Fólk og hestar á hlaðinu í Heiðarseli. Þorbjörg Schweizer situr á hesti en Sveinbjörg systir hennar talar við hana. Árni Jónsson hugar að reiðtygjum á hesti Þorbjargar. Hugsanlega er þarna mynduð brottför Þorbjargar og Brunos - en þau fluttust til Þýskalands.
Á Höfða í túninu í Miðdal í Mosfellssveit. Í hægra horninu er grafreitur fyrir dýr þar sem börnin í Miðdal höfðu yfirsungið fallin dýr. Fremstur er faðir Georg Lang prestur. Þá Karolína Sigríður Einarsdóttir (1912-1962) frá Miðdal - Þá Annie Schweizer - Sigurður Ólafsson hestamaður og söngvari og loks Leo Schweizer - sem snýr baki í myndavélina.
Helgi Sigurjónsson (1867-1957) á bæjarhlaðinu á Grímsstöðum í Mývatnssveit að dengja ljá á sleggjuhaus. Hjá honum er Jóhannes Sigfinnsson (1896-1980) bróðursonur Helga. Konan í dyrunum gæti verið Kristjana Sigfinnsdóttir (1903-1994) - systir Jóhannesar. 
,
,Myndin er sögð tekin 1938 í safni Schweizer - líklegra er þó að hún sé tekin 1935 eða 1936.
Útsýni til suðurs frá Heiðarseli á Síðu. T.h. eru Svínadalir og Þorgrímsheiði. Fjaðrargljúfur fyrir miðri mynd og Heiðarásar t.v. Hlaðnir torfgarðar (túngarðar) eru í forgrunni - en bil var haft á milli torfstungunnar (plælunnar) til að koma í veg fyrir að jarðvegurinn rynni til - enda hann gljúpur eftir Kötlugosið 1918. Nýslegið er fyrir ofan garð og sjást ljáför greinilega. Tjald Brunos og Þorbjargar fyrir miðri mynd - þá bæjarhúsin. T.h. er Ekruhesthúsið.
Hemla í V-Landeyjahreppi. Íbúðarhús og útihús. Við bæinn stendur tjaldbúð sem Rangæingar reistu á Alþingishátíðinni 1930 og nefndu Rangæingabúð. Myndin er tekin 15. ágúst 1938 á útfarardegi Hólmfríðar Magnúsdóttur húsfr. í Hemlu. Bíllinn er af Nash gerð og bar skráningarnúmerið L-12. 
,
,
,
,Sjá einnig BS 2758
Hemla í V-Landeyjahreppi. Íbúðarhús og útihús. Við bæinn stendur tjaldbúð sem Rangæingar reistu á Alþingishátíðinni 1930 og nefndu Rangæingabúð. Myndin er tekin 15. ágúst 1938 á útfarardegi Hólmfríðar Magnúsdóttur húsfr. í Hemlu. Bíllinn er af Nash gerð og bar skráningarnúmerið L-12.
,
,
,
,Sjá einnig BS 2754
sr. Hálfdan Helgason (1897-1954) á Mosfelli í Mosfellssveit með börnum sínum. f.v. Jón Helgi (f. 1933) - Marta María (f. 1935) - Árni Reynir (f. 1931). Lengst t.h. er Helga Þórðardóttir (f. 1929) - síðar kona Benedikts Magnússonar á Vallá.
Kirkjuklukkan á Mosfelli. Um klukkuna og kirkjuna á Mosfelli fjallar Halldór Laxnes á einstakan hátt í Innansveitarkróniku sinni. Klukkan hefur væntanlega verið sett upp í sálnahliðinu til að Bruno gæti tekið af honum myndina.
Í Almannagjá séð að Lögbergi. Ekki er fyllilega ljóst hvar Lögberg var. Nýverið hafa komið fram kenningar um að brekkan meðfram berginu hafi verið þingbrekkan - en eldri kenningar hafa vísað til annars staðar.
Nanna Jónsdóttir (1907-1976) frá Halldórsstöðum í Reykjadal í dyrum á prestsbústaðnum á Vatnsenda í Ljósavatnsskarði. Fyrir framan hana eru þrjú börn hennar og Þormóðs Sigurðssonar. F.v. Vigdís 1931 - Kristbjörg (f. 1933) og Árni (f. 1932).
Sr. Þormóður Sigurðsson (1903-1976) á Vatnsenda í Ljósavatnsskarði. Hann heldur á Vigdísi dóttur hans (f. 1931). Óvíst er hvenær myndin var tekin en hugsanlega 1936 eða 1938.