Opnun sýningar á verkum Sölva Helgasonar í Safnahúsinu á Sauðárkróki.T.v. er Örn Ingi - myndlistarmaður á Akureyri og t.h. er Jóhann Þór Friðgeirsson bóndi - Hofi á Höfðaströnd.
Opnun sýningar á verkum Sölva Helgasonar í Safnahúsinu á Sauðárkróki. T.v. er Guðjón Ingimundarson og t.h. er Snorri Björn Sigurðsson bæjarstjóri á Sauðárkróki.
Kiwanismenn afhenda Sjúkrahúsi Sauðárkróks náttborð. Talið f.h.: Hjalti Guðmundsson - Sig. Karl bjarnason - Sigurgeir Angantýsson - Sverrir Svavarsson og Ólafur Jónsson.
Þorbjörn Árnason forseti Bæjarstjórnar Sauðárkróks afhendir viðurkenningu fyrir fagran garð að Grundarstíg 9 - Sauðárkróki. Talið f.v.: Sigurgeir Þórarinsson - Jóhanna Valdimarsdóttir og Þorbjörn Árnason.
Þorbjörn Árnason forseti Bæjarstjórnar Sauðárkróks afhendir viðurkenningu fyrir fagran garð að Grundarstíg 9 - Sauðárkróki. Talið f.v.: Sigurgeir Þórarinsson - Jóhanna Valdimarsdóttir og Þorbjörn Árnason.
Afhending verðlauna á Volvo/Esso móti Golfklúbbs Sauðárkróks í ágúst 1988. Verðlaunahafar á Volvo/Esso móti Golfklúbbs Sauðárkróks í ágúst 1988. Talið f.v.: Guðmundur Guðmundsson - f.f. Guðjón B. Gunnarsson - Haraldur Friðriksson - Halldór Halldórsson - Örn Sölvi Halldórsson - Stefán Hreinsson - Friðrik J. Friðriksson - Finnur Kristinsson - Guðmundur Sverrisson - Sverrir Valgarðsson og Birgir Guðjónsson.
Séð yfir Aðalgötuna frá norðri til suðurs. Prúðbúið fólk við "Miklabæ" Aðalgötu 9. Hugsanlega húskveðja Péturs Sighvatz árið 1938. Lágreista húsið er hús Ögmundar Magnússonar söðlasmiðs, þar reis síðar Alþýðuhúsið og nú er þar skemmtistaðurin Mælifell.
Aðalgata 16, Sýslumannshús eða Michelsenshús kringum árið 1940. Þar hefur verið stundaður verslunar- og veitingarekstur óslitið frá 193?. Takið eftir skiltunum á húsinu. Myndin er tekin um það leyti er Michelsens fjölskyldan bjó í því. Til hægri var verslun og verkstæði Frank Michelsen en Sápuhúsið vinstra megin. Fjölskyldan keypti húsið árið 1912 og hóf Frank þar verslun og verkstæðisrekstur fljótlega eftir það. Húsið var áður nefnt Sýslumannshús í daglegu tali, enda höfðu þrír sýslumenn búið í því fyrir þann tíma, en formlegt nafn þess var Laufás, eftir prestsetrinu í Eyjafirði.
Snjóþyngsli við Aðalgötuna. Götur Sauðárkróks voru lengi vel handmokaðar og yfirleitt ekki gert ráð fyrir bílaumfer um þær á vetrum þegar snjór var sem mestur. Aðalgata 17 og 19.
Aage Michelsen og Anna Lísa Michelsen í kartöflugarði. Matjurtagarðar voru gríðarmikilir á Sauðárkróki. Árið 1940 var uppskera Sauðkrækinga af kartöflum 335 tunnur samkvæmt hagskýrslum.
Elsa og Karen "Dúdda" kæla sig í Sauðárgili. Það var vinsælt tómstundargaman að baða sig í Sauðánni enda höfðu Skagfirðingar ekki kynnst hitaveitu og þeim þægindum sem nægt magn af heitu vatni hafa í för með sér.
Aage Micehlsen á tréhesti. Þennan hest fékk Frank Michelsens að gjöf frá Danmörku þegar hann var á fyrsta ári, s.s. 1914 þá var hesturinn klæddur með skinni eða skinnlíki.
Anna Lísa og Frank sonur Páls Michelsens um borð í kassabíl. Aage Michelsen bakvið bílinn. Kassabílar voru uppáhald leikföng margra krakka á Króknum og var þessi kassabíll knúinn með keðjum sem án efa hefur létt á drættinum.
Jörgen Frak Michelsen var sennilega sá fyrsti sem hért svín á Sauðárkrókur. Svínaeignin er nýmæli og af mörgum óhæfilegur matur. Árið 1943 voru 10 svín talin til heimils á Sauðárkróki.