Sýnir 8599 niðurstöður

Lýsing á skjalasafni
Málaflokkur
Advanced search options
Prenta - forskoðun Hierarchy View:

69 niðurstöður með stafrænum einingum Sýna niðurstöður með stafrænum einingum

Skipulagsmál íþróttasvæðis 2002-2003

Ýmis gögn varðandi skipulag íþróttasvæðisins á Sauðárkróki, samskipti Guðjóns við Sveitarfélagið, athugasemdir við deiliskipulag og hans eigin hugleiðingar um framkvæmd málsins.

Guðjón Ingimundarson (1915-2004)

Bréf frá Árna Guðmundssyni 1947-1958

Bréf frá Árna Guðmundssyni fyrrverandi skólastjóra Íþróttakennaraskóla Íslands á Laugarvatni. Árni var fæddur á Sauðárkróki. Guðjón og Árni virðast hafa skrifast á árlega á 11 ára tímabili.

Guðjón Ingimundarson (1915-2004)

Kladdar 1941-1947

Kladdar frá árunum 1941-1947 þar sem Guðjón merkir við viðveru nemenda sinna, veikindi, leyfi og fleira.
TRÚNAÐARGÖGN!

Guðjón Ingimundarson (1915-2004)

Ýmis gögn

Ýmis gögn tengt Ungmennafélaginu Tindastóli sem komu úr fórum Guðjóns Ingimundarsonar. Gjörðabók, afrit af fréttum, fundargerð knattleikjaráðs Skagafjarðar, drög að reglugerð vegna ungmennafélags bikars og að lokum auglýsingar frá skíða- og sunddeildum Tindastóls.

Guðjón Ingimundarson (1915-2004)

Ýmis gögn

Ýmis gögn sem komu úr fórum Guðjóns Ingimundarsonar, tengd starfsemi hans innan Kaupfélags Skagfirðinga. Minnisbók, reglugerð fyrir Menningarsjóð K.S. og bréf frá 8. janúar 1961 sem er óvíst hvort sé til Guðjóns eða frá honum. Efni bréfsins er bókhald Kaupfélagsins á þessum tíma.

Guðjón Ingimundarson (1915-2004)

Andvari 1957-1958

Tvö tölublöð af Andvara, blaði "frjálslyndra kjósenda" á Sauðárkróki. Ábyrgðarmaður blaðsins var Stefán Sigurðsson.

Ýmislegt

Gögn sem komu úr fórum Rögnvaldar Jónssonar:
Fjallskilareglugjörð fyrir Skagafjarðarsýslu frá 1906.
Verðlagsskrá fyrir Skagafjarðarsýslu frá 16. maí 1935 - jafnlengdar 1936.
Félagsmannatal Kaupfélags Skagfirðinga frá 1950.
Bréf frá innlánsdeild Kaupfélags Skagfiðinga - e.d.

Rögnvaldur Jónsson (1908-2003)

Niðurstöður 3401 to 3485 of 8599