Showing 48574 results

Archival descriptions
Item
Advanced search options
Print preview Hierarchy View:

35335 results with digital objects Show results with digital objects

Útsvarsskrá fyrir Haganeshrepp 1964

Skjalið er í stærðinni í stærðinni 38 x 46 cm. Er það eyðublað sem búið er að handfæra inn á upplýstingar um útsvarsgreiðendur í Haganeshreppi árið 1964 og greiðslustöðu þeirra.

Haganeshreppur

Sauðfjáreign 1946

Handskrifað pappírsskjal, samanbrotin örk. Stimpluð og undirrituð af hreppstjóra Akrahrepps.

Jóhannes Steingrímsson (1883-1968)

Glósubók um réttarfar

Stílabók sem inniheldur glósur um réttarfar, tilheyrandi lögfræðinámi. Kápuna vantar á bókina og hún er nokkuð slitin og snjáð.

Sigurður Sigurðsson (1887-1963)

Skjal 1, framhlið

Framan af ávarpar sögumaður lesandann og leggur honum lífsreglurnar en undir lokin beinir hann athyglinni að spekingnum Sölva og hans miklu afrekum. En hann fullyrðir að lykill allrar þekkingar sé fundinn af sjálfum Sólon spekingi.

Skjal 1, framhlið

Titill: Dagpóstur
Sölvi er að morgni í febrúar sendur aftur að stað um allt Austurland af höfðingjunum á Norðurlandi, erfitt er að átta sig á hvert tilefnið er en á þeim síðum sem hér eru saman er Sölvi víða um land og þarf tilneyddur að bera eða draga á eftir sér þungar birgðir sem hann er tilneyddur til að . Sögumaður ávarpar Sölva sjálfan og mest er fjallað um yfirnáttúruleg afköst Sölva sem er greinilega enginn venjulegur maður. Hann getur að sögn sögumanns slegið 2000 dagslætti á meðan venjulegur húskall ræður ekki lengur við að slá nema sem nemur 3 dagsláttum á viku. Þetta gerir hann allt með hjálp drottins. Forsendurnar eru þær að Sölvi skilur lífið ljósið og náttúruna, hann þekkir öflin og hefur tekið þau í sína þjónustu. Lýsingar sem þessar eru algengar í textum Sölva og varpar ekki síst ljósi á heimssýn Sölva sem er mjög í anda þess sem einkenndi rómantíkina í upphafi, þar sem litið var á náttúruna sem eina heild og manninn sem hluta af henni.

Skjal 1, framhlið

Sölvi kynnir fyrir lesandanum mun á sérhljóði (sem hann kallar hljóðstaf) og samhljóði áður en hann fer í gegnum þessar skrifreglur lið fyrir lið.

Skjal 1, framhlið

Tafla með upplýsingum um reikistjörnur sólkerfisins. Fjarlægð þeirra frá sólu, þvermál þeirra og snúningshraði.

Mynd 1

Ljósmynd af líkan af stórri byggingu. Ekki ljóst um hvaða byggingu er að ræða.

Sjálfsbjörg í Skagafirði (1962-

Síða 1, framhlið

Á þessari síðu er Sölvi augljóslega að bregðast við ákærum Sigfúsar Skúlasonar sýslumanns í Eyjafirði um bókaþjófnað. Sölvi lýsir því hvernig hann ýmist kaupir, selur eða gefur bækur á ferðalögum sínum. Hann nafngreinir menn sem hann hefur keypt af bækur, t.d. segist hann hafa keypt bækur af Jóni Bónda á Haukagili í Vatnsdal. Nokkuð af þeim bókum segir Sölvi að hafi verið óseldar þegar haldið var austur og þar hafi hann ýmist selt þær eða gefið. Hann rifjar jafnframt upp ákærur Daníels Jónssonar á hendur sér fyrir bókaþjófnað og minnist á Eggert Briem sem dæmdi í því máli. Hann furðar sig á að Sigfús hafi getað án nokkra sannana gert upptækar þær bækur sem hann þóttist eiga. Sölvi gerir sjálfur grein fyrir að minnsta kosti hluta þessara bóka og nefnir m.a. að hann hafi fengið Mynstershugleiðingar hjá Ólafi bókbindara á Ystu-Grund í Skagafirði (Ólafur Guðmundsson 1808-1853).

Síða 01, framhlið

Á þessari síðu ávarpar sögumaður Sölva og hughreystir hann með því að réttlætinu verði fullnægt hinum megin grafar. Þar verði þeim refsað sem hafi gert á hlut hans en hann njóti ávaxtana af dyggðugu lífi sínu á jörðinni.

Lög um félagsheimili

Fjölritaður bæklingur, alls 6 bls. í A5 broti.
Á titilsíðu stendur þetta: Lög um félagsheimili og frumdrög að reglum um félagsheimili. Sérprent úr "Félagsheimili."

Akrahreppur (1000-)

Afrit af bréfi Akrahrepps til fjárveitingarnefndar Alþingis

Bréfið er vélritað á bréfsefni Varmahlíðarskóla. Það er undirritað af framkævmdanefnd og oddvitum Akrahrepps og Seyluhrepps. Bréfið er ein vélrituð bls og með liggur afrit af vinnusamningi, afrit af bréfi til Menntamálaráðuneytis og útdráttur úr fundargerðum bygginarnefndar. Öll eru þessi skjöl frá árinu 1979.

Akrahreppur (1000-)

Fundargerð fundar um læknamiðstöð

Fundargerðin er vélrituð á 3 pappírsarkir í A4 stærð. Fundur um læknamiðstöð á Sauðárkróki. Auk nenfdarmanna sátu fundinn oddvitar í læknishéraðinu og sýslumaður.

Akrahreppur (1000-)

Barnasálmar

Barnasálmar. Valdimar Briem. Útgefandi Reykjavík : Sigurður Kristjánsson, 1898. 2. prentun. Bókin er 50 bls., 13,5 x 8,6 sm að stærð.

Bréf Hermanns Þorsteinssonar og Páls Árnasonar

Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A5 broti, alls tværi skrifaðar síður. Það er undirritað af Hermanni Þorsteinssyni á Reykjarhóli og Páli Árnasyni á Ysta-Mói. Bréfið varðar ósk um endurgreiðslu á láni fyrrum Holtshrepps til sýslusjóðs vegna brúargerðar yfir Fljótaá.

Hermann Þorsteinsson (1843-1915)

Blak

Fjölritaðar leiðbeiningar um blak, alls 5 númeraðar pappírsarkir í folio stærð.

Sólgarðaskóli

Íslandskort

Kortið sýnir suðvesturhluta Íslands. Það er gefið út af Geodetic Institute. Brotið í 21 hluta og efsti hlutinn hægra megin hefur rifnað frá og glatast.

Sólgarðaskóli

Handrit að kennslubók í líffræði

Handritið er 44 vélritaðar síður. Búið er að handskrifa ýmsar athugasemdir inn í það. Síðurnar eru nokkuð slitnar og blettóttar. Enginn titill er á handritinu en um er að ræða einhvers konar kennslubók í líffræði.

Sólgarðaskóli

Ársrit Stjörnunnar

Blaðið er í A4 broti og er 112 síður, auk kápu. Undirtitill þess er "Ræður og kvæði eftir J. Krishnamurti." 1. árgangur. Gefinn út af Stjörnufjelaginu.

Sólgarðaskóli

Bréf Marius Fleisher til Akraskóla

Bréfið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar fróðleik um Grænlenska jólasveininn. Með liggur upplýsingablað á grænlensku og dönsku, ásamt faðir vor á dönsku.

Marius Fleisher, Grænlandi

Fundargerð 23.05.1893

Fundagerðin er rituð á pappírsörk í folio broti. Á fundinum voru lögð drög að stofnun félagsins og stofnuð þriggja manna nefnd. Með liggja drög að bréfi til formanns héraðsfundar í Skagafjarðarsýslu.

Barnakennarafélag Skagafjarðar

Results 256 to 340 of 48574