemmtanalíf og atvinnumál.
Barnafræðsluskýrslur árin 1920-1966. Ritið er 81 bls auk kápu og er heftað og kjallímt, A4 stærð. Það er gefið út af Hagstofu Íslands og er hluti af hagskýrslum, aukaflokki nr 1.
Prófúrlausnir nemenda Sólgarðaskóla í biblíusögum frá árinu 1968. Úrlausnir 9 nemenda, handskrifaðar á jafnmargar pappírsarkir í folio stærð. Með liggja prófspurningar fyrir yngri og eldri deild, á vélrituðum pappírsörkum í folio stærð.
Fréttabréfin eru fjölrituð á pappírsarkir sem eru ýmist í folio eða A4 stærð. Hvert þeirra er 1-16 síður að lengd. Alls 15 tölublöð frá árabilinu 1949-1969.
1 bréf, dagsett 19.07.1969. Varðar gagnfræðaskóla á Sauðárkróki. Með liggur endurrit af fundargerð. Bréfið er stílað á Björn Gunnlaugsson, oddvita Viðvíkurhrepps.
Bréf í A4 stærð sem inniheldur ályktum um byggingu héraðsskóla. Bréfið er stílað á formenn skólanefndar í Skagafirði og stuðlað fulltrúum stjórnar Varmahlíðar.
Bréf í A4 stærð. Bréfið er frá bæjarstjóranum á Sauðárkróki og með því fylgir útskrift úr fundargerð þar sem forsvarsmenn skólamála ræddu hugsanlegt samstarf um Gagnfræðaskóla á Sauðárkróki.
Eyðublaðið er prentað á þykkar græna pappírsörk í A5 stærð. Það er ætlað til útfyllingar af heimilislækni vegna undanþágu nemenda til að stunda nám í ákveðnum greinum.
Prófúrlausnir nemenda Sólgarðaskóla í biblíusögum frá árinu 1970. Úrlausnir 13 nemenda, handskrifaðar á jafnmargar pappírsarkir í A4 stærð. Með liggja prófspurningar fyrir eldri deild, á vélritaðri pappírsörk í A4 stærð.
1 fundargerð um skólamál, vegna fundar á Hofsósi sem boðaður var af námstjóranum á Norðurlandi. 3 bls. í A4 stærð, afrit gert með kalkipappír. Ástand skjalanna er gott.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð og aðra í A5 stærð. Það varðar samning um skólamál í Hofsós-, Hofs- og Fellshreppum. Ástand skjalsins er gott.
Fjölritað dreifibréf í A4 stærð. Bréf frá Menntamálaráðuneytinu til skóla er varðar rekstrarreikning skóla 1974 og hlutdeild ríkis í rekstrarreikningi 1974.
Listinn er handskrifaður á 3 pappírsarkir í A4 stærð. Listinn nær yfir nemendur Barnaskóla Akrahrepps og Varmahlíðarskóla í skólaakstri skólaárið 1976-1977.