Sýnir 8598 niðurstöður

Lýsing á skjalasafni
Málaflokkur
Advanced search options
Prenta - forskoðun Hierarchy View:

68 niðurstöður með stafrænum einingum Sýna niðurstöður með stafrænum einingum

Erindi og fylgigögn bókhalds 1935-1945

Í safninu eru vélrituð, forprentuð og handskrifuð gögn á mismunandi gerð pappíra, það inniheldur bréf og erindi frá Bandalagi íslenskra skáta, skátablaðið, fylgigögn bókhalds, félagatal og skýrsla yfir starfsemi félagsins. Einnig litlir miðar með úrsögnum úr skátafélaginu og fundarboð.
Hefti og bréfaklemmur voru hreinsaðar úr safninu, blöðin eru í mismunandi ástandi, sum rifin og gulnuð og á einhverjum blöðunum er sýnilegir ryðblettir eftir hefti.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Fundagerðabók kvenskátafélagsins Ásynjur

Innbundin og handskrifuð bók. Saurblaðið er fagurlega skreytt, og á næstu blaðsíðum eru skátalögin, skátaheitið, kjörorð skáta og heilbrigðisreglur Baden Powells skráð með skrautskrift. Bindingin er léleg en bókin er engu að síður ágætlega varðveitt, plastfilma var utan um bókina en hún var fjarlægð.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Bréf

16 bréf sem Sigurður Sigurðsson ritar. Í bréfunum, óskar hann eftir myndum og fleiri upplýsingum fyrir Sögufélagið.
2 bréf til Sigurðar.

Sigurður Sigurðsson (1887-1963)

Bréf

Bréf Sigurðar Ólafssonar til Stefáns Vagnssonar, frá árabilinu 1952-1962.

Sigurður Ólafsson (1892-1976)

Menntamálaráðuneytið

Bréf til og frá Menntamálaráðuneytinu og 2 auglýsingar um laun stundakennara. 1 skjal með reglum um þáttöku ríkissjóðs í kostnaði við framkvæmd sundskyldunar 1971 og leiðbeiningar sem varða hana.
2 samningar Menntamálaráðuneytisins og bæjarstjórnar Sauðárkróks um Framhaldsskóla á Sauðárkróki. 1 greinargerð um gerð námsskráar.
Erindisbréf fyrir skólanefndir grunnskóla.

Afsöl

Afsöl, bæði vegna bifreiða. Með liggja skuldabréf og yfirlitsblað úr banka.
Alls 4 blöð.
Ástand skjalanna er gott.

Tónlistarskóli Skagafjarðar (1999-)

Flöskuskeyti

1 Flöskuskeyti sem Ingólfur Jón Sveinsson fann. Það var í plastpoka, í plastflösku og kom frá Hjaltlandseyjum. Í bréfinu stendur m.a: Please write to Mr. J.L Henderson. Fram kemur heimilisfang og símanúmer. Dagsetning á bréfi er 9. september 2000.

5 bréf sem skrifuð voru í kjölfarið ásamt ljósmyndum og ferðabæklingi um að Hjaltlandseyjar.

Hitaveita Sauðárkróks

Bréf til Jóns Nikodeumsson hitaveitustjóra. Reikningur fyrir jarðborun til Hitaveitu Sauðárkróks, yfirlit yfir rörasendingu, skýrsla, reglugerð um Hitaveitu Sauðárkróks.

Bréf

Einkabréf á milli Egils og Jens Þorkels.

Jens Þorkell Halldórsson (1922-1992)

Fylgigögn bókhalds

Fylgigögn bókhalds frá árunum 1957-1981 (flest frá árinu 1959).
Varða búrekstur í Lónkoti.
Sum gagnanna eru upplituð af óhreindingum eða krumpuð, annars er ástand þeirra gött.

Tryggvi Guðlaugsson (1903-1994)

Þjóðsögur skráðar af Sigurði Þórðarsyni

Ýmsar þjóðsögur skráðar af Sigurði Þórðarsyni.
Á sumum þeirra er tekið fram hver er sagnamaðurinn.

Bls. 1 - Reynt að vekja upp á Mælifelli
Bls. 4 - Reimleikurinn á Þorljótsstöðum
Bls. 9 - Reimleikar í Viðimýrarseli
Bls. 17 - Stúlkan á Geirmundarstöðum
Bls. 19 - Skrímsli í Friðmundarvötnum
Bls. 21 – Skrímslið í Stapavatni
Bls. 23. Svipir á Hallgrímsstöðum
Bls. 25 – Draugagangur í Enni
Bls. 32 – Veðursvipir í Felli
Bls. 36 – Ljós við Tjaldhól í Laxárdal
Bls. 38 – Frásögn Petreu í Mælifelli
Bls. 41 – Draugur í Brandsgili
Bls 44. Draumur um feigð Séra Sigurðar Arnórssonar
Bls 45 – Samtal drauga í Mælifellskirkjugarði
Bls. 47 – Smíðahljóð á Mælifelli
Bls. 49 – Barnagull á Brenniborg
Bls. 51 – Skrokkhljóðið í Reykjayungu
Bls. 53 – Álfakirkjan í Hestavígshamri
Bls. 57 – Ljósið í Hestavígshamri
Bls. 59 – Kerlingin í Gálgahúsum á Reynisstað
Bls. 64 – Svipurinn við Svartá í Svartárdal
Bls. 69 – Svipur Davíð Stefánssonar á Brún
Bls. 74 – Svipur við kistu Klemensar í Bólstaðarhlíð
Bls. 77 – Jarðaförin

Ótölusett blöð:
Svipur Sigríðar
Feiðgarboði – Björn í Glaumbæ
Kirkjufólkið á Reynisstað
Jón á Brún

Landskipti: Eyhildarholt

Uppdráttur sem sýnir landskipti jarðarinnar Eyhildarholt. Uppdráttur gerður af Hjalta Þórðarsyni, árið 2000.

Hjalti Þórðarson landfræðingur

Fundagerðabók 1943-1946

Þunn innbundin handskrifuð bók með línustrikuðum blöðum. Bókin inniheldur fundgerðir stjórnar S.S.K. og aðalfunda, einnig fyrstu lög sambandsins. Bókin er vel læsileg og hefur varðveist mjög vel. Límborði er á kili bókarinnar.

Samband skagfirskra kvenna (1943 - )

Skipulagsskrá hins skagfirska kvennaskóla

Handskrifuð skjöl í A3 stærð sem innihalda skipulagsskrá hins skagfirska kvennaskóla, dags. 29. júní 1878, og var samþykkt af Sýslunefnd Skagafjarðarsýslu og samþykkt sama ár. Þetta skjal er líklega n.k. afrit af upprunalega skjalinu.

Samband skagfirskra kvenna (1943 - )

Skjöl varðandi kaup Nafar h.f. og Útgerðarfélags Skagfirðinga h.f. á norska skipinu m/s Leisund

Skjöl varðandi kaup Nafar h.f. og Útgerðarfélags Skagfirðinga h.f. á norska skipinu m/s Leisund frá 1973. Ýmis skjöl, svo sem lánabeiðni til Framkvæmdastofnun ríkisins og ábendingar frá Fjármálaráðuneytinu, úttekt á skipinu og leiðbeiningar varðandi kaup á erlendum notuðum fiskiskipum.

Nöf hf.

Sendibréf til Franch varðandi málefni Skátahreyfingunnar

  1. Bréf/ umslag varðandi norðurlanda Gildismót árið 1980.
  2. Bréf/ 1. umslag frá Helga Konráðssyni skrifað árið 1944 um Skátahreyfinguna Andvari.
  3. bréf vegna námskeiðs Gilwells 30. júní 1960 frá Sig. Guðmundsson skátafélag Sauðárkróks - Ásynjur og Andvarar.
  4. bréf frá Geirlaugi Jónssyni 28. nóvember 1948 um Foringjablað Skátahreyfingarinnar.
  5. bréf frá Sigurði Jónssyni 28.02 1973 vegna endurvekja Skátastarfið á Sauðárkróki.
  6. bréf frá Jóni A. Valdimarssynir skrifað í Keflavík um skátastarf á Sauðárkróki.

Franch Bertholt Michelsen (1913-2009)

Niðurstöður 3741 to 3825 of 8598