Showing 452 results

Archival descriptions
Hermann Jónsson: Skjalasafn
Advanced search options
Print preview Hierarchy View:

Síma- og burðargjaldakostnaður

79 pappírsskjöl sem varða síma- og burðagjaldskostnað við byggingu bryggju í Haganesvík.Reikningarnir koma frá ýmsum aðilum og eru stílaðir á Hafnarsjóð Haganeshrepps. Einnig umslag sem merkt notað hefur verið til að sundurgreina kostnaðarliði við framkvæmdirnar.

Haganeshreppur

Skilagreinar

34 pappírsskjöl sem innihalda útfylltar skilagreinar í vöruhappdrætti SÍBS á árunum 1970-1971 í mismunandi flokkum.

Skilagreinar og skattreikningar

Skilagrein ásamt 37 skattareikningum fyrir Haganeshrepp, sem heftaðir voru aftan við skilagreinina. Skilagreinin er frá 1964 en reikningarnir frá 1963 og 1964. Skilagreinin er fyrir manntalsbókargjöldum innheimtum í nóvember og desember 1964, frá hreppstjóra Haganeshrepps og á hana eru vélrituð nöfn og þinggjöld íbúa i hreppnum. Hún er undirrituð af hreppstjóra. Á skattareikningana eru vélrituðnöfn íbúa í Haganeshreppi ásamt upplýsingum um gjöld og greiðslur handskrifaðar inn á reikningana.

Haganeshreppur

Skrá yfir fasteignaskatt og gjöld

Vélritað pappírsskjal sem inniheldur skrá yfir fasteignaskatt og gjöld álögð í Haganeshreppi árið 1964. Skjalið var heftað við Útsvarsskrá Haganeshrepps 1964. Er það undirritað af hreppstjóra Haganeshrepps. Um frumrit er að ræða. Skjalæið er vélritað en athugasemdir færðar inn á það með penna.

Haganeshreppur

Skrá yfir útborgað orlofsfé 1957-1961

Bók í stærðinni 22,2x28,8 cm. Heftuð með kalkeruð síðum með handskrifuðum innfærslum.
Inn í bókina eru færðar útborganir á orlofsfé gegnum póstafgreiðsluna í Haganesvík árin 1957-1961.
Bókin er fremur óhrein og fremstu síðurnar krumpaðar.

Hermann Jónsson (1891-1974)

Skrá yfir útborgað orlofsfé 1962-1965

Bók í stærðinni 22,2x28,8 cm. Heftuð með kalkeruð síðum með handskrifuðum innfærslum.
Inn í bókina eru færðar útborganir á orlofsfé gegnum póstafgreiðsluna í Haganesvík árin 1962-1965.
Bókin er fremur óhrein og fremstu síðurnar krumpaðar.

Hermann Jónsson (1891-1974)

Sótthreinsun fjárhúss

Tvö samhljóðandi pappírsskjöl. Vélrituð á þunnan pappír og undirrituð af Hermanni Jónssyni. Innihalda leiðbeiningar um sótthreinsun fjárhúsa.

Staðgreiðslukvittun

1 pappírsskjal í stærðinni 14x10,5 cm. Kvittunareyðublað með handskrifuðum úttektum vegna útfararkostnaðar.

Hermann Jónsson (1891-1974)

Umslag

Pappírsumslag. Á umslagið er vélritað nafn og heimilsfang Hrefnu Hermannsdóttur. Á umslagið er handskrifað með blýanti og penna kostnaður við dúnhreinsun og sendingu. Búið er að klippa frímerki af umslaginu og gata það.

Hermann Jónsson (1891-1974)

Results 341 to 425 of 452