Showing 51717 results

Archival descriptions
Item
Print preview Hierarchy View:

38415 results with digital objects Show results with digital objects

Um sumarfund í Finnlandi

Varðar sumarfundinn í St. Michels í Finnlandi 2005. Bréfið er frá Kristínu Guðmundsdóttur, Kvenfélagasambandi Íslands og inniheldur upplýsingar um ferðlagið og fundinn.

Vinnuvakan

Vinnuvakan, í Varmahlíðarskóla 21. mars 2004.
Handskrifaðar undirskriftir Vinnuvökunefndar:
Klara Jónsdóttir, Bakkaflöt
Sigríður Jónsdóttir, Lækjarbakka
Jóna Jónsdóttir, Varmahlíð
Ingibjörg Jóhannesdóttir, Miðgrund
Helga Bjarnadóttir, Varmahlíð

Hallveigarstaðir

Frá Kvenfélagasambandi Íslands, Leiðbeiningastöðvar heimilanna. Handsrifuð undirskrift framkvæmdastjórans Hjördísar Eddu Broddadóttur.

Sauðárkrókur

Efni bréfs: Boð Kvenfélags Sauðárkróks á jólafund félagsins 8. desember 2004 á Ólafshúsi, Sauðárkróki. Bréfið er stílað á Kvenfélag Rípurhrepps, formann Ingibjörgu Jóhannesdóttur, Ketu. Handskrifuð undirskrift Lovísu Símonardóttur.

Bergsstaðir

Bréf formanns Sambands skagfirskra kvenna, Sigrúnar Aadnegard, til formanna kvenfélaganna. Meðfylgjandi bréf frá stjórn Sambands norðlenskra kvenna, dagsett á Sauðárkróki 22.02.2004, auk stjórnarfundar Sambands skagfirskra kvenna, haldinn að Bergstöðum 19.01.2004. Vitnað er í bréfið og fundinn í bréfi Sigrúnar. Einnig er vitnað í leiksýningu frá Leikhúsmógúllnum ehf. og meðfylgjandi upplýsingar um sýninguna „100% „hitt““.

Hallveigarstaðir

Frá Kvenfélagasambandi Íslands. Varðar Leiðbeiningastöðvar heimilanna. Handskrifuð undirskrift Elfu Þorgrímsdóttur, heimilisfræðikennara og framkvæmdastjóra Leiðbeiningastöðvar heimilanna.

GI 1522

Kór eldri borgara Efsta röð frá vinstri: Ásgrímur Helgason "Bibbi" - Rögnvaldur Gíslason - Ólafur A Jónsson - Þorbergur Jósefsson - Sigmar Halldór Árnason Hafstað - Kári Steinsson - Páll Sigurðsson - Árni Blöndal - Haukur Haraldsson. Önnur röð frá vinstri: Dóra Magnúsdóttir - Kristbjörg Ingvarsdóttir - Anna Eiríksdóttir - Þorbjörg Þorbjarnardóttir "Hobba" - Sigríður Ingimarsdóttir "Lilla frá Flugumýri" - óþekkt - María Blöndal - Indríður Indriðadóttir Húsey - Sigurlaug Guðrún Gunnarsdóttir - Marta Svavarsdóttir - Sigurlaug Sveinsdóttir - Ása Helgadóttir - Þriðja röð: Kristín Helgadóttir -Berta Karlsdóttir - (Ragna Hólmfríður Pálsdóttir) þekkt - Margrét Stefánsdóttir - Alda Ellertsdóttir - Ingibjörg Kristjánsdóttir - Anna Pála Guðmundsdóttir - Sigríður Jónsdóttir - Katrín Jóelsdóttir - Ragnheiður Þorvaldsdóttir - Þuríður Pétrusdóttir - Halla Rútsdóttir og Edda Skagfeld.

Lög og félagatal

Lög og félagatal Kvenfélagsins Framtíðarinnar. Bókin er í ágætu ásigkomulagi.

Kvenfélagið Framtíðin (1939-)

Reykjavík

Bréf frá Kvenfélagasambandi Íslands. Handskrifuð undirskrift Helgu Guðmundsdóttur, forseta KÍ.
Bréfið er stílað til héraðs- og svæðasambandsformanna KÍ og formanna kvenfélaganna innan þeirra.

Hólar

Efni bréfs: Þróunarverkefni innan Ferðamáladeildar Hólaskóla, „Matarkistan Skagafjörður“. Handskrifuð undirskrift Laufeyjar Haraldsdóttur, Ferðamáladeild Hólaskóla.

JG-1405

Óklárað málverk af Reykjavík - þar sem horft er yfir sundin - Viðey og Esjuna. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1993-2003.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-1424

Óklárað málverk af tveimur mönnum hjá þrennum bátum sem standa á landi - óvíst hvar - mögulega í Hafnafjarðahöfn. Í bakgrunni má sjá fjölda bygginga og fjöll (Esjuna?). Myndin gæti verið frá tímabilinu 1993-2003.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

Flugumýrarbrenna

Flugumýrarbrenna. Hluti af myndaseríu: Sturlungaöld. 11 myndir.
"Flugumýrarbrenna 1253. Gissur Þorvaldsson höfðingi af ætt Haukdæla var í bandalagi við Ásbirninga og hafi flust til Skagafjarðar og keypt Flugumýri. Þar var nýafstaðin veisla þar sem Ingibjörg Sturludóttir (Þórðarsonar sagnaritara) 13 ára var gift Halli, 16 ára syni Gissurar. Lögðu óvinir Gissurar eld að bænum er heimamenn áttu síst von á og brunnu margir þar inni. Hallur var dreginn helsærður til kirkju og Árni beiskur fóstri Halls var veginn" (Á Sturlungaslóð í Skagafirði, Sauðárkróki, 2003. Bls. 36).

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

Víðinesbardagi 1208

Víðinesbardagi. Hluti af myndaseríu: Sturlungaöld. 11 myndir.
"Víðinesbardagi í Hjaltadal 1208. Biskup sat á hesti og með honum ábótar og nokkrir prestar og kallaði að eigi skyldi berjast. Að því gáfu engir gaum. Sannaðist í þessum atburði að ekki verður ófeigum í hel komið eða feigum forðað. Í bardaganum fékk Kolbeinn stein í höfuðið og féll í öngvit og missti mál og mátt." (Á Sturlungaslóð í Skagafirði, Sauðárkróki, 2003. Bls. 16).

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

Vinnuvakan

Efni bréfs: Varðar Vinnuvökuna 22. - 23. mars 2003 í Varmahlíðarskóla.
Handskrifaðar undirskriftir: Guðrún Andrésdóttir og Ása Helgadóttir.

Hallveigarstaðir

Efni bréfs: Frá Kvenfélagasambandi Íslands. Varðar Leiðbeiningastöð heimilanna. Handskrifaðar undirskriftir Hjördísar Eddu Broddadóttur og Elfu Þorgrímsdóttur.

Fundagerðabók

Félagið var stofnað þann 3. janúar 1987. Fundurinn var haldinn í Félagsheimilinu Höfðaborg. Félagið var í fyrstu nefnt Íþróttafélagið Neisti, en nafninu breytt í Ungmennafélagið Neisti er það sameinaðist Geisla árið 1990.
Í bókinni eru einnig prentaðar fundagerðir og nokkur laus blöð.

JG-1460

Ókláruð landslagsmynd af ræktuðu landi með fjöllum í bakgrunni - mögulega Jarlhettur hjá Flúðum. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1993-2003

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-1473

Óklárað málverk af fjórum manneskjum á hestbaki við Elliðárlón. Í bakgrunni má sjá Breiðholtið og Borgarspítalann. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1993-2003.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

Hólabardagi 1209

Hluti af myndaseríu: Sturlungaöld. 11 myndir.
"Hólabardagi 1209. Að tilstuðlan Haukdælingsins Þorvaldar Gissurarsonar í Hruna slóust sunnlenskir og borgfirskir bændur í lið með Arnóri Tumasyni að hefna Kolbeins Tumasonar og tóku upp erindi hans frá Víðinesi. Með þeim voru þeir bræður Sighvatur og Snorri Sturlusynir. Slí í brýnu á Hólum, en biskup var liðfár og gerði Arnór honum þá kosti að létta af þeim bannfæringunni og bauð á móti grip fyrir sakamenn þá sem biskup hélt hlífiskildi yfir. Neitaði biskup þar til Snorri bauð honum með sér í Reykholt og reið með hann brott af Hólastað, en sakamenn þeir sem Kolbeinn hafði sektað voru dregnir úr kirkju og höggnir." (Á Sturlungaslóð í Skagafirði, Sauðárkróki, 2003. Bls. 18).

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

Nóttin fyrir Haugsnesfund

Nóttin fyrir Haugsnesfund. Hluti af myndaseríu: Sturlungaöld. 11 myndir.
"...Kolbeinn [ungi] lést af brjóstmeini því er hann hafði lengi átt við að stríða, í júlí 1245. Við völdum hans í Skagafirði tók Brandur Kolbeinsson frændi han á Stað í Reyninesi. Áður en Kolbeinn dó hafði hann ákveðið að afhenda Þórði kakala Norðausturland, til að tryggja friðinn. Það var föðurarfur Þórðar sem Kolbeinn hafði náð undir sig með Örlygsstaðabardaga. Þórður fór einnig með völd vestan lands, og var nú komin upp svipuð staða og fyrir bardagann. Sturlungar réðu Norðausturlandi og Vesturlandi ,en Ásbirningar Skagafirði og höfðu stuðning Haukdæla.
Fylgismenn Kolbeins ólu á óvild milli Eyjafjarðar og Skagafjarðar og misklíð milli héraðanna stigmagnaðist. Um páska 1246 leitaði Brandur stuðnings hjá Gissuri Þorvaldssyni vini Kolbeins og bandamanni. Þórður kakali frétti það og var snar í snúningum og safnaði liði af öllu yfirráðasvæði sínu, bæði norðan og vestan. Hann tjáði mönnun sínum á fundi á Grund í Eyjafirði að nú hyggðist hann ráðast inn í Skagafjörð og láta vopnin tala. Þriðjudaginn eftir páksaviku hélt hann af stað vestur Öxnadalsheiði með 600 manna lið. Héldu þeir til Silfrastaða um kvöldið og lágu þar úti um nóttina. það hvessti, og söng vindur í spjótum, sem stungið hafði verið niður úti við. Vöknuðu menn við þetta og héldu að ráðist hefði verið á þá. Í glímuskjálfta og óðagoti var gripið til vopna og börðust menn í ákafa hver við annan um hríð. Einn maður féll og nokkrir særðust áður en menn áttuðu sig á hvers kyns var. Sýnir þessi atburur vel hversu ógnir ófriðarins voru farnar að sauma að taugum liðsmanna Þórðar. Menn voru komnir í óvinaland. Margir höfðu barist á Örlygsstöðum og vor uminnugir þeirra atburða þar sem þeir biðu lægri hlut. Svo átti ekki að fara í þetta sinn.
Brandur Kolbeinsson var viðbúinn og hafði safnað liði um Skagafjörð og Húnaþing. Hann var með 720 manna lið á Víðimýri. Reynt var að semja, en kakalinn hafnaði öllum tillögum og vildi ráða öllum samningum sjálfur.
Nóttina fyrir bardagann gisti Þórður á Úlfsstöðum í Blönduhlíð. Lið Brands var á Víðimýri illa fyrir kallað og taugaveiklað. Sagt var að undarleg sótt hefði komið í lið hans og féllu um þrjátíu manns í öngvit og urðu ófærir til bardaga. Bardagamorguninn hélt hann yfir Jökulsá og bjóst til bardaga." " (Á Sturlungaslóð í Skagafirði, Sauðárkróki, 2003. Bls. 33).

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

Hauganesfundur 2

Hauganesfundur 1. Hluti af myndaseríu: Sturlungaöld. 11 myndir.
"Hauganes liggur að eyrum Djúpadalsár í Blönduhlíð. Í Hauganesbardaga féllu 110 manns. Myndsviðið er dökkt, eins og dauðinn hafi brugðið hend fyrir sól þennan vordag, í apríl 1246. Í þessari orrustu var veginn brandur sonur Staðar-Kolbeins, sem fór fyrir liði Skagfirðinga. Hann komst sjálfur undan á hesti, en náðist niðri á grundunum og var tekinn af lífi. Reistur var róðukross þar sem hann féll og vvar grundin kölluð Róðugrund. Kolbeini kaldaljósi, föður Brands, varð mikið um atburðina og dó nokkurm mánuðum seinna." (Á Sturlungaslóð í Skagafirði, Sauðárkróki, 2003. Bls. 32).

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

Bannfæring

Bannfæring. Hluti af myndaseríu: Sturlungaöld. 11 myndir.
"Kolbeinn og Gyðríður bjuggu á Víðimýri og hjá þeim hafði Guðmundur verið presturtvo vetur þegar Brandur Sæmundsson Hólabiskup dó 1201. Kolbeinn kallaði þá saman fund á Völlum í Svarfaðardal. Þar mættu helstu höfðingar Norðlendinga og Gissur Halsson Haukdælingur, sem bað fyrir biskupefni Magnús son sinn. Úr varð að Guðmundur var kjörinn biskup, enda vinsæll og hæógvær maður og hefur Kolbeinn, að líkindum, talið að hann yrði auðvelt verkfæri sitt. Fór Kolbeinn til Hóla eftir biskupskjörið, tók búið í sínar hendur og fékk Guðmundur litlu ráðið, þótt hann sætti ekki við það ráðslag. Var ákveðið að Sigurður Ormsson tæki við umsjón Hólastaðar og Kolbeinn fór heim aftur, en vinskapur þeirra Guðmundar var orðinn lítill.
Um 1250 skarst alvarlega í odda milli þeirra tveggja út af dómsmáli yfir Ásbirni presti, sem kallaður var pungur. Dæmdi Kolbeinn prestinn sekan skóggangsmann. Biskup hafnaði niðurstöðu dómsins, enda taldi hann að kirkjan ætti að dæma í málinu, tók prestinn til sín og bannaði að nokkur prestur veitt Kolbeini kirkjulega þjónustu, né nokkrum sem í dómnum sat eða bar vitni. Mótspil Kolbeins var að fara til Hóla með skóggangsstefnu á húskarla vegna samneytis við prestinn. Þá bannfærði biskup Kolbein. Sættir tókust í málinu í að sinn fyrir tilstilli Páls Jónssonar Skálholtsbiksups, en áfram deildu þeir." (Á Sturlungaslóð í Skagafirði, Sauðárkróki, 2003. Bls. 9-10).

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

60 ára afmæli Sambands skagfirskra kvenna

Efni bréfs: Varðar 60 ára afmæli Sambands skagfirskra kvenna og sýningu á handverki kvenna í Safnahúsi Skagfirðinga af því tilefni.
Helga Þórðardóttir og Ingibjörg Hafstað skrifa fyrir hönd afmælisnefndar.
Konurnar í afmælisnefndinni:
Ásdís Sigurjónsdóttir, Skörðugili
Helga Þórðardóttir, Mælifellsá
María G. Guðfinnsdóttir, Ökrum
Ingibjörg Hafstað, Vík
Lovísa Símonardóttir, Sauðárkróki

Hallveigarstaðir

Efni bréfs: Varðar Leiðbeiningastöðvar heimilanna, handskrifuð undirskrift Elfu Þorgrímsdóttur, heimilifræðikennara og framkvæmdastjóra Leiðbeiningastöðvar heimilanna.

Vík

Efni bréfs: Haustvaka kvenfélaganna 2003, í umsjá Kvenfélags Staðarhrepps í Félagsheimilinu í Melsgili, 19. október.
Handskrifuð undirskrift Ingibjargar Hafstað.

Ársskýrsla 2003

Skýrsla er tölvuprentuð á 17 pappírsarkir í A4 stærð.
Hún fjallar um starfsemi safnsins árið 2003.
Höfundur er Sigríður Sigurðardóttir, safnstjóri.
Ástand skjalsins er gott.

Byggðasafn Skagfirðinga (1948 -

Bergstaðir

Efni bréfs: Bréf Sigrúnar Aadenegard, formanns S.S.K. til formanns Kvenfélags Rípurhrepps m.a. varðandi bréf Guðrúnar Ásmundsdóttur.

JG-1461

Óklárað málverk af stórum bát sem stendur á landi - óvíst hvar. Í bakgrunni má sjá vita og fleiri báta. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1993-2003

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-1488

Óklárað málverk af fólki og hestum á túni - óvíst hvar. Í bakgrunni má sjá fjöll. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1993-2003.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

Hauganesfundur 1

Hauganesfundur 1. Hluti af myndaseríu: Sturlungaöld. 11 myndir.
"Hauganes liggur að eyrum Djúpadalsár í Blönduhlíð. Í Hauganesbardaga féllu 110 manns. ... Í þessari orrustu var veginn brandur sonur Staðar-Kolbeins, sem fór fyrir liði Skagfirðinga. Hann komst sjálfur undan á hesti, en náðist niðri á grundunum og var tekinn af lífi. Reistur var róðukross þar sem hann féll og vvar grundin kölluð Róðugrund. Kolbeini kaldaljósi, föður Brands, varð mikið um atburðina og dó nokkurm mánuðum seinna." (Á Sturlungaslóð í Skagafirði, Sauðárkróki, 2003. Bls. 32).

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

Aðför að Oddi Þórarinssyni

Aðför að Oddi þórarinssyni. Hluti af myndaseríu: Sturlungaöld. 11 myndir.
"Aðförin að Oddi Þórarinssyni í Geldingarholti. Sá atburður gerðist 13. janúar 1255. Gissur var í Noregi og hafði beðið Odd að stjórna liði sínu og hafa með mannaforráð að gera þar til hann kæmi aftur. Oddur rændi því sem hann vildi af andstæðingum Gissurar og stefndi til hefnda við Eyjólf ofsa, þann er brenndi Flugumýri. Er skemmst frá að segja að menn Eyjólfs komust í Geldingarholt án þess að njósn bærist og var Oddur drepinn úti á túni, þar sem hann varðist einn lengi vel, uns maður skreið aftan að honum og hélt fótum hans." (Á Sturlungaslóð í Skagafirði, Sauðárkróki, 2003. Bls. 40).

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

Results 256 to 340 of 51717